Mosfellingur - 21.10.2010, Qupperneq 26

Mosfellingur - 21.10.2010, Qupperneq 26
Fjarlægið skrautið Eins og bæjarhátíðin er skemmtileg þá er mjög leiðinlegt að sjá skreytingar ennþá hangandi uppi í október. Í guð- anna bænum takaði þetta drasl niður. Þetta var flott þessa einu hátíðarhelgi en ekki til lengdar. Sérstaklega tek ég sjálf eftir þessu hér í Klapparhlíðinni.  Guðný Gamlir kappleikir Mig langar til að koma á framfæri smá kvörtun sem varðar auglýsingaskilti á hringtorgum. Það eru alltaf eldgömul skilti um einhverja leiki og maður veit aldrei hvort það er leikur í kvöld eða hvort hann var fyrir 4 vikum. Þetta finnst mér ekki nógu góð vinnubrögð ef að ætlast er til að maður mæti og styðji Aftureldingu. Kv.Stuðningsmaður ORÐIÐ ER LAUST... Hér gefst lesendum kostur á að láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli. - Aðsendar greinar26 Ástæðan fyrir því að ég skrifa er sú að tveir níu ára drengir hafa slasast í golfi í september með rúmlega viku millibili. Mig langar að því tilefni að biðja ykkur foreldra að fara vel yfir öryggisreglur í golfi með börnum ykkar og gera þeim grein fyrir hættunni sem stafar af golfboltum og golfkylfum. Drengirnir voru ekki á æfingu þeg- ar að þessi slys gerðust á golfvellinum í Mosfellsbæ heldur voru þeir að æfa sig á vellinum. Þeir gættu sín ekki nógu vel og stóðu of nálægt golfkylfingunum. Í báðum tilvikum fengu drengirnir golfkylfu óvart í höfuðið með þeim afleiðingum að annar þeirra (sonur minn) fékk tvö sár í andlit og beinbrot undir öðru sárinu. Hinn drengurinn slasaðist einnig í andliti. Vil ég taka það sérstaklega fram að starfsmenn vallarins eru ekki ábyrgir fyrir þessum slysum þar sem þetta gerist utan æfingartíma. Allur er varinn góður og vert að vara börnin við þar sem golfvöllurinn er í mik- illi nálægð við hverfið. Ásdís Margrét Rafnsdóttir, móðir og hjúkrunarfræðingur. Slys á börnum í golfi Langar þig að hafa gaman í vinnunni? grillnesti leitar að öflugum stafsmanni í dagvinnu alla virka daga. 18 ára eða eldri Ertu eldhress, góð(ur) á grillinu, með meðfædda söluhæfileika og snillingur í að búa til ís? Ef þetta á við þig þá erum við að leita að þér. vinsamlegast skilið inn umsókn í grillnesti háholti 24 fyrir 27. október. allar nánari upplýsingar veitir Ásta hally í s: 566-7273 alla virka daga til kl. 17. Grill nesti HáHolt 24 - Sími 566 7273 MOSFELLINGUR kemur næSt út 11. nóvember Skilafrestur efnis og auglýsinga er til 8. nóv Nú stendur yfir vinna við gerð fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar fyrir árið 2011. Því er ekki að leyna að frá árinu 2008 hefur efnahagsþróun verið sveitarfélögum sem og öðrum í þessu þjóðfélagi afar erfið. En sveitarfélög brugðust almennt mjög hratt við og af mikilli ábyrgð þegar ógæfan dundi yfir og í raun mun hraðar en ríkisvaldið. Hagrætt hefur verið í rekstri og útgjöld lækkuð. Þetta á að sjálfsögðu við um Mosfellsbæ. Á undanförnum árum hefur verið hagrætt mikið í rekstri bæjarfélagsins og nemur lækkun kostnaðar allt að 10%, án tillits til verðbólgu, á síðustu tveimur árum. Starfsfólk bæjarfélagsins, allstaðar í bæjarkerfinu, hefur lagt sig fram um að sinna þjónustu við bæjarbúa á sem bestan hátt, þrátt fyrir að sömu fjármunir hafi ekki fylgt verkefnunum og áður. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með þeirri vinnu sem fram hefur farið á undanförnum misserum við að ná endum saman og það eru mikil verðmæti fyrir Mosfellinga fólgin í þeim mannauði sem vinnur fyrir bæjarfélagið. Verklag við gerð fjárhagsáætlunar Því miður háttar þannig til á Íslandi að kreppunni sem hófst haustið 2008 er ekki lokið. Tekjur sveitarfélaga halda áfram að lækka að raungildi og því þarf þriðja árið í röð að lækka kostnað ef ekki á illa að fara. Gerð hefur verið frumáætlun á tekjum Mosfellsbæjar fyrir árið 2011 og samkvæmt henni verða tekjurnar heldur lægri að nafnvirði heldur en á líðandi ári. Þess má geta að útsvarstekjur sveitarfélagsins fyrir árið 2011 eru áætlaðar lægri að nafnvirði en þær voru árið 2008 og þá hefur ekki verið tekið tillit til þeirrar miklu verðbólgu sem verið hefur á tímabilinu. Miðað við þessar forsendur og óbreyttan rekstarkostnað milli ára stefnir í um 240 m.kr. halla á rekstri Mosfellsbæjar árið 2011 eða um 6% af tekjum. Við svo búið má ekki standa og það þarf að brúa þetta bil þannig að ná megi fram hallalausum rekstri á næsta ári. Til þess að takast á við þetta verkefni hefur bæjarráð samþykkt verklag og leiðir við fjárhagsáætlunarvinnuna. 1. Gerð er hagræðingarkrafa um 1% af útgjöldum (40 mkr. ) á alla rekstrarliði bæjarins. 2. Gert er ráð fyrir að breyting á þjón- ustustigi leiði til 4% lækkun kostnaðar (160 mkr.). Þetta eigi annarsvegar sér stað með því að breyta verkefnum eða leggja þau af og hinsvegar með því að breyta fyrirgreiðslum sem sveitarfélagið veitir 3. Gert er ráð fyrir að tekjur aukist um 1% (40 mkr.) með hækkun á gjaldskrám og/eða sköttum. Stöndum saman og tökum þátt Það ætti að vera öllum ljóst að hér er verðugt verkefni að takast á við, verkefni sem ekki verður auðvelt en nauðsynlegt er að ljúka. Þetta verður ekki gert nema allir leggist á eitt og allar leiðir verði skoðaðar. Á vefsíðu Mosfellsbæjar er hægt að koma með tillögur að hagræðingu og hvet ég íbúa til að taka þátt í því verkefni. Einnig verður haldinn sérstakur íbúafundur nk. þriðjudag þar sem farið verður yfir verkefnið á faglegum nótum og skipt í hópa þar sem ræddar verða mögulegar sparnaðarleiðir og það sem alls ekki má spara. Samstaða er mikilvæg á tímum sem þessum. Bæjarstjórn hefur auðnast það á undanförnum tveimur árum að vera samstíga og hefur fjárhagsáætlun verið lögð fram sameiginlega af öllum flokkum. Að því er einnig stefnt staðfastlega nú. Mosfellsbær mun leggja sig eftir því hér eftir sem hingað til að styðja við íbúa og starfsmenn í samræmi við umsvif og getu sveitarfélagsins. Saman munum við halda uppi áframhaldandi góðri þjónustu við íbúa en ekki síður minna hvert annað á að styðja við bakið á hvert öðru. Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Fjárhagsáætlun við erfiðar aðstæður Stoltir leikmenn Aftureldingar. Efri röð: Birgir Freyr Ragnarsson, John Andrews, Wentzel Steinarr R Kamban, Gunnar Davíð Gunnarsson og Helgi Bergmann. Neðri röð: Snorri Helgason, Magnús Már Einarsson, Atli Freyr Gunnarsson, Sigurbjartur Sigurjónsson Samið við meistaraflokksleikmenn Meistaraflokksráð Aftureldingar skrifaði í vikunni undir samninga við níu leikmenn sem leika munu áfram knattspyrnu fyrir félagið. Á næstu vikum er stefnt að því að klára samninga við nokkra til viðbótar. Brynja Rögn og Emma Íren tóku þátt í „kaupmaður einn dag” í Smáralindinni og söfnuðu 4.080 kr. til styrktar Skála- túnsheimilinu í Mosfellsbæ. hlutaVelta

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.