Morgunblaðið - 03.09.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Hundruð íbúa borgarinnar Aden í
Jemen héldu út á götu í gær og mót-
mæltu sífellt hærri kostnaði á lífs-
nauðsynjum í landinu. Jemenski ríal-
inn hefur glatað um tveimur þriðju
andvirðis síns gagnvart Bandaríkja-
dollaranum frá árinu 2015, þegar
borgarastyrjöldin sem enn geisar í
landinu braust út.
Fjöldi Jemena hefur hvorki efni á
mat né vatni vegna efnahags-
ástandsins og vegna hafnarbanns sem
er í gildi á hafnir undir stjórn upp-
reisnarhreyfingar Húta. Ríkisstjórn
Sádi-Arabíu gaf ríkisstjórn Abe-
drabbo Mansour Hadi, forseta Jemen,
tveggja milljarða dollara lánapakka í
janúar til að styrkja ríkisbankann.
Ekki tókst þó að styrkja ríalinn til
lengdar og andvirði hans hefur hrap-
að um heil 36 prósent síðan þá.
„Við komum út til að krefjast þess
að hætt sé að gjaldfella ríalinn og
valda okurverði og birgðaskorti,“
sagði mótmælandinn Nasser Awad
við AFP-fréttastofuna. „Ríkisstjórnin
er upptekin við að úthluta ríkisstörf-
um og útnefna fólk í stjórnarembætti,
og á meðan fáum við að þjást í stríð-
inu.“
Aden er aðsetur ríkisstjórnar Hadi
forseta. Höfuðborgin Sana hefur verið
í höndum Húta frá árinu 2015 og þar
reka þeir eigin ríkisbanka.
Hadi í Bandaríkjunum
„Hvar er ríkisstjórnin?“ spurði
Zahra Naser, annar íbúi Aden.
„Hvar eru embættismennirnir og af
hverju eru þeir ekki á götunni til að
hitta fólkið og kynna sér þarfir þess og
vandamál?“
Hvað varðar Hadi forseta er svarið:
Víðs fjarri. Samkvæmt frétt Reuters
fór forsetinn til Bandaríkjanna í gær-
kvöldi til þess að hljóta læknismeð-
ferð. Hadi, sem hefur haft aðsetur sitt
í Ríad í Sádi-Arabíu síðustu árin, ætlar
að vera í Bandaríkjunum þar til eftir
samkomu allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna í lok septembermánaðar.
AFP
Eldur Mótmælendur hafa kveikt í dekkjum í borginni Aden í Jemen.
Veikur gjaldmiðill í stríði
Bágu efnahagsástandi mótmælt í Aden Jemenski ríalinn í frjálsu falli vegna
borgarastríðsins Hadi forseti á leið í læknismeðferð til Bandaríkjanna
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Um 400 manns struku eftir uppþot
úr líbísku fangelsi nærri höfuðborg-
inni Trípólí í gær.
„Föngunum tókst að brjóta upp
hurðina og komast undan,“ sagði líb-
íska lögreglan í tilkynningu um
fjöldaflóttann.
Ekki var tilgreint hvaða glæpi
fangarnir hefðu framið. Að sögn
AFP-fréttasíðunnar voru flestir
fangarnir í fangelsinu ýmist almenn-
ir glæpamenn eða stuðningsmenn
einræðisherrans Muammars Gadd-
afi sem voru handteknir þegar
Gaddafi var steypt af stóli árið 2011.
Samkvæmt talningu líbíska heil-
brigðisráðuneytisins létust að
minnsta kosti 39 og 100 særðust í
átökum sem brutust út milli víga-
hópa sunnan við Trípólí fyrir viku.
Samkvæmt yfirlýsingu Mannrétt-
indavaktarinnar voru að minnsta
kosti 18 hinna látnu óbreyttir borg-
arar og fjórir voru á barnsaldri.
Að nafninu til situr ríkisstjórn
með viðurkenningu alþjóðasam-
félagsins við völd í Trípólí en í reynd
ráða vígahópar yfir stórum hluta
Líbíu. Ríkisstjórnir Bandaríkjanna,
Bretlands, Frakklands og Ítalíu
gáfu frá sér sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem Líbíumenn voru hvatt-
ir til að láta vopnin síga.
Fjöldaflótti
úr líbísku
fangelsi
Olía á eld vopn-
aðra átaka í Trípólí
AFP
Líbía Trípólí hefur logað í vopn-
uðum átökum síðustu vikuna.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Þúsundir Rússa mótmæltu í gær
fyrirhugaðri hækkun á lífeyrisaldri
í Rússlandi. Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti hafði lofað breyting-
um á þessari óvinsælu löggjöf til
að koma til móts við andstæðinga
hennar en virðist ekki hafa tekist
að sefa alla.
Lífeyrisaldurinn á Rússlandi er
miðaður við 55 ára aldur fyrir kon-
ur og 60 ár fyrir karla. Áætlun
rússnesku ríkisstjórnarinnar hafði
verið að hækka eftirlaunaaldur
kvenna upp í 63 ár og karla upp í
65 ár. Vegna mjög neikvæðra við-
bragða Rússa við hugmyndinni
hafði Pútín gert breytingu á frum-
varpinu og nú á aðeins að hækka
eftirlaunaaldur kvenna upp í 60 ár.
Gangi breytingarnar eftir verð-
ur þetta í fyrsta sinn í tæp 90 ár
sem eftirlaunaaldur Rússa er
hækkaður. Frumvarpið var sam-
þykkt á neðri deild rússneska
þingsins í júlí og vakti strax hörð
viðbrögð. Dímítri Medvedev, for-
sætisráðherra Rússlands, segir
breytinguna vera vegna hækkandi
meðalaldurs Rússa og aukinnar
virkni þeirra.
Rússneskir karlmenn ná að
meðaltali aðeins 65 ára aldri sam-
kvæmt frétt AFP. Því er ófyrirséð
hvort margir þeirra fái tækifæri til
að njóta eftirlaunaáranna verði líf-
eyrisaldurinn hækkaður.
Rússneski kommúnistaflokkur-
inn er helsti skipuleggjandi mót-
mælanna. Samkvæmt frétt BBC
mættu um 10.000 manns á mót-
mælasamkomu flokksins í Moskvu.
1.500 manns komu einnig saman á
mótmælaflokki sem miðvinstri-
flokkurinn Réttlátt Rússland boð-
aði til í borginni.
Rússar andmæla óvinsælli löggjöf
AFP
Moskva Rússar flagga fánum
Kommúnistaflokksins á mótmælum.
Hækkun á lífeyris-
aldri mótmælt
Palestínskur mótmælandi kastar
hér heimagerðri sprengju á strönd
við landamæri Gasa og Ísraels.
Stjórnvöld Bandaríkjanna hættu
nýlega við framlög til hjálparstarfs
fyrir Palestínumenn á Gasa. „Pal-
estínskir flóttamenn eru nú þegar
fórnarlömb sem hafa glatað heim-
ilum sínum, lifibrauði sínu og ör-
yggi vegna stofnunar ísraelska rík-
isins,“ sagði palestínski embættis-
maðurinn Hanan Ashrawi.
Ísraelsk stjórnvöld fögnuðu hins
vegar ákvörðun Bandaríkjamanna.
Utanríkisráðherra Jórdaníu harm-
aði ákvörðunina. Jórdaníumenn
hyggjast safna fé fyrir Palestínu-
menn fyrir næsta fund allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna.
Palestína, Bandaríkin
Hjálparstarfi
við Palestínu
hætt
AFP