Morgunblaðið - 03.09.2018, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 3. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 206. tölublað 106. árgangur
VARÐVEITIR AFRIT
AF ÍSLENSKU EFNI
Á INTERNETINU UNA SÉR VEL Á FJÖLLUM
KONURNAR
EIGA ENN
MÖGULEIKA
ANNA LIND OG PÁLÍNA ÓSK 12 ÍÞRÓTTIR 2ÍSLENSKA VEFSAFNIÐ 26
Rósi misst neistann og vonina innra með sér
sem hann bjó yfir eftir útskrift frá starfsbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir þremur
árum. Umfjöllunin varð til þess að Rósi fékk
einn drauma sinna uppfylltan í gær en móðir
hans hafði greint frá því að Rósi hefði mjög
gaman af því að fá að fara í heimsókn til
slökkviliðsins. „Eftir að greinin um Rósa birt-
ist í Morgunblaðinu var haft samband við mig
og mér bent á þetta. Í kjölfarið höfðum við
samband við móður hans sem gaf okkur grænt
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Ungt fólk með þroskahömlun og takmarkandi
staða þess á atvinnumarkaði hefur verið í um-
ræðunni að undanförnu. Virðast einstaklingar
með þroskahömlun eiga erfitt með að finna
starf við hæfi eins og staðan er í dag. Í um-
fjöllun Morgunblaðsins í síðastliðinni viku
greindu foreldrar Guðbergs Rósa Kristjáns-
sonar frá því að vegna aðgerðarleysis hefði
ljós. Við fórum með hann í smáútsýnisferð í
körfubíl og svo fékk hann að fara í búning og
setja á sig hjálm, þetta hefðbundna. Svo fékk
hann að fara í löggugalla og setjast aftur í
nýjan löggubíl og fór rúnt með þeim. Þetta
hefði ekki getað heppnast betur,“ segir Ágúst
Guðmundsson, slökkviliðsmaður í Reykjavík.
Segir Ágúst alla hafa haft gaman af heim-
sókninni og gleði Rósa hafi verið ósvikin.
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Guðbergur Rósi fékk að stýra körfubíl slökkviliðsins. Hann hefur verið atvinnulaus í þrjú ár en honum hafa nú borist nokkur atvinnutilboð.
Fékk draum sinn uppfylltan
Guðbergi Rósa var boðið í heimsókn til Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu
MUmfjöllunin „meiriháttar og þörf“ » 10
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Samningar hafa náðst um smíði á
tveimur 88 metra uppsjávarveiði-
skipum fyrir Samherja hf. og Síld-
arvinnsluna hf. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá dönsku skipasmíða-
stöðinni Karstensens Skibsværft
(KS) en samningarnir eru gerðir
með fyrirvörum, m.a. um samþykki
stjórna og fjármögnun á smíðunum,
og hafa því ekki tekið gildi.
Búist er við að samningarnir taki
gildi á morgun, 4. september, sam-
kvæmt upplýsingum frá danska fyr-
irtækinu.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, og Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri Síldarvinnsl-
unnar, staðfestu fregnirnar í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi en
vildu ekki gefa frekari upplýsingar
um málið.
„Þessir samningar eru stór áfangi í
innreið Karstensens Skibsværft á ís-
lenskan markað,“ segir í kynningu
danska fyrirtækisins. Ef allt gengur
eftir verður hið nýja skip, Vilhelm
Þorsteinsson, afhent Samherja 15.
júní 2020, og skipið Börkur afhent
Síldarvinnslunni hálfu ári seinna, 15.
desember.
Skipskrokkar sem KS hafa unnið
við hafa verið smíðaðir í Póllandi og
síðan dregnir til Skagen í Danmörku
þar sem smíði er kláruð, og má gera
ráð fyrir því að sama fyrirkomulag
verði á smíðinni á nýju skipunum
tveimur.
Ekki fengust upplýsingar um
kaupverð skipanna en reikna má
með að skip af þessu tagi kosti um
fjóra milljarða íslenskra króna
hvort.
14,4 milljarðar í hagnað
Hagnaður af rekstri Samherja
nam um 14,4 milljörðum króna á
árinu 2017 og verða 8,5% af hagnaði
greidd í arð til hluthafa félagsins.
Þetta kemur fram á vef Samherja
en þar segir einnig að samanlagðar
tekjur dóttur- og samstarfsfélaga
fyrirtækisins, sem eru í fimmtán
löndum, hafi numið um 77 milljörð-
um króna á sama tíma.
Rúmur helmingur starfsemi Sam-
herja er erlendis en í fyrra var félag-
inu skipt í tvö félög, Samherja hf. og
Samherja Holding hf. Innlend starf-
semi heyrir undir Samherja hf. en
Samherji Holding tók við erlendum
eignum.
Þá segir einnig að Samherji og
starfsmenn hafi á liðnu ári greitt um
5,1 milljarð króna til hins opinbera í
formi skattgreiðslna.
Danir smíða tvö ný skip
Samherji og Síldarvinnslan hafa gert samning við Karstensens Skibsværft í
Danmörku Tvö 88 metra uppsjávarveiðiskip að verðmæti fjórir milljarðar hvort
Þrír mánuðir eru nú liðnir frá því
dyrnar voru opnaðar að Granda –
mathöll í húsi Sjávarklasans við
Grandagarð. Samkvæmt nýjustu
tölum eru gestir Granda – mathall-
ar orðnir 115.000 þessa fyrstu þrjá
mánuði. Lauslega reiknað var því
gestafjöldinn 1.250 á hverjum degi í
sumar.
„Þessi aðsókn er framar björt-
ustu vonum en hún lýsir þeirri
stemningu sem hefur myndast. Það
er kominn götumatarfílingur í
landsmenn,“ segir Franz Gunnars-
son, viðburða- og markaðsstjóri
mathallarinnar. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mathöllin Fullt alla daga í sumar.
1.250 gestir á dag
í Granda – mathöll
Í haust er von
á stjórnar-
frumvarpi sem
leysir úr álita-
málum tengdum
tilgreindri sér-
eign vegna
hækkunar á mót-
framlagi at-
vinnurekenda í
lífeyrissjóði.
Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ, segir að viðræður
hafi átt sér stað við fjármálaráð-
herra um málamiðlunartillögu sem
lögð var fram seint á síðasta ári.
Tillagan felur í sér að sjóðsfélögum
verði heimilt að flytja tilgreindan
séreignarsparnað frá skyldutrygg-
ingarsjóði til annars vörsluaðila
sem býður upp á tilgreinda sér-
eignarsparnaðarleið. » 16
Gylfi
Arnbjörnsson
Viðræður um mála-
miðlunartillögu
Halldór Auðar
Svansson, fyrr-
verandi borgar-
fulltrúi Pírata,
segist fallast á
úrskurð kæru-
nefndar jafnrétt-
ismála þess efnis
að brotið hafi
verið á Ástráði
Haraldssyni
hæstaréttarlög-
manni við ráðningu borgarlög-
manns í fyrra. Hann segist játa að
hann sé valdníðingur, vilji Við-
skiptablaðið setja málið þannig
upp, og segir mikilvægt að geta við-
urkennt sök sína eigi maður hlut að
slíku máli.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti
Pírata, segist stolt af Halldóri og
hræðist ekki viðbrögðin. »2
Fellst á að vera
valdníðingur
Halldór Auðar
Svansson