Mosfellingur - 21.08.2009, Side 28
Fiskréttur með spaghettí
Í eldhúsinu
Ragnheiður Hrönn Björnsdóttir gef-
ur okkur uppskrift að þessu sinni að
fiskrétti með spaghettí. „Þessi upp-
skrift kemur frá móður minni, hún
gerði iðulega þennan rétt handa
okkur systkinunum þegar við vor-
um yngri. Móðir mín var vön að nota
karrý í þennan rétt en ég breytti því í
salsa-sósu við góðan orðstír. Ég síðan
hálf sýð spaghettíið sem er mjög
mikilvægt vegna þess að ef maður
sýður það til fulls verður allur safinn
af fiskinum í botninum á fatinu þe-
gar hann eldast. Ef maður hins vegar
passar þetta, þá eldast spaghettíið í
safanum af fiskinum og sósan verður
ekki of þunn. Gott er að bera fram
snittubrauð með réttinum.“
1 krukka Hot Salsa dip
2 ýsuflök
1-2 tsk Aromat
spaghetti (væn lúka)
tómatsósa
ostur
brauðrasp
smjör
Aðferð:
Byrjað er á því að setja spaghettíið
í pott með slatta af salti og sjóða til
hálfs, ca.3-4 mín. Setjið Hot Salsa
sósuna í botninn á eldföstu móti.
Leggið flökin ofan á sósuna og krydd-
ið með Aromati.
Setjið hálfsoðna spaghettíið ofan á
fiskinn og sprautið slatta af tómat-
sósu ofan á spaghettíið.
Setjið ostsneiðar ofan á allt saman og
brauðrasp þar ofan á.
Setjið 4-6 smjörklípur á dreif ofan á
ostinn og raspið og setjið í forhitaðan
ofninn. Bakist við 190°C í 30-40 mín
(fer eftir stærð fiskflakanna)
Best er að setja réttinn í stórt eldfast
mót. Rétturinn er ekki síðri upphit-
aður næsta dag.
Verði ykkur að góðu.
HJÁ HEIDU
- Fréttir, bæjarmál og aðsendar greinar28
Sunnudaginn 9. ágúst var söng-
leikurinn Fúttlús (Footloose) frum-
sýndur í Bæjarleikhúsinu. Þar stigu
ungir og efnilegir leikarar á stokk
sem hafa í sumar tekið þátt í leik-
listarnámskeiði á vegum Leikfélags
Mosfellssveitar.
Krakkarnir sem eru á aldrinum
13-16 ára stóðu sig með mestu
prýði, enda var frá upphafi mikill
metn aður í hópnum. Sýningin, sem
var í senn uppskeruhátíð nám-
skeiðsins sem stóð í átta vikur, er
bráðskemmti leg, fyndin og full af
söng og dansi.
Listrænir stjórnendur sýningar-
innar eru Agnes Þorkelsdóttir
Wild leikstjóri, Sigrún Harðardótt-
ir tónlistarstjóri og Hreindís Ylva
Garðarsdóttir Holm danshöfundur.
Næstu sýningar verða miðviku d.
26. ágúst, fi mmtud. 27. ágúst og
sunnud. 30. ágúst. Hægt er að nálg-
ast miða í síma 566 7788.
Unglingar á sumarnámskeiði Leikfélags Mosfellssveitar setja upp söngleik
Söngur og fimir fætur á Fúttlús
Heyrst hefur...
...að hin árlega sultukeppni á
grænmetismarkaðnum í Dalnum
fari fram 29. ágúst. Sultunum er
skilað samdægurs fyrir kl. 12:30.
...að nú sé líka hægt að fá sér eina
franska hjá „Sveini með öllu"
...að svínaflensan sé komin í Mosó,
staðfest tilfelli eru orðin nokkur.
...að falsaðir peningaseðlar hafi
fundist í verslunum í Mosó.
...að unnið sé úr fjölmörgum
umsóknum um nýja eigendur
Reykjalundar-Plastiðnaðar.
...að Haukur Sigurvins hafi farið holu
í höggi á Hlíðarvelli í sumar.
...að Eyrún Helga eigi afmæli í dag.
...að tvítugur Mosfellingur hafi unnið
tæpar 5 milljónir í gullpotti á
Kringlukránni á dögunum.
...að Dóra Hlín Ingólfsdóttir hafi
orðið sextug á dögunum.
...að skjálfti sé kominn í bæjar-
stjórnar fólk fyrir kosningarnar sem
fram fara næsta vor.
...að Bjössi og María hafi gift sig
óvænt á dögunum þegar þau buðu
til þrítugs-afmælisveislu.
...að Mosfellingur óski eftir
verð ugum andstæðingum á
Ólympíuleikum vinnustaða.
...að götublaðið Rituhöfðinginn
sé komið í harða samkeppni við
Mosfelling.
...að Magnús í Eyjum hafi haldið
veglega upp á afmæli sitt.
...að Óli íla sé nú single.
...að Ólöf Þórðar formaður Leik-
félagsins hafi prjónað og hannað
brúðarkjólinn á Elínu hans Daða.
...að bæjarhátíðar-borðinn á göngu-
brúnni hafi verið fjarlægður, en
ekki fékkst leyfi fyrir honum.
...að Anna Heidi og Siggi Palli
eigi von á barni.
...að Tóti Eggerts sé tekinn við veit-
ingastaðnum 1919 í miðbænum.
...að fyrstu gestir á ballinu Í túninu
heima fái vegleg tilboð á barnum.
...að Hótel Laxness hafi sett upp
skilti í leyfisleysi á hljóðmönina
neðan Hlíðatúnshverfis.
...að búið sé að opna veitingastað við
Esjurætur sem nefnist Esjustofa.
...að Helga Boga sé tvítug í dag.