Mosfellingur - 12.01.2006, Side 16
Já, takk fyrir það. Já, haldiði að
kúturinn eigi ekki bara afmæli í dag...
Ha?! Já, ég er bara orðinn 23 ára
gamall, úff ff þetta er fl jótt að gerast.
Mér fi nnst vera svona þrjú ár síðan ég
var með hor í nefi nu inni á skrifstofu
hjá Birgi skólastjóra.
Ég var mikið að spá í að taka ein-
hvern pistil á alvarlegu nótunum og
með pólitísku ívafi og einhverju, en
ég á afmæli og nenni því ekkert. Ég
vil vera skemmtilegur á afmælinu
mínu. Já, í staðinn ætla ég að láta
hugann reika. Ég ætla ég að lýsa
fyrir ykkur draumaafmælisdeginum
mínum, eins og mér líður akkúrat
núna. Ég bæti líka inn í dæmið að ég
gæti galdrað og fl ogið og svona basic
afmælisdraumadæmi?
Þetta væri klárlega sólríkur
sumardagur, heitur og fínn. Ég vakna
snemma og fæ mér eitthvað snarl.
Spranga svo aðeins um á naríunum
og læt illa og hlusta á tónlist hátt og
svona. Því næst færi ég á fund með
fjölskyldunni minni í svona bröns
pakka. Ég myndi hlæja mjög mikið
og vera fyndinn og svona. Eftir stað-
fastan morgunverð myndi ég
leggjast í sófann, losa beltið
og horfa á Dumb and Dumber. Svo
er dyrabjöllunni hringt. Þar er engin
önnur en Anna Rakel Róbertsdóttir,
fallegasta kona landsins. Við förum
saman á línuskauta í asnalega góðu
veðri. Ég er í svona 70´s stuttbuxum
með svona klauf upp mjöðina og gott
ef að Anna er ekki bara í tja...þveng.
Það er ótrúlega gaman og það er
svona „þím song” í gangi á meðan
við skautum um, sem að heyrist bara
að himnum ofan. Við hlæjum og dett-
um jafnvel í það að kitla hvort annað.
Svo fer ég heim og sest aðeins niður.
Hlusta á Kraftwerk og fæ mér jafn-
vel einn kaldan. Kallinn skellir sér
í sitt fínasta púss og fyrir utan bíður
limmi, ekki slæmt ha...? Þú vildir
kannski bara vera ég um það bil
núna?
Limminn fer með mig í
Grillið á Sögu. Þar eru allir
félagarnir mættir, allir með
tölu. Við látum illa og
borðum góðan
mat, segjum
d ó n a l e g a
brandara og
hetjusögur.
Eftir það er
ferðinni
heitið
í
Hlégarð, en ekki hvað? Þar eru helj-
arinnar veisla í gangi til heiðurs
mér...yes marr! Þarna eru allir vinir
mínir, kunningjar og allir sem að mér
líkar vel við. Sem eru reyndar bara
allir sem ég þekki nánast því mér er
eiginlega ekki illa við nokkurn mann.
Ohhh, þetta er svo gott kvöld. Ekkert
kjaftæði og einhver rúnkari með
matjó stæla útaf því að honum var
hafnað sem barni. Það besta er að ég
ræða tónlistinni alveg sjálfur, það eru
bara einhver svona hugtengsl í gangi
þar. Og svo þegar leiðinlega fulla
stelpan kemur að biðja um eitthvað
ömurlegt lag með Landi og sonum,
þá er ég bara með svona fjarstýringu í
vasanum og set á mjút...yes marr!
Gott ef að kvöldið endar svo
ekki bara á því að maður fær
fylgd heim í faðmi einhverrar
yndislegrar dömu.
Þetta væri sannkallaður
draumadagur, það verður ekki
annað sagt.
Svo vakna ég upp frá
draumnum, fer út að
skafa af bílnum og dett
í leiðinni...hehe, nei
lífi ð er yndislegt og
gleðilegt ár, kæru
lesendur....
Innrás í útvarpið
Gulldrengirnir Eggert Páll Ein-
arsson (Eddi Pé) og Steinþór Hróar
Steinþórsson (Steindi Junior) eru
komnir með útvarpsþátt á út-
varpsstöðinni Flass Fm 104.5. Þáttur-
inn heitir Tár, bros & alkahól er öll
föstudagskvöld frá kl.18 – 20. Steindi
sagði við blaðamann að þetta væri
ekki ósvipaður vettvangur og blaða-
mennskan en eins og fl estir vita var
hann annar ritstjóri bæjarblaðsins
Lókal. Steinda fi nnst gott að tala um
það sem liggur honum á hjarta til
þess að fá útrás og gott að geta það
vikulega. Eddi sagði að hann hafi
gaman af því að sprella og bulla í
þjóðinni og stefnir á alheimsyfi rráð
í framtíðinni. Þátturinn er fjölbreyti-
legur og þeir félagarnir eru með
marga fasta liði. Fremstur á meðal
jafningja er sjálfur Hemmi Gunn
sem þeir hringja í í hverjum þætti
og spjalla við hann um daginn og
veginn. Steindi sagði: „Hemmi Gunn
er óbeint þriðji aðilinn að þættinum.
Við lítum á hann sem fósturpabba
Mosfellinga enda ól hann okkur upp í
gegnum sjónvarpið og hjálpaði okkur
í gegnum erfi ða tíma með geisladisk
sínum Frískur og fjörugur. Hemmi sér
líka um allar auglýsingar fyrir okkur
og okkur þykir afar vænt um kallinn.”
Þetta er grínþáttur af bestu gerð
að sögn þeirra
félaga og hvetja
þeir alla til þess
að hlusta og styðja sína menn. Það
er bara málið fyrir okkur Mosfellinga
að stilla á Flass.net Fm104.5 og njóta
þáttarins.
Mosfellingur - Unga fólkið16
w
w
w
. p
aa
ca
rt
.c
om
Pælingar
Mr. D & Chris
Ásgeir „Slææ" Jónsson
er afmælisbarn dagsins
og veit af því
asgeir@mosfellingur.is
Fyrst þegar við vorum beðnir
um að skrifa í Mosfelling þá
fórum við strax að pæla hvað
vantar í Mosó? Við komumst
strax að þeirri niðurstöðu að það
vantar klárlega betri aðstöðu
fyrir hljómsveitir. Það
er engin aðstaða sem
að við vitum um, og
fl estir spila í bílskúrum
og gera foreldra brjálaða.
Það hefði hentað að nota
Björgunarsveitar-húsið
sem æfi ngaraðstöðu í
staðinn fyrir að rífa það
og við vitum að Edda
í Bólinu var búin að
berjast fyrir því, en fékk
engu framgengt. Við sjálfi r get-
um ekki spilað jafn mikið og við
viljum, vegna foreldra, plássleysis
og nágranna. Við vitum að önnur
bæjarfélög bjóða uppá þessa
aðstöðu og aðstaðan er vel nýtt.
Það er mikil tónlistariðkun í Mosó
og hafa margir frábærir tónlist-
armenn komið héðan, svo
sem meðlimir úr Sigurrós,
Gildran, Bjarni og Bjössi í
Mínus, Binni í Future Fut-
ure, hin frábæra hljómsveit
Astara, Dóri DNA, Ing-
var sólómeistari og fl eiri
frábærir tónlistarmenn.
Þarseinasta sumar var
okkur gefi ð skate-park og
það hefur verið mikið notað,
þar komu meðlimir úr
FLIP-teaminu og héldu þar
keppni. Nú vonumst við til
að eitthvað verði gert í þess-
um málum og við erum
vissir um að hljómsveit-
araðstaða verði ekki síður
notuð ef við fáum hana. Við
kveðjum með stæl, ekkert
væl, nema um hljómsveit-
araðstöðu.
Okey, ég hef farið á matsölustaði
svengri en þriðja heims barn og ég
held að mér sé óhætt að segja að ég
sé alltaf kurteis. Hvað er það með fólk
sem hefur dálæti af því að vera dóna-
legt við afgreiðslufólk? Ég fór með
heimsendingu til fólks um daginn
í fl ott einbýlishús. Fyrir utan stóðu
tveir nýlegir og fl ottir bílar. Ég hringdi
bjöllunni og á móti mér tók kona sem
var með höndina fulla af peningum.
Ég sagði við hana, mjög kurteislega:
„Þetta gera 4.035 kr.” Henni virtist
bregða mjög við þessi tíðindi og hljóp
inn. Á meðan stóð ég þarna eins og
bjáni í ískulda og vissi ekki hvaðan á
mig stóð veðrið.
Eftir skamma stund kom
maðurinn hennar og virtist vera alveg
brjálaður og hreytti út úr sér: „Hvernig
er það með þjónustuna þarna hjá
ykkur, getið þið ekki gefi ð upp rétt verð
í símann?!!!” Ég varð hálfaumingja leg
þar sem ég hafði ekki guðmund hvað
maðurinn babblaði um en fer skjótt
að halda að þarna hafi orðið einhver
stór samskiptamistök hjá honum og
yfi rmanninum mínum sem tók við
pöntuninnni.
En annað kom í ljós þegar
maðurinn öskraði á mig: „ÞÚ sagðir í
símann 4.000!!!”
Það sást í kokið á mér þar sem
hakan féll snögg-
lega í kalda stétt-
ina og mig langaði
virkilega að spyrja
fúskinn hvort honum
væri alvara. ÞETTA
VORU 35 KR!!! En þar
sem siðprúðri stúlku eins
og mér hefur alltaf verið
kennt að vera „dönnuð” hélt ég
í mér.
Því næst tók hann úr vasa sínum
lúku af klinki þar sem greinilega glitti
í ógrynni af tí- og fi mmköllum. Á þess-
um tímapunkti hélt ég að mér væri
borgið en sagan hélt áfram þeg ar
hann tók EINA hundraðkallinn á
staðnum og vældi út úr sér: „Þú
verður þá bara að hirða þetta,
þetta er það eina sem ég
á.” (Eins og hann kæmi út
í tapi!!!). Til allrar minnar
lukku var ég með skipti-
mynt sem bjargaði lífi
mínu þennan viðburða-
ríka dag.
En allra best
var þó þe gar
k o n a n
hans fór
að biðja
mig af-
sökunar
á látunum í kall-
inum. Kellingargreyið hefur roðnað
nirðrí rassgat.
Boðskapurinn í þessum pistli
er því þessi: Kæru bæjarbúar,
sýnið þið kurteisi þó
ekki sé nema bara
til þess að hlífa
öðrum fjölskyldu-
meðlimum við
skömminni og/
eða til að þurfa
ekki að lesa
um skandala
ykkar í Mos-
fellingi! ;)
BLAÐAMANNAKLÚBBUR BÓLSINS
Fomaður: Gísli Már Guðjónsson
Mosó?
Tónlistarbærinn
Kúnninn hefur alltaf
rétt fyrir sér
Hvernig getur
hestur haldið á
tennisspaða?
Til hamingju með
afmælið Slææ
Opið: sunnud. - mánud. 11:30-23:30 og föstud. - laugard. 11:30-01:00