Mosfellingur - 21.08.2009, Síða 14

Mosfellingur - 21.08.2009, Síða 14
Hvíti riddarinn í toppslag 3. deildar Hvíti riddarinn hefur verið á miklu skriði í 3. deildinni undan farnar vikur. Liðið hefur unnið sex af síðustu níu leikjum sínum og þar með komist í 2. sæti rið- ilsins eftir nokkuð dapra byrjun. Hvíti riddarinn er með 23 stig í öðru sætinu en KFG og Berserkir eru í tveimur næstu sætunum með jafmörg stig. Lokaumferðin í riðlinum fer fram á morgun, laugardag, en Hvíti riddarinn mætir þá KFG á Varmárvelli. Sigur þar fleytir Hvíta riddar- anum í úrslitakeppni 3. deildar- innar þar sem að átta lið keppa um tvö laus sæti í 2. deild að ári. Mosfellingar eru hvattir til að fjölmenna á leikinn á morgun og hvetja Hvíta riddarann til sigurs! Happadrætti til góðs málefnis Þessa dagana ganga strákar sem verða í 4. flokki í fótboltanum á næsta tímabili í hús og selja happadrættismiða meistara- flokks karla. Strákarnir eru að hefja söfnun fyrir æfingaferð næsta vor en hlutur meistara- flokksins af miðasölunni fer í rekstur þessa árs. Vinningaskráin ber keim af 2009, í fyrsta vinning er listflug fyrir einn og önnur verðlaun útsýnis- flug fyrir tvo yfir Mosfellsbæ, gefið af flugklúbbi Mosfellsbæj- ar. Engum er greiði gerður með utanlandsferð í vinning í þessu árferði. Fjöldi glæsilegra vinn- inga eru í boði en dregið verður í túninu heima, sunnudag kl. 14. Skóskiptimarkaður í Túninu heima Knattspyrnudeild mun gangast fyrir knattspyrnuskóa-skipti- markaði „Í túninu heima“. Allir sem vilja geta komið með takkaskó, gervigrasskó, innanhússskó í skiptum fyrir aðra. Þeir sem hafa keypt of stóra eða litla skó og aldrei geta notað, þeir sem hafa vaxið upp úr skónum sínum nánast óslitnum geta því orðið öðrum að liði. Látum ekki nothæfa skó safna ryki heima ef þeir geta gengið í endurnýjun lífdaga. Strákarnir í bullandi fallbaráttu en stelpurnar í fríi Róðurinn þyngist - Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar14 Stjórn barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Afturelding- ar, BUR, vill lýsa yfir stuðningi við meistaraflokka karla og kvenna. Meistaraflokkarnir eru flaggskip knattspyrnudeildarinnar og líta margir ungir knattspyrnuiðkendur upp til þeirra. Knattspyrnuiðkend- ur í efstu flokkum eða frá 4. flokki og upp í 2. flokk karla og kvenna horfa til meistaraflokkanna og hafa langflestir það markmið að fá einn daginn að spila með meistara- flokkum Aftureldingar. Leikmenn meistaraflokks karla standa frammi fyrir erfiðu verkefni í næstu leikjum og þurfa að berjast hart fyrir sæti sínu í 1. deildinni. Stelpurnar í meistaraflokknum eru sitt annað ár í úrvalsdeild og hafa einnig staðið í mikilli baráttu um að halda þar sæti. Það er mikils virði fyrir knatt- spyrnu í Mosfellsbæ að hafa meist- araflokkana í efstu deildum. Það kostar mikla fyrirhöfn og mikið fjár- magn. Þess vegna eru Mosfellingar hvattir til að taka þátt í þeim fjáröfl- unum sem eru í gangi og sýna með því stuðning við unga og efnilega íþróttafólkið okkar. Einnig hvetur stjórnin Mosfellinga að mæta á þá leiki sem eftir eru og sýna þannig mikilvægasta stuðninginn. Stjórn BUR leggur mikla áherslu á að forsvarsmenn Aftureldingar leggi allt kapp sitt á að gera veg meistaraflokkanna sem bestan. Stjórn barna- og unglingaráðs Aftureldingar Stuðningsyfirlýsing við meistaraflokkana í knattspyrnu Í vetur mun nemendum 1. og 2. bekk í Varmárskóla og Lágafells- skóla gefast kostur á að taka þátt í Íþróttafjöri. Íþróttafjör er samstarf flest allra deilda innan Afturelding- ar, Frístundaselsins, skólanna og bæjarfélagsins. Markmiðið með íþróttafjöri er að nemendur á þess- um aldri fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum en reynslan sýnir að börn á þessum aldri eiga erfið- ara með að velja eina grein til að stunda allan veturinn. Vonin er að þetta fyrirkomulag verði krökkun- um meiri hvatning til að hreyfa sig undir eftirliti þjálfara í hverri grein. Æfingatími stendur yfir í um 1½ klst eða frá rúmlega tvö til klukkan hálf fjögur. Nemandinn má velja sér eina uppáhaldsgrein en í hver- jum æfingatíma eru stundaðar tvær íþróttagreinar. Nemandinn stundar þá uppáhaldsgreinina tvisvar í viku og prófar tvær aðrar íþróttagreinar í hverri viku. Með þessum hætti ættu öll börn að finna sér íþróttagrein við hæfi. Samvinna við framhaldsskólann Nemendur sem eru skráðir í Frí- stundaselið geta nú stundað flest- ar sínar æfingar á vegum íþrótta- félagsins á Frístundaselstíma eða fyrir klukkan fjögur á daginn. Þeir nemendur sem ekki eru skráðir í Frístundaselið en vilja taka þátt mæta í íþróttamiðstöð á æfinga- dögum eftir að skóla lýkur. Einnig verður Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ í samvinnu við Íþrótta- fjörið þar sem nemendur á íþrótta– og lýðheilsubraut koma að aðstoð við þjálfun á æfingum. Bréf verður sent til foreldra barna í 1. og 2. bekk í gegnum Mentor í samstarfi við frístundaselið en upplýsingar verða einnig að finna á www.mos.is og www.afturelding.is Meistarflokkur karla berst þessa dagana fyrir lífi sínu í 1. deildinni. Nú þegar fimm umferðir eru eftir er Afturelding í næst neðsta sæti, þremur stigum á eftir ÍA. Strákarnir klúðruðu niður unnum leik á þriðjudaginn á móti ÍA. Staðan var 3-1 þegar fimm mín. voru eftir og víti dæmt á gestina. Allt kom fyrir ekki, vítaspyrnan fór út um þúfur og ÍR-ingar jöfnuðu leikinn með tveimur mörkum á lokamínútunum. Mikil dramatík að Varmá. Aftur- elding leikur gegn Víkingi í kvöld kl. 18:30 á Víkingsvelli. Strákarnir þurfa því virkilega á stuðningi og stigum að halda í þeim leikjum sem eftir eru. Meistaraflokkur kvenna er í þriðja neðsta sæti en ekkert er leikið í Pepsi- deild kvenna þessa daganna vegna Evrópumótsins í Finnlandi. Samstarf Mosfellsbæjar, Frístundaselsins, Lágafellsskóla, Varmárskóla og Aftureldingar Íþróttafjör fyrir yngstu nemendurna

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.