Mosfellingur - 21.08.2009, Blaðsíða 20
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar20
Langar þig til að vinna með frábærum börnum
í spennandi og fjölbreyttu starfi?
Frístundasel Lágafellsskóla leitar eftir glaðlegu og jákvæðu
fólki til að vinna með börnum á aldrinum sex til níu ára.
Í boði er allt að 50% starfshlutfall.
Vinsamlegast hafið samband við: Efemíu Gísladóttur skólastjóra
í síma: 6185149 netfang: efemia@lagafellsskoli.is eða Dagbjörtu
Brynjarsdóttur í síma: 8962682 netfang: dagga@lagafellsskoli.is
Laugardaginn 15. júlí var haldinn árlegur flugmódeldagur hjá Flug-
klúbbi Mosfellsbæjar á Tungubökkum. Fjölmenni var að venju og nutu
menn dagsins við flug og indælis veður á Tungubökkum. Á þriðja tug
glæsilegra, fjarstýrðra, flugmódela voru á staðnum.
Töluvert var um gesti og höfðu þeir gaman af að skoða módelin jafnt á
jörðu miðri sem í lofti. Mótstjori var að venju Einar Páll Einarsson og tókst
samkoman vel í alla staði.
ÚTIÞJÁLFUN - NÁTTÚRULEGA BEST
Lærðu að nýta þér alla þá möguleika sem hið
frábæra umhverfi okkar býður upp á í þol-,
styrktar- og liðleikaþjálfun - allt árið.
Upplagt fyrir félaga sem vilja koma sér í form og halda það út.
Gott matar- og viktaraðhald fyrir þá sem þess óska.
Fyrir byrjendur og lengra komna.
Kristín Einarsdóttir íþróttakennari og einkaþjálfari.
Skráning og upplýsingar:
jon@draumagolf.is
GSM: 899 0768
Nú er undirbúningur fyrir vetrar-
starf Kjósarsýsludeildar Rauða kross-
ins í fullum gangi. Öll helstu verke-
fni deildarinnar fara af stað á næstu
vikum, fyrir utan verkefnið „Föt sem
framlag” sem hefur þegar hafið störf
eftir sumarfrí. Þeir sem hafa áhuga á
að leggja verkefnunum lið er bent á
að hafa samband í síma 898-6065 og
í netfangið kjos@redcross.is.
Sjálfboðaliðar deildarinnar taka
þátt í ýmsum verkefnum á höfuð-
borgarsvæðinu. Helstu verkefni
hjá Kjósarsýsludeild eru: þátttaka
í foreldrarölti grunnskólanna, ung-
mennastarf fyrir 13 ára og eldri,
föt sem framlag þar sem föt eru
prjónuð, hekluð eða saumuð fyr-
ir hjálparstarf innanlands sem er-
lendis og heimsóknavinir þar sem
sjálfboðaliðar heimsækja einstakl-
inga á heimili þeirra eða stofnanir til
að draga úr félagslegri einangrun og
veita félagsskap, nærveru og hlýju.
Sjálfboðaliðarnir okkar eru
einnig virkir í verkefnum eins og
neyðarvörnum, hjálparsímanum
1717, Rauðakrosshúsinu Borgartúni
25, skyndihjálp og fataflokkun svo
fátt eitt sé nefnt.
Kynning Í túninu heima
Kjósarsýsludeild verður með
kynningarbás á bæjarhátíðinni Í
túninu heima. Þar verður hægt að
fræðast nánar um Rauða krossinn og
verkefni deildarinnar. Einnig verður
boðið upp á kennslu í skyndihjálp
þar sem fólki gefst færi á að læra
eða æfa blástursaðferðina. Sjálfboða-
liðum deildarinnar verður svo boðið
í kaffi í Sjálfboðamiðstöðinni Þver-
holti 7 eftir að bæjarhátíðinni lýkur,
sunnudaginn 30. ágúst kl. 17.
Hjálparsíminn – 1717
Sjálfboðaliðar og starfsmenn
Hjálparsíma Rauða krossins 1717
veita allar almennar upplýsingar um
Inflúensu A (H1N1)v (svínaflensuna)
í gegnum gjaldfrjálsa númerið 1717.
Hjálparsíminn hefur frá stofnun lagt
mikið upp úr því hlutverki að veita
upplýsingar um samfélagsleg úr-
ræði og þjónustu til einstaklinga
um hin ýmsu mál. Sjálfboðaliðar
og starfsmenn Hjálparsímans hafa
fengið staðgóða fræðslu frá Land-
læknisembættinu og eru þar af
leiðandi vel í stakk búnir til þess að
svara almennum spurningum.
Árlegur flugmódeldagur hjá flugklúbbnum
Flugmódel á Tungubökkum
Krakkarnir í Vinnuskóla Mosfellsbæjar sjást hér undirbúa sig fyrir sund-
sprett í Köldukvísl á einum af góðviðrisdögum sumarsins. Mikill fjöldi un-
glinga hefur starfað hjá Mosfellsbæ í sumar og leggja þau nú allt kapp á að
snyrta bæinn fyrir bæjarhátíðina „Í túninu heima”.
Sund milli stríða
Öflugt starf framundan hjá Kjósarsýsludeild RKÍ
Vetrarstarfið undirbúið
Frá Survivor-
Heiðmörk ferð
ungmenna-
starfsins.