Morgunblaðið - 03.09.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 03.09.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt i 595 1000 Frá kr. 89.995 ing aá slí ku .A th. að ve rð Agadír 25. OKTÓBER Í 9 NÆTUR Frá kr. 99.695 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Landinn hefur tekið okkur mjög vel. Hér er alltaf þétt setið,“ segir Franz Gunnarsson, viðburða- og markaðs- stjóri hjá Granda – mathöll. Þrír mánuðir eru nú liðnir frá því dyrnar voru opnaðar að Granda – mathöll í húsi Sjávarklasans við Grandagarð. Óhætt er að segja að þessi viðbót við veitingahúsaúrval Reykjavíkur hafi fengið góðar við- tökur. Samkvæmt nýjustu tölum eru gestir Granda – mathallar orðnir 115.000 þessa fyrstu þrjá mánuði. Lauslega reiknað var því gestafjöld- inn 1.250 á hverjum degi í sumar. „Þessi aðsókn er framar björtustu vonum en hún lýsir þeirri stemningu sem hefur myndast. Það er kominn götumatarfílingur í landsmenn,“ seg- ir Franz í samtali við Morgunblaðið. Gestir mathallarinnar geta valið á milli níu söluaðila sem bjóða upp á mismunandi mat. Staðirnir eru Fjár- húsið, Fusion Fish & chips, Kore, Lax, Rabbar bar- inn, The Gastro Truck, Víetnam, Micro Roast vín- bar auk svokall- aðs Pop Up-vagns þar sem nýr sölu- aðili fær að spreyta sig í hverjum mánuði. Í dag kemur til að mynda staður þar sem boðið verður upp á „dumplings“ eða smárétti frá Tíbet. „Við völdum þessa veitingastaði af kostgæfni. Hundruð sóttu um að fá inni en einungis átta fengu pláss og það hefur sannað sig að valið gekk vel. Sjávarklasinn gengur mikið út á frumkvöðlastarf og þessir aðilar passa þar inn. Þetta eru oft einyrkjar eða fjölskyldur sem bjóða nýjungar í matargerð hér en úr íslensku hrá- efni.“ Franz segir að það hafi verið nýtt fyrir mörgum Íslendingum að þarna er ekki boðið upp á hefðbundnar borðapantanir og mestmegnis er set- ið á löngum bekkjum við stór borð. „Þarna siturðu við hlið jafnvel blá- ókunnugs fólks og deilir rýminu. Það var spennandi að sjá hvernig fólk tók þessu í fyrstu en nú hafa flestir vanist þessu. Þetta skapar skemmtilega stemningu, að fólk sé að spjalla sam- an þó að það þekkist ekkert.“ Mathöllin hefur bæði notið vin- sælda í hádeginu og á kvöldin. Segir Franz að vinsælt sé að sitja lengur á kvöldin enda er góður vínbar í húsinu og mörgum finnst ómótstæðilegt að njóta útsýnisins við höfnina. Hvað framtíðina varðar segir Franz að sumarið hafi farið í að anna eftirspurn og nú verði horft fram á veginn. „Þetta var alger sprengja í aðsókn og við þurftum að læra inn á rýmið. Nú má búast við því að það komi nýir réttir inn hjá veitingastöð- unum. Svo munum við bráðlega kynna fjölskylduvæna dagskrá á sunnudögum. Það verður unnið í samstarfi við Hlemm – mathöll og verður mjög skemmtilegt.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússson Grandi - mathöll Landsmenn hafa mikinn áhuga á götumat og aðsókn hefur farið fram úr björtustu vonum. Franz Gunnarsson 115 þúsund gestir í mathöllina í sumar  Aðsókn í Granda – mathöll framar björtustu vonum fyrstu þrjá mánuðina  1.250 gestir dag hvern í sumar Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Við sem kennarar höfum ekki alltaf verið örugg um hvað við eigum og megum tala um við nemendur. Hvernig eigum við að taka „Me too“- umræðuna eða umræðuna um klám?“ segir Guðrún Ebba Ólafs- dóttir, grunnskólakennari og leið- beinandi á námskeiðinu Viðkvæm álitamál og nemendur. Vegna auk- innar umræðu hitamála, t.d. hryðju- verkaógn í Evrópu, sá Evrópuráðið ástæðu til að gefa út handbók fyrir kennara um hvernig best sé að tak- ast á við nýju aðstæðurnar, að sögn Guðrúnar. Laugalækjaskóli og Réttarholts- skóli standa fyrir námskeiðinu á laugardaginn næstkomandi. Nám- skeiðið, sem er ætlað kennurum og skólastjórnend- um á öllum skóla- stigum, fjallar um hvernig skuli tek- ið á erfiðleikum sem kynnu að koma upp þegar viðkvæm álitamál eru til umræðu innan veggja skólastofunnar. Námskeiðið er byggt á efnisatriðum nýrrar hand- bókar, Viðkvæm álitamál og nem- endur, sem mennta- og menningar- málaráðuneytið mun gefa út á rafrænu formi, í þýðingu Guðrúnar Ebbu. Bókin er ætluð kennurum og tilgangur hennar er að styrkja þá og efla í því að ræða umdeild málefni. Í henni kemur fram að skapa þurfi griðastað í skólastofunni þar sem nemendur geti rætt ýmis álitamál frjálsir og óhræddir. Þar er einnig greint frá kennsluaðferðum og leið- um sem stuðla að opinni umræðu þar sem virðing ríkir. Nemendur þurfa að geta verið óhræddir að spyrja spurninga um hitamál, það er ekki hægt að þagga þau niður,“ segir Guðrún Ebba. Hún segist jafnframt skilja betur mikilvægi þess að leyfa nemendum að vera óhræddir við að tjá sig eftir að hafa unnið að þýðingu bókarinnar. „Kveikjan að útgáfu bókarinnar er fyrst og fremst umræða um hryðju- verkin sem hafa verið í Evrópu á undanförnum árum. Við höfum ekki alltaf tekið umdeild mál til umræðu, t.d. hryðjuverk, umskurð drengja eða kynþáttafordóma. Skólarnir eru öðruvísi núna og við erum t.d. með börn sem eru að koma úr flótta- mannabúðum.“ Mennta- og menningarmálaráðu- neytið bauð fulltrúum frá Íslandi, tveimur kennurum og tveimur skóla- stjórnendum á námskeið í Útey þar sem handbókin Viðkvæm álitamál og nemendur (e. Teaching Controversi- al Issues) var kynnt. Ný áskorun blasir við kennurum  Námskeiðið „Viðkvæm álitamál og nemendur“ verður haldið á laugardag  Nauðsynlegt að hægt sé að ræða hitamál innan veggja skólans  Mennta- og menningarmálaráðuneytið gefur út samnefnda handbók Morgunblaðið/Hari Umræða Hitamál geta verið til umræðu innan veggja skólastofunnar en hand- bókin leiðbeinir kennurum um hvernig best sé að takast á við þær aðstæður. Guðrún Ebba Ólafsdóttir Öllum tillögum götunafnanefndar á vegum borgarráðs Reykjavíkur um ný heiti á götum sem eru við Landspítalann á Hringbraut hefur verið hafnað. Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hafnaði tillög- unum en nokkuð skiptar skoðanir voru um nöfnin og var því óskað efir nýjum heitum frá nefndinni. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu 17. ágúst þótti nær öruggt að tillögurnar yrðu samþykktar þar sem afar sjaldgæft væri að götunafnanefnd væri beðin um að breyta tillögum að götuheitum. Meðal tillagna sem nefndin lagði til eru Njólagata, Fífilsgata, Hvannargata og Blóðbergsgata og vísa til þekktra planta sem eru taldar hafa verið lækningajurtir. Þá lagði nefndin einnig til nöfn- in Hildigunnargata, Freydísar- gata, Burknagata, Hrafnsgata og Þjóðhildargata. Í nefndinni sitja Guðrún Kvar- an, prófessor emeritus í íslensku við Háskóla Íslands, Ármann Jak- obsson, prófessor í íslensku, Ás- rún Kristjánsdóttir, Borghildur Sturludóttir og Nikulás Úlfar Másson. Tillögum nafna- nefndar hafnað  Hafa óskað eftir nýjum nafnatillögum Maður var dæmdur til tíu mánaða fangelsisvistar, þar af átta skilorðs- bundinna, í Héraðsdómi Norður- lands eystra í síðustu viku fyrir að hafa ráðist að fyrrverandi sam- býliskonu sinni og slegið hana í andlit, læri og mjöðm. Maðurinn var ákærður fyrir að ráðast á konuna á hótelherbergi á marsmorgni í fyrra. Þau höfðu ætl- að að hittast þar kvöldið áður en orðið viðskila og konan hafði að endingu farið þangað ein. Konan sagði fyrir dómi að hún hefði vaknað við það að maðurinn var lagstur hjá henni í rúmið og var að strjúka henni. Hún hefði beðið hann að hætta en hann hefði þá brugðist illa við og slegið hana. Hefði hann síðan haldið barsmíð- unum áfram. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða konunni 800.000 kr. í miskabætur auk málskostnaðar. Dæmdur fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.