Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Skúli Margeir Óskarsson, fyrrverandi heimsmetshafi í kraftlyft-ingum, á 70 ára afmæli í dag. Hann er í hópi helstu afreks-manna Íslendinga í íþróttum. Hann keppti í lyftingum frá 1970, setti fjölda Íslandsmeta sem hann á flest enn, setti fjölda Norður- landa- og Evrópumeta og eitt heimsmet í réttstöðulyftu árið 1980. Hann var kosinn íþróttamaður ársins árið 1978 og aftur 1980. „Ég var mjög heppinn lyftari því ég meiddist lítið á ferlinum.“ Skúli fæddist á Fáskrúðsfirði. Hann var í sveit á unglingsárunum, vann á síldarplönum og í fiski á Fáskrúðsfirði, var á vertíð á Seyðis- firði í eitt ár og í Vestmannaeyjum 1973 en flúði þá undan gosinu til Reykjavíkur og hefur verið búsettur þar síðan þá. Hann starfaði hjá Nýju blikksmiðjunni í Ármúla 1973-79 og var næturvörður hjá Baugi 1979-2003 en var staðarhaldari orlofsbúða Landsbankans í Selvík í Þrastaskógi 2003-2008. „Svo endaði ég sem húsvörður í Landsbank- anum í Austurstræti og hætti þar 67 ára. Ég fékk síðan heilablóðfall og hjartastopp viku seinna. Það var ekki í planinu og ég hef ekki verið alveg heill síðan þetta gerðist en er orðinn sjálfbær og hef náð mér vel upp miðað við marga aðra. Um leið og ég gat fór ég að hreyfa mig, byrjaði í sundinu og hef aðeins tekið í lóðin en geri ekki mikið af því, má það eiginlega ekki, Aðalatriðið er að hreyfa sig.“ Kona Skúla er Svanhvít Hrönn Ingibergsdóttir, húsmóðir og nudd- ari. Dóttir Skúla og Svanhvítar Hrannar er Sara María. Stjúpdætur eru Lilja Björg og Hjaltey. Barnabörnin eru átta. Skúli á tvíburabróð- ur, Sigurþór vélstjóra, sem er búsettur í Njarðvík. Hann fagnar því einnig 70 ára afmæli sínu í dag. Skúli ætlar ekki að gera neitt sérstakt í dag út af afmælinu en þau hjónin fara í sólina í enda mánaðarins í tilefni af 70 ára afmæli þeirra beggja og öll stórfjölskyldan með. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Lyftingakappinn Skúli tekur í lóðin, en myndin er frá því í vor. Hann gerir þó lítið af því að lyfta en er duglegur að stunda aðrar æfingar. Setti fjölda Íslands- meta og á þau flest enn Skúli Óskarsson er sjötugur í dag B orgþór Vestfjörð Kjærnested fæddist 3. september 1943 í Sand- gerði. Hann ólst upp í Ásum í Stafholts- tungum en var fimmtán ára fjöl- skyldan þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. Borgþór lauk prófi frá Gagnfræða- skóla Austurbæjar 1961 en stundaði nám við lýðháskóla í Borgå í Finn- landi 1961-1962. „Ég fékk styrk til að fara í lýðháskóla á Norðurlöndunum og valdi Finnlandi, því mér fannst ég vita allt um hin norrænu löndin. Þetta var mikil upplifun.“ Síðan hóf hann tölvunám hjá IBM í Finnlandi 1970-71 og nám í dagskrárgerð og fréttamennsku hjá finnska útvarpinu YLE 1974-75. Borgþór var fréttarit- ari finnska útvarpsins á Íslandi 1975- 84, fréttaritari Norðurlanda á vegum Borgþór V. Kjærnested, rithöf., þýðandi og leiðsögum. – 75 ára Í Sankti Pétursborg Borgþór ásamt Pétri og Bethinu og Sólveigu Fríðu og Tryggva. Skráði Sögu Finnlands Feðgin Borgþór ásamt Ann-Marie skipstjóra, en móðir hennar er finnsk. Hildur Lilja Hjaltadóttir hélt tombólu fyrir utan Nóatún og safnaði 1.845 kr. Hún færði Rauða krossinum á Íslandi söfnunarféð. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama og sál Laugarnar í Reykjavík Frá morgnifyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.