Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 2

Morgunblaðið - 03.09.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðurkennir eigin valdníðslu  Halldór segist hafa stutt við valdníðslu  Dóra Björt er stolt af honum og segir hann sýna þroska Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Ég get alveg notað þetta tækifæri til að viðurkenna að samkvæmt mínum eigin stöðlum þá studdi ég þarna við valdníðslu.“ Þetta er meðal þess sem segir í fésbók- arfærslu Halldórs Auðar Svansson- ar, fyrrverandi borgarfulltrúa Pír- ata, sem hann birti í kjölfar skoðanagreinar sem Viðskiptablað- ið birti á vef sínum á föstudag. Grein Viðskiptablaðsins ber yfir- skriftina „Valdníðingur?“ og þar segir m.a.: „Hann nýtti valdastöðu sína sem borgarráðsmaður til að brjóta lög á Ástráði Haraldssyni þegar borgarlögmaður var ráðinn.“ Eins og fram kom í Morgun- blaðinu hinn 13. júlí var úrskurðað gegn Reykjavíkurborg í ráðning- armáli Ástráðs Haraldssonar hæstaréttarlögmanns. Taldi kæru- nefnd jafnréttismála að brotin hefðu verið lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla þar sem kærði þótti ekki hafa sýnt fram á að aðrar ástæður en kyn- ferði hefðu legið til grundvallar ráðningunni. „Er ég valdníðingur?“ „Viðskiptablaðið leggur í raun upp þessa áskorun: „Er ég vald- níðingur samkvæmt eigin stöðl- um?“,“ segir Halldór í samtali við Morgunblaðið og segist vera tilbú- inn að játa það. „Ef þeir vilja leggja þetta þannig upp. Þeir vitna ekki í hvernig er brugðist við svona úrskurðum. Það er mjög mikil- vægt. Þar finnst mér þeir og aðrir hafa verið með mikla varnartil- burði gagnvart skipun í Lands- rétt,“ segir Halldór en eins og víða kom fram á sínum tíma voru tveim- ur umsækjendum, þ.á m. Ástráði Haraldssyni, dæmdar bætur vegna ólögmætrar málsmeðferðar við ráðningu dómara í Landsrétt. Halldór bætir við að það geri illt verra að taka ekki á sig sinn skerf af sökinni og segir: „Það þýðir eig- inlega ekki annað en að segja: „Þetta er aðili sem er til þess bær að skera úr um hvort rétt var gert eða ekki.“ Það gerir stöðuna ennþá verri að fara að þræta fyrir það. Frekar á að viðurkenna að þarna var ekki alveg rétt með farið og taka því.“ „Ég er mjög stolt af Halldóri að viðurkenna þetta. Það sýnir mikinn þroska og það sýnir að hann tekur ekki sína persónu fram yfir það að auka traust á kerfinu,“ sagði Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hún sagðist ekki vera hrædd um að ummæli Halldórs vörpuðu skugga á Pírata og sagði: „Við höfum einmitt talað um að það er oft álitið veikleikamerki að við- urkenna mistök sín. Ég lít á það sem styrkleikamerki því bara með því að viðurkenna mistök þín get- urðu haldið áfram og betrumbætt ferlin. Allir gera mistök, líka stjórn- málafólk.“ Ekki náðist í Dag B. Eggertsson borgarstjóra við gerð fréttarinnar. Halldór Auðar Svansson Dóra Björt Guðjónsdóttir Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is „Við höfum séð mikið af netsvindli sem kallast vefveiðar og það er oft frekar vandað,“ segir Þórir Ingv- arsson, lögreglufulltrúi. Vefveiðar (e.phishing) eru netsvindl þar sem tölvupóstar eru sendir og reynt að plata viðkomandi til að gefa upp lykilorð sitt. Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu hefur nýlega varað við svindlinu en lögreglu bárust ábendingar um svindlið í síðustu viku. Í tilkynningu frá lögreglu segir að fjöldi fólks og fyrirtækja hafi lent í slíku og eru dæmi þess að brotaþolar hafi tapað háum fjár- hæðum vegna þess. Sérstaklega er varað við svokölluðum vefveiðum þar sem reynt er að komast að lyk- ilorði viðtakanda. Þá er tölvupóstur sendur sem inni- heldur hlekk á falska síðu og viðkomandi beð- inn að leiðrétta eitthvað, t.d. í heimabanka. Þá er viðtakandi leiddur inn á síðu sem er eftirmynd heimabanka eða tölvu- pósts viðkomandi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tilgangurinn sé að plata viðtakanda til að setja inn per- sónuupplýsingar sem hægt er að nota til að hafa af honum fé. Þá hafa hótunarbréf verið send í tölvupósti í þeim tilgangi að hafa af fólki fé. Í þeim er jafnvel lykilorð viðtakanda gefið upp og ýmsu hótað til þess að ná í fé frá viðkomandi. Lögreglan hefur bent á að ekki sé mælt með að upphæðin sem beðið er um sé greidd. „Við viljum minna fólk á hvað það er mikilvægt að síð- urnar sem það fer á séu öruggar, með græna merkingu eða með ör- yggisvottun. Fólk á að gæta þess að fara inn á rétta síðu, en ekki falska síðu,“ segir Þórir. „Þetta svindl er alltaf í gangi og er margvíslegt og misraunverulegt. Þegar við verðum vör við að ákveðin aðferð sé notuð frekar en annað þá reynum við að nota miðlana okkar til að vara fólk við því,“ segir hann. Lögreglan birti aðvörun á fésbókarsíðunni Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu og má þar nálgast nánari upplýsingar um svindlið. Vefveiðar viðvarandi vandi í netheimum  Margir hafa lent í fjárhagslegu tjóni vegna netsvindls  Lögreglan minnir fólk á að hafa varann á Netsvindl Margir hafa orðið fyrir netsvindli og þar með fjárhagslegu tjóni. Þórir Ingvarsson Alþjóðalögreglan Interpol hefur gefið út hand- tökuskipun að beiðni íslenskra yfirvalda vegna manns sem grun- aður er um nauðgun. Mað- urinn, Hemn Ra- sul Hamd, fór úr landi áður en ákæra vegna nauðg- unar var birt. Samkvæmt því sem kemur fram á vefsíðu Interpol er Hamd 33 ára gamall Íraki. Hann er 1,77 metrar á hæð og talar bæði sænsku og kúrd- ísku. Sú krafa er gerð að aðildarríki Interpol leiti Hamds og handtaki, þannig að hægt sé að framselja hann til Íslands. Eftirlýstur vegna nauðgunar Hemn Rasul Hamd Ferðamenn sem lögðu leið sína í Reykjadal um helgina fengu margir að upplifa hvurslags veðravíti Ísland getur verið. Þar skiptust á skin og skúrir og átti sumt ferðafólk í vandræðum með að gera upp við sig hvor hlífðarbúnaðurinn væri meira viðeigandi; sólgleraugu eða sjóstakkar. Þessir ferðamenn ákváðu að taka enga áhættu og klæddu sig í jakka og hlupu í skjól. Lentu í öllum veðrum á einu augnabliki Morgunblaðið/Eggert Skin og skúrir á ferðamenn um helgina Seint í fyrrakvöld var tilkynnt um heitavatnsleka í húsnæði Ölgerð- arinnar við Grjótháls. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins tók þrjá tíma að hreinsa upp vatn á gólfum inni í húsinu. Tvær stöðvar sinntu verkefninu og er líklegt að tjónið hafi verið talsvert. Mikið annríki var hjá slökkviliðinu aðfaranótt sunnudags en tveimur tímum fyrir heitavatnslekann hafði verið kallað á slökkviliðið vegna reyks í Stjör- nugrís á Kjalarnesi. Í ljós kom að reykurinn kom frá reykofni sem hafði bilað og var ekki um eldsvoða að ræða. Heitavatnsleki í hús- næði Ölgerðarinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.