Mosfellingur - 21.10.2010, Síða 4
24. október 21. sd. e. trin.
Lágafellskirkja kl. 20
Kvöldguðsþjónusta í Lágafellskirkju
– Taize
31.október 22. sd. e. trin.
Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl.11
Menningardagur Kjalarnesspró-
fastsdæmis.
1. nóvember - mánudagur
Allara heilagramessa í Lágafellskirkju
kl. 20. Látinna minnst, bæn, kyrrð og
tónlist.
7. nóvember 23. sd. e. trin.
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl.11
Upplýsingar um safnaðarstarf
Lágafellssóknar er hægt að nálgast
á heimasíðu kirkjunnar
www.lagafellskirkja.is
HelgiHald framundan
www.lagafellskirkja.is
- Fréttir úr bæjarlífinu4
Gamanþættirnir Steindinn okkar eru komnir út á DVD og væntanlegir í verslanir í dag
steindi jr. gefur út DVD disk
Mosfellingurinn góðkunni Steinþór H.
Steinþórsson betur þekktur sem Steindi Jr.
hefur skotist upp á stjörnuhiminn að und-
anförnu með grínþáttunum Steindinn okk-
ar. Þættirnir voru sýndir á Stöð 2 í sumar og
hafa hlotið einróma lof gagnrýnanda.
„Viðtökurnar voru betri en ég átti von
á. Þetta er algjörlega ný tegund af gríni á
Íslandi og mjög stórt skref að fara með
þetta í sjónvarpið. Það tekur tíma að ná til
fólks enda nýtt andlit á markaðnum. Maður
getur aldrei náð til allra. Ef allir eru sáttir,
þá er kannski verið að gera eitthvað rangt,“
segir Steindi.
Hádramatískt grín
„Munurinn á mínu gríni og því sem var í
gamla daga eru kannski trúðslætin. Í gamla
daga var nánast nóg að gretta sig fyrir fram-
an myndavélina og breyta röddinni. Grín
í dag verður að vera hádramatískt,“ segir
Steindi.
Sjötíu prósent af þessu er bara
skrifstofuvinna, mikill tími fer í að skrifa
þættina og annað eins í eftirvinnslu.
Dagarnir eru oft langir en oftast
skemmtilegir.
Steindi lék einnig nýverið í nýrri
gamanmynd, Okkar eigin Osló, eftir
Þorstein Guðmundsson. „Hlutverkið var
ekki stórt en þeim mun skemmtilegra að
vera með og taka þátt í kvikmyndagerð.
mosó kemur mikið við sögu
Steindi er ekki einn síns liðs í Steindanum
okkar því honum til halds og trausts er
stórskotalið landsþekktra einstaklinga.
Steindi segir marga Mosfellinga koma við
sögu í þáttunum. „Ég hef alltaf reynt að
taka upp sem mest hér í okkar heimabyggð
og tengja atburðarásina Mosó. Steindi,
í samvinnu við Ágúst Bent, sér um alla
framleiðslu disksins.
Á disknum má finna frásagnir af
framleiðslu þáttanna ásamt öðru
skemmtilegu efni. Diskurinn kemur í
verslanir í dag.
Steindi Jr. með fyrsta ein-
takið af nýjum DVD disk.
kirkjustarfið
MOSFELLINGUR
Skólahljómsveitin í
3. sæti með Imagine
Rás 2 stóð fyrir John Lennon
tökulagakeppni í tilefni sjötugs
afmæli Lennons. Tólf lög komust
í úrslit og þar á meðal Imagine
í flutningi Skólahljómsveitar
Mosfellsbæjar. Fjórar stúlkur
úr hljómsveitinni sungu en
þær heita Signý Valgarðsdóttir,
Hrönn Kjartansdóttir, Berglind
Magnúsdóttir og Hildur Davíðs-
dóttir. Flutningur hljómsveitarinnar
var skemmtilegur og fallegur að
sögn dómnefndar. Um er að ræða
C sveit hljómsveitarinnar en hún er
skipuð á fjórða tug hljóðfæraleikara
undri dyggri stjórn Daða Þórs
Einarssonar. Hægt er að hlusta á
lagið á vef Popplands á ruv.is. Úrslit
voru kunngjörð þann 8. október
en yfir 100 lög bárust í keppnina. Í
verðlaun hlýtur Skólahljómsveitin
ferð fyrir allan hópinn út í Viðey.
Mosfellingur kíkti í sjoppur og
verslanir bæjarins og kannaði
verðið á nammibarnum. Það
er ekki hægt að kvarta yfir
úrvalinu en hægt er að velja
úr alls sjö stöðum. Þess má þó
geta að nammibarirnir eru jafn
misjafnir og þeir eru margir
hvað varðar úrval og gæði.
Bónus 898 kr/kg
Sama verð alla daga
Krónan 1.990 kr/kg
50% afsláttur fös. og lau.
Grillnesti 1.990 kr/kg
50% afsláttur á fös. og lau.
Bónusvideo 2.090 kr/kg
50% afsláttur á laugardögum
Snæland 2.190 kr/kg
50% afsláttur á laugardögum
N1 1.990 kr/kg
52% afsláttur á laugardögum
Olís 1.990 kr/kg
50% afsláttur á laugardögum
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar boðar til íbúafundar um
fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2011. Fundurinn verður
haldinn í Hlégarði þriðjudagskvöldið 26. október kl. 20-
21.30. Markmið fundarins er að fá umræðu meðal íbúa
um leiðir til hagræðingar í rekstri Mosfellsbæjar á næsta
ári og hugmyndir sem nýst geta við gerð fjárhagsáætlunar
ársins 2011 sem nú er í gangi.
Hagræða þarf í rekstri bæjarins
Framundan er krefjandi verkefni sem bæjaryfirvöld
óska eftir samvinnu við bæjarbúa um. „Ljóst er að í því
umhverfi sem við búum nú í þarf að hagræða enn frekar í rekstri
sveitarfélagsins. Við óskum eftir að heyra raddir íbúa um hvar þeim
finnist að megi hagræða og hvar ekki.“ Að fundinum lokn-
um verða niðurstöður umræðuhópanna dregnar saman og
birtar á vef Mosfellsbæjar.
Hvar má spara og hvar má ekki spara?
Í upphafi fundar verður hálftíma kynning á starfsemi
Mosfellsbæjar, verkefnum sveitarfélagsins og forsendum
fjárhagsáætlunarinnar. Þá verða spurningar úr sal og
loks verður fundarmönnum skipt í hópa þar sem lagðar
verða fram tvær spurningar: Hvar má spara og hvar má
ekki spara? Á mos.is verður einnig hægt að senda inn
hugmyndir um hagræðingu. Nánari upplýsingar á www.mos.is/
ibuafundur.
Boðað til íbúafundar í Hlégarði á þriðjudaginn um fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2010
Óskað eftir samráði við íbúa
SÓKn Í SÓKn
– lifandi SamfÉlag
Vertu með í sókninni!
Haraldur Sverris-
son bæjarstjóri
Markmið fundarins er að fá
umræðu meðal íbúanna.