Morgunblaðið - 03.09.2018, Page 18

Morgunblaðið - 03.09.2018, Page 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2018 ✝ Kristín fæddistí Reykjavík hinn 27. júlí 2016. Hún lést á Barna- spítala Hringsins 24. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar eru Halldór Geir Jensson, f. 20. ágúst 1978, og Birgitta Rut Birg- isdóttir, f. 29. október 1981. Bræður Kristínar eru Brynjar Bjarmi Halldórsson, f. 2. janúar 2003, og Arnór Bjarki Hall- dórsson, f. 25. október 2008. Foreldrar Halldórs Geirs eru Jens Sigurðsson, f. 5. nóvember 1955, og Auður Friðgerður Hall- dórsdóttir, f. 9. nóvember 1957. Móðir Birgittu er Kristín Árnadóttir, f. 3. júní 1963, maki hennar er Hlynur Reimars- son, f. 19. júní 1964. Faðir Birg- ittu er Birgir Henningsson, f. 24. október 1962, maki hans er Gyða Ólafsdóttir, f. 26. febrúar 1966. Kristín verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag, 3. september 2018, klukkan 11. Elsku litla systir mín. Ég elska þig meira en allt. Litlar stjörnur vaka hér, allar saman yfir þér. Hátt á himni seint um kvöld, blikar fallegt ljósafjöld. Litlar stjörnur vaka hér, allar saman yfir þér. Sólin sest við sjónarrönd, skín nú yfir fjarlæg lönd. Bíður þín er dagur nýr, birtist með sín ævintýr. Litlar stjörnur vaka hér, allar saman yfir þér. Tunglið bjart á himni skín, sendir geisla inn til þín. Fallegt ljós í alla nótt, svo þú megir sofa rótt. Litlar stjörnur vaka hér, allar saman yfir þér. (Höf. Hafdís Huld) Ég mun alltaf sakna þín. Þinn bróðir, Arnór Bjarki. Elsku, litla systir mín. Þú ert fyrirmyndin mín og hetjan mín. Sofðu, sofðu, litla barnið blíða, bjartir englar vaki þér við hlið. Móðurhöndin milda, milda, þýða, mjúkt þér vaggar inn í himinfrið. Vaki, vaki auga guðs og gæti góða, veika, litla barnsins þá. Sofðu, sofðu! Sorgin græti, sonur ljúfi, aldrei þína brá. (Benedikt Þ. Gröndal) Ég elska þig. Þinn bróðir, Brynjar Bjarmi. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Birgir afi, Gyða og Henný. Elska þig svo heitt. Svo ljúf þú ert, litla mín. Ljósir lokkar, litlir fætur langar til að faðma þig. Heyri syngja, sé þig dansa, hjartað hoppar hátt af gleði. Er svo þakklát fyrir þig mín ljúfasta ljúfa. Faðma, knúsa, kyssi þig. (Höf. ók.) Elsku litla fallega ömmu- og afastelpan okkar. Við erum svo þakklát fyrir þann tíma sem hún var með okk- ur. Hún gaf okkur svo mikla gleði með dansinum sínum, söngnum og áhuganum sem hún hafði fyrir öllu í kringum sig. Tónlist og dans var hennar líf og yndi sem sýndi sig vel í veikindum hennar. Alltaf þegar hún mögulega gat bað hún um tónlist og dansaði og söng. Hún hafði sterkar skoðanir á hvaða lög voru spiluð enda var hún ákveðið stelpuskott, fékk hún okkur öll með sér í dansinn sem gjarnan byrjaði á höfuð, herðar hné og tær og passaði að allir tækju þátt. Það eru svo ótal margar minn- ingar sem við eigum um hana. Hún var svo mikill karakter, vissi alveg hvað hún vildi og stjórnaði með sínum ráðskonutöktum. Hún var fljót að læra og tileinka sér hluti sem vöktu áhuga hennar. Það kom berlega í ljós þegar hún byrjaði á leikskólanum Múlaborg síðasta haust enda mikil leik- skólastelpa. Kristín greindist með krabba- mein í byrjun sumars og fór hún í nokkrar aðgerðir og lyfjameðferð sem tók á. Hún var ótrúlega sterk í gegnum allt þetta ferli og skildum við fullorðna fólkið ekki hvar hún fann allan þennan kraft. Hún gaf okkur styrk til að fylgja henni í gegnum þetta vegna þess hversu öflug hún var sjálf. Við dáumst endalaust að Birg- ittu og Halldóri Geir hvað þau standa sig vel og hvernig þau hafa haldið utan um Kristínu og strákana sína í gegnum þetta allt saman. Kristín hélt mikið upp á bræð- ur sína og fannst svo gaman að leika við þá enda voru þeir alltaf til í það og yndislegt að sjá hversu náin þau systkini voru. Við vorum svo hamingjusöm að fá þau í húsið til okkar. Síðustu tvo mánuði höfum við notið þess að hafa þau öll hjá okkur þegar Kristín var heima og fengum við að dekra við hana eins mikið og við vildum. Vínber og ís voru í miklu uppáhaldi og oft voru kós- ístundir í sófanum hjá okkur. Við eigum eftir að sakna þeirra stunda með henni mikið. Elsku litli engillinn okkar, við eigum eftir að sakna þín svo mik- ið en trúum því að allar langömm- ur þínar eigi eftir að umvefja þig ást og hlýju. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Amma Kristín og afi Hlynur, (amma og Afi á Dyngjó). Það er svo rangt að þurfa að kveðja barnabarnið sitt, þessa yndislegu stúlku sem kenndi okk- ur svo margt á sinni stuttu ævi. Svo lífsglöð, alltaf tilbúin í að dansa og syngja og elskaði að láta syngja fyrir sig. Alltaf stutt í fal- lega brosið hversu veik sem hún var. Það var svo gaman að sjá hana teikna og lita, litli listamað- urinn sem þekkti alla liti og not- aði m.a. tákn með tali til að túlka þá. Ég veit að vel er tekið á móti henni í sumarlandinu og mun þessi litli engill vaka yfir okkur öllum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jóns frá Prestshólum) Afi Jens og amma Auður, Hvolsvelli. Ég var nýlent í Argentínu þeg- ar ég fékk símtal um að litla Kristín mín hefði dáið úr krabba- meininu. Ég hugsa mikið til hennar og tímans sem ég átti með henni og fjölskyldunni þegar ég m.a. bjó hjá þeim. Hún var alltaf svo glöð og tók mig og alla með sér í gleðina. Bræðurnir og við öll þarna heima vorum óþreytandi við að leika við hana, syngja og dansa. Lífsgleðin smitaði svo út frá sér. Nú er ég langt í burtu en geymi Kristínu, litla engilinn minn, í hjarta mínu og hugsa til hennar og fjölskyldunnar. Ég átti dýrmæta stund með henni síð- asta kvöldið mitt heima. Það tek- ur enginn frá mér. Sofðu rótt, litli engillinn minn. Þín frænka, Auður Ebba. Elsku litla frænka mín. Það er erfitt að skilja lífið stundum, en ég veit að nú líður þér betur og að Kristín nafna þín passar uppá þig. Ef ég sæi þig sem engil. Ef ég sæi þig hér hjá mér. Ef ég sæi þig sem engil. Myndi ég halda þér alltaf hjá mér. Ég minnist þess tíma sem ég átti með þér, það var eins og lífið væri tekið frá mér, er þú fórst, er þú fórst, burtu frá mér. (Kristín Anna Th. Jensdóttir, Jens Sigurðsson)) Sofðu rótt, elsku fallegi engill- inn minn. Þín frænka, Kristín Anna. Takk fyrir dýrmætar sam- verustundir, elsku Kristín okkar. Við munum ætíð muna fallega brosið þitt. Þú varst svo stolt og góð stóra frænka, alltaf til í að knúsa og passa Hafdísi Lóu. Það er minn- ing sem mun alltaf lifa í hjörtum okkar allra. Verndi þig englar, elskan mín, þá augun fögru lykjast þín. Líði þeir kringum hvílu hljótt á hvítum vængjum um miðja nótt. (Steingrímur Thorsteinsson) Ingi Rafn Hlynsson, Ólöf Rut Halldórsdóttir, Hafdís Lóa Ingadóttir. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Samband okkar er sérstakt, varst þú fljót að finna út úr því að það þyrfti að stríða mér. Þóttist ekki taka mig í sátt. Þú varst svo þrjósk og ákveðin í því, sem lýsir þér fullkomlega, því þú ert mesti nagli og harðjaxl sem ég hef kynnst og ert þú fyrirmyndin mín. Þegar ég hitti þig aftur þá mun ég knúsa þig. Þinn Rúnar. Nú færist logn yfir ljósa brá, og lóan er sofin í grænum mó. En höndin litla á lipurtá er liðin útaf í sælli ró. Og brekkan er döggvuð sem brosti í dag, með bjarta sóley og lipurtá. En himinn bergmálar hörpulag sem hljómaði litlum vörum frá. Nú svífur þú létt inn á sumarlönd í sælum draumi um hljóða nótt. Og Guð hefur lagt sína ljúfu hönd á lítinn vanga, þú sefur rótt. (Hjalti Haraldsson) Elsku Halldór Geir, Birgitta, Brynjar Bjarmi, Arnór Bjarki og aðstandendur allir, okkar inni- legustu samúðarkveðjur á þess- um erfiðu tímum. Ingibjörg (Inga), Signý, Ómar, Andri og fjölskyldur. Í dag virðast öll orð fátækleg. Einstakt hefur verið að fylgjast með foreldrum og fjölskyldu á þessum örfáu vikum frá því Kristín litla greindist. Trú, von og kærleikur hefur skinið í gegn- um allt. Hugur okkar er hjá þeim. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Sævar, Þórhalla, Hrafnkell og Ásta Guðrún. Fallegan sumardag í júlí 2016 kom í heiminn lítill sólargeisli, sjáaldur augna foreldra sinna og bræðra, Kristín Halldórsdóttir. Kristín var mikill karakter frá fyrsta degi og vissi upp á hár hvað hún vildi og hvað ekki, enda lét hún það óhikað í ljós ef henni mislíkaði eitthvað. Litla stýrið fékk mörg erfið verkefnin í lif- anda lífi en þrátt fyrir ungan ald- ur mátti glöggt sjá hversu yfir- veguð hún tókst á við þau. Hennar stærsta og erfiðasta verkefni kom eins og reiðarslag í sumarbyrjun og setti alla hljóða. Kristín fékk þó fljótt viðurnefnið Naglinn, þar sem hún sýndi ótrú- legan kraft og hörku í baráttu sinni. Myndböndin, myndirnar og frásagnir af henni báru þess glöggt merki hversu kraftmikil hún var syngjandi og dansandi með foreldrum, bræðrum og nán- asta fólkinu sínu sem umvafði hana og styrkti. Verkefnið varð henni þó ofviða að lokum og kvaddi hún þennan heim í sumarlok. Minningin um fallegu og kraftmiklu stúlkuna mun lifa í minningu okkar að ei- lífu. Elsku Halldór Geir, Birgitta, Brynjar Bjarmi, Arnór Bjarki og fjölskylda, megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorginni og vaka yf- ir ykkur um ókomna tíð. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur, Þorsteinn (Steini), Sigríður (Sigga), Sigríður Björg, Sóldís Ebba og Gunnar Örn. Kristín Halldórsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Það fer oft minna fyrir góðu fréttunum en þeim slæmu. Þess vegna eru sagðar færri fréttir af því þeg- ar vel gengur að ná niður biðlist- um í heilbrigðis- kerfinu en þegar þeir lengjast. Það gæti því hafa farið framhjá einhverjum að átak sem heilbrigðisyfir- völd hafa staðið fyrir til að stytta biðlista eftir aðgerðum hefur gengið vel. Biðlistarnir eru að styttast en verkinu er ekki lokið. Augljóslega er óá- sættanlegt að sjúklingar þurfi að bíða lengi eftir því að kom- ast í aðgerðir sem geta bætt lífsgæði og líðan. Þess vegna vekur eftirtekt hversu mikill þrýstingur er nú á heilbrigðisyfirvöld að stór- auka einkavæðingu í heil- brigðiskerfinu, þvert á vilja mikils meirihluta landsmanna. Skýringin gæti verið sú að áhugamenn um einkavæðingu telji sig eiga meiri möguleika að ná sínu fram núna en þegar biðlistar hafa styst enn meira. Íslendingar hafa borið gæfu til þess að hafa haldið í heil- brigðiskerfi sem rekið er á fé- lagslegum grunni, fjármagnað af skattfé og rekið af hinu opinbera að mestu. Nýlegar kannanir staðfesta svo ekki verður um villst að afgerandi meirihluti landsmanna, meira en fjórir af hverjum fimm, vill halda heilbrigðiskerfinu í opinberum rekstri og hafnar frekari einkavæðingu. Talsmenn þess að einka- væða í heilbrigðisþjónustu tala gjarnan um að með því að semja við einkaaðila sé ekki verið að einkavæða. Einka- rekstur sé ekki það sama og einkavæðing. Þar eru þeir ósammála fræðimönnum á sviði opinberrar stjórnsýslu. Einkarekstur er ekkert annað en einkavæðing á þjónustu. Það er óþarfi að reyna að fela einkavæðinguna með því að finna fallegra orð. Köllum hlutina sínum réttu nöfnum. Þvert gegn hagsmunum almennings En hvers vegna ætti ríkið ekki að nota sér þjónustu einkaaðila á þessu sviði eins og öðrum? Svarið er einfalt. Það gengur þvert gegn langtíma- hagsmunum almennings í landinu. Fyrir því eru ýmis rök. Einkarekstur í heilbrigð- iskerfinu takmarkar getu og svigrúm stjórnvalda til að taka stefnumarkandi ákvarðanir um forgangsröðun og skipulag kerfisins í þágu almannahags- muna. Mikill einkarekstur veldur því að ríkisvaldið getur síður beitt sér til að tryggja gæði og öryggi. Og einkareksturinn veldur því að þjónustan verð- ur brotakennd þar sem hana veita margir mismunandi að- ilar með mismunandi sýn. Við þurfum ekki og eigum ekki að gera tilraunir með ís- lenska heilbrigðiskerfið. Fjöl- margar rannsóknir sýna fram á kosti félagslegra kerfa eins og við höfum búið við að mestu hér á landi. Félagslegu kerfin skila bestu aðgengi að þjón- ustu, lægstum kostnaði og bestri lýðheilsu. Blönduð kerfi, eins og þekkjast víða í Vestur-Evrópu, koma næst best út. Aðgengi er svo verst og kostnaðurinn hæstur í kerf- um þar sem þjónustan er einkarekin. Með aukinni einkavæðingu minnka einnig möguleikar á því að byggja upp þekkingu í heilbrigðiskerfinu og miðla henni áfram. Í litlu landi eru ekki margir sérfræðingar á hverju sviði. Ef þekkingin er ekki til staðar innan háskóla- sjúkrahússins okkar er hætt við að það verði erfitt að miðla henni áfram til næstu kyn- slóðar lækna. Sama á við um dýran búnað sem þarf að vera til staðar. Getan til að kaupa og viðhalda fyrsta flokks bún- aði minnkar ef fé til að gera aðgerðir þar sem búnaðurinn nýtist dreifist á marga staði. Tökum á vandamálunum Í ljósi alls þessa, er einhver ástæða til að skoða frekar aukna einkavæðingu í heil- brigðiskerfinu? Svarið er ein- falt. Ef við höfum hagsmuni almennings að leiðarljósi mun- um við hafna því algerlega. Biðlistar eru vandamál sem þarf að taka á. Það á að gera með því að bæta það heilbrigð- iskerfi sem almenningur vill hafa. Tökum á vandamálum sem koma upp en höfnum skammtímalausnum sem geta eyðilagt íslenska heilbrigðis- kerfið til framtíðar. Eftir Elínu Björg Jónsdóttur Elín Björg Jónsdóttir Höfundur er formaður BSRB. »Ef við höfum hagsmuni almennings að leiðarljósi ber okkur að hafna algjörlega frekari einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Höfnum skammtíma- lausnum í heil- brigðismálum Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir að- sendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem lið- urinn „Senda inn grein“ er valinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.