Morgunblaðið - 03.09.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Borið hefur á því að fjöldi aðdáenda
Stefáns Karls Stefánssonar leikara,
sem féll nýverið frá, hafa óskað eftir
því að reist verði stytta af honum í
Hafnarfirði, heimabæ Stefáns. Tæp-
lega hálf milljón manns hefur skrifað
undir í undirskriftarsöfnun til stuðn-
ings málsins, þar af fjölmargir er-
lendir aðdáendur Stefáns.
Stofnað var til undirskriftasöfnun-
arinnar á vefsíðunni change.org. Á
síðu undirskriftasöfnunarinnar seg-
ir: „Undirskriftasöfnun fyrir leikar-
ann Stefán Karl Stefánsson, um að
reist verði stytta í heimabæ hans,
Hafnarfirði á Íslandi, svo að arfleifð
hans og heiður lifi um alla eilífð.“
Málið var tekið til umræðu á fundi
bæjarráðs Hafnarfjarðar, að sögn
Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvort styttan
verði reist.
Stefán Karl féll nýlega frá eftir
tveggja ára baráttu við gallganga-
krabbamein, 43 ára að aldri. Jarð-
neskum leifum hans var dreift í hafið
á föstudag að hans ósk.
Leiklistarferill Stefáns hófst í
grunnskóla Hafnarfjarðar þar sem
hann lék í skólaleikritum en hann fór
að leika með Leikfélagi Hafnarfjarð-
ar 12 ára að aldri. Frammistaða hans
í leikritinu Með fulla vasa af grjóti
árið 2000 vakti mikla athygli en leik-
ritið var sýnt 160 sinnum. Stefán
Karl lék aðalhlutverk í leikritinu
Glanni glæpur í Latabæ árið 1999
sem varð innblástur sjónvarpsþátt-
araðarinnar Latibær. Þar túlkaði
hann Glanna glæp áfram og á þeim
vettvangi naut hann mikilla vinsælda
fólks hvaðanæva úr heiminum.
veronika@mbl.is
Óskað eftir styttu
af Stefáni Karli
Nærri 500.000 manns hafa skrifað
undir í undirskriftasöfnun á change.org
Morgunblaðið/RAX
Þjóðargersemi Stefán Karl var
einn ástsælasti leikari þjóðarinnar.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Í síðustu viku birtist umfjöllun í
Morgunblaðinu um mál Guðbergs
Rósa Kristjánssonar eða Rósa eins
og hann er kallaður. Rósi er ungur
einstaklingur með þroskahömlun og
útskrifaðist af starfsbraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti fyrir
þremur árum. Í umfjölluninni
greindu foreldrar hans frá úrræða-
leysi sem Rósi og fjölmargir í hans
stöðu stæðu frammi fyrir, þ.e. að
finna ekki starf við hæfi og þyrftu því
að sitja aðgerðarlausir heima fyrir.
Að sögn móður Rósa er vinna hjá
lögreglunni eða slökkviliðinu meðal
draumastarfa hans og greindi hún
frá því að Rósi myndi „lifa lengi á
því“ að vera boðið á rúntinn með lög-
reglu- eða slökkviliði.
Í kjölfarið hafði Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins samband við for-
eldra Rósa og bauð honum á rúntinn
og í vettvangsferð á stöðina sína.
Faðir Rósa, Kristján Arnar Jak-
obsson, fór með syni sínum á rúntinn
í gær og var gífurlega ánægður með
framtakið. „Þetta gekk æðislega vel
og hann var í skýjunum, æðislegar
móttökur og frábært fólk þarna.
Hann var náttúrlega mjög spenntur,
það var ekki sofið neitt rosalega mik-
ið í nótt,“ segir Kristján glaður í
bragði.
Hann segir að þau fjölskyldan hafi
fengið þónokkur viðbrögð frá ýmsum
aðilum í kjölfar umfjöllunar blaðsins í
síðustu viku.
Ýmis atvinnutilboð borist
„Við erum búin að fá símtal frá
Ríkislögreglustjóra þar sem Rósa er
boðið að kíkja á aðstöðuna hjá þeim
en þeir geta boðið upp á störf tengd
þrifum á bílum og þess háttar. Einnig
hafði Lögreglustjórinn á Suður-
nesjum samband og honum var boðið
í smátúr þar.“ Auk þess hafi Sund-
laug Grafarvogs komið sér í samband
við fjölskylduna og honum boðin
vinna þar. „Sá sem hringdi þaðan er
greinilega vel að sér í þessum málum
og ég bind vonir við það sem hann er
að bjóða. Svo það er ýmislegt sem
hefur dúkkað upp,“ segir Kristján.
Næstu skref hjá Rósa og foreldrum
hans eru að skoða þessi tilboð og
meta stöðuna. Kristján segir um-
ræðuna um atvinnumöguleika þros-
kaskertra aðila hafi tekið stökk að
undanförnu og fagnar því.
„Fólk er að hnippa í mann og segir
að það hafi lesið greinina svo hún hef-
ur greinilega vakið athygli víða. Þessi
umfjöllun er auðvitað alveg meiri-
háttar og þörf.“
Sáttur Rósi fékk að sitja í lögreglubíl og kíkja á stöðina. Aðstoð Slökkviliðsmaðurinn Ágúst hjálpar Rósa í gallann. Hápunktur Rósi fékk að stýra körfubíl slökkviliðsins.
Umfjöllunin „meiriháttar og þörf“
Guðbergur Rósi er ungur strákur með þroskaskerðingu og hefur verið atvinnulaus frá útskrift
Honum hafa nú borist nokkur atvinnutilboð í kjölfar umfjöllunar Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Eggert
Alvara Móðir Rósa sagði að hann dreymdi m.a. um að starfa hjá lögreglunni og slökkviliðinu. Í kjölfarið hafði
slökkviliðið samband og bauð honum í heimsókn. Rósa hefur nú verið boðið í starfsheimsóknir hjá lögreglunni.