Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 13.09.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018SPROTAR Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður, eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki, fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 39.990 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 13.330 kr. Sami Salmenkivi segir að fyrirtæki ættu helst að hafa gagnasérfræðing að störfum við hverja einustu deild enda er rétt notkun gagna nánast ómissandi liður í að ná árangri í rekstri og markaðsstarfi. Sami er yfirmaður alþjóðlegrar stefnumótunar hjá TBWA og einn af fyrirlesurunum á ráðstefnunni Krossmiðlun 2018 sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík á morgun. „Núna er svo komið að gögn, skapandi vinna og rekstur mynda órjúfanlegan þríhyrning. Ef eitt af þessu þrennu vantar þá er varla hægt að áorka neinu,“ segir Sami og bendir á að markaðsstarf sem ekki tekur mið af gögnum sé eins og skot í myrkri en rekstur sem á að byggj- ast á gögnum eingöngu missi líka marks. Sami ætlar m.a. að ræða um ár- angur alþjóðlegra stórfyrirtækja sem hafa náð að skapa mikil verð- mæti með réttri notkun gagna. „Þetta eru fyrirtæki á borð við Ama- zon, Netflix og Spotify sam safna ekki bara gögnum og greina þau heldur vinna úr þeim á skapandi hátt og láta gögn spila hlutverk á öllum sviðum rekstrarins.“ Þeim fyrirtækjum virðist vegna best, að sögn Sami, sem safna gögn- um sem víðast og nýta þau á sem flestum sviðum. „Þau safna ekki gögnunum á einn stað í eitt stórt síló heldur eru þau notuð þvert á allar deildir. Gagnasérfræðingarnir eru ekki einangraður hópur heldur hluti af hverju einasta sviði: við vöruþró- un, í markaðsstarfi, hjá fjármála- deildinni og þar fram eftir götunum. Þessi fyrirtæki láta gögnin vísa sér leið, eins og t.d. Netflix sem safnar upplýsingum um ólöglegt streymi kvikmynda og þátta til að skilja bet- ur hvers konar efni almenningur hefur mestan áhuga á.“ Ekki má ganga of langt Dæmin sýna líka að það þarf að umgangast öll gögn af virðingu og segir Sami að ný Evrópureglugerð um meðferð persónuupplýsinga hafi jákvæð áhrif að þessu leyti. Almenn- ingi sé alls ekki sama hvernig gögn sem hann varða eru notuð og þegar fyrirtæki eða stofnanir ganga of langt eiga þau ekki von á góðu. „Það gerðist t.d. nýlega að upp komst um leynilegan samning á milli Google og Mastercard þar sem greiðslukortafyrirtækið seldi Google upplýsingar um notkun greiðslu- korta á sölustöðum. Þessi gögn not- aði Google til að fá betri mynd af því að hvaða marki auglýsingar á netinu skiluðu sér í aukinni sölu,“ útskýrir Sami. Í sjálfu sér valdi Google skil- virka leið til að læra meira um hegð- un neytenda en það vakti litla hrifn- ingu þegar fréttist af samstarfi fyrirtækjanna. „Svona notkun upp- lýsinga reitti fólk til reiði og því fannst mönnum eins og brotið hefði verið á friðhelgi einkalífs þeirra.“ Fyrirtæki þurfa að finna rétta meðalveginn og bæði afla gagna og vinna úr þeim með skynsamlegum hætti. „Uppákomur á borð við Cam- bridge Analytica-hneykslið minna almenning á að þegar þjónustan er ókeypis þá er það notandinn sem er varan. Fólk er á varðbergi og gerir þá kröfu í dag að allt sé uppi á borð- um þegar kemur að meðferð gagna. Fyrirtæki þurfa að tileinka sér gegnsæi og fara mjög varlega þegar kemur að kaupum á gögnum frá, eða sölu til þriðja aðila.“ Gögnin nýtast líka litlum fyrirtækjum En hvað með dæmigerð fyrirtæki á litla Íslandi, sem ekki hafa efni á að ráða til sín heilan her af gagnagrein- endum? „Ég held að gögn séu orðin svo mikilvægur þáttur í öllum rekstri að fyrirtæki sem eru með á bilinu 50-100 starfsmenn ættu að hafa a.m.k. einn gagnasérfræðing á launaskrá. Einnig væri ráðlegt að vinna að því að mennta a.m.k. hluta starfsmanna í gagnagreiningu svo að fólk bæði ofarlega og neðarlega í skipuritinu viti hvernig á að safna gögnum, nálgast þau og greina. Markmiðið ætti að vera að nýta gögn sem hjálpartæki í rekstrinum eins víða og kostur er.“ Meira að segja smæstu fyrirtæki geta grætt á því að koma böndum á gögnin. „Því færri sem starfsmenn- irnir eru því minna svigrúm er til að verja dýrmætum vinnustundum í að leggjast yfir flókin gögn, en einhvers staðar er samt hægt að byrja án of mikillar fyrirhafnar, kannski með aðstoð utanaðkomandi ráðgjafa, og alveg öruggt að í fyrirtækinu eru að verða til gögn sem hægt er að nota til að styrkja reksturinn.“ Eigum að láta gögnin vísa okkur leið Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sérfræðingur hjá TBWA segir gögn orðin svo mikil- vægan þátt í daglegum rekstri að eðlilegt væri að fyrirtæki með á bilinu 50- 100 starfsmenn hefðu a.m.k. einn gagnasérfræð- ing innan sinna raða. Sami segir allar deildir fyrirtækja þurfa að virkja kraftinn sem býr í gögnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Að mati Sami leynast dýrmæt gögn jafnvel í smæstu fyrirtækjum. Viðskiptavinir virða fyrir sér útsöluvörur. Sami vinnur á Madison Avenue í New York, í hjarta bandaríska auglýsingabransans, á slóðum manna eins og hins ævintýralega Dons Drapers úr sjónvarpsþátt- unum Mad Men. Eins og lesendur vita lagðist Draper ekki yfir töflur og línurit til að búa til auglýsinga- herferðir heldur fékk sér sterkan drykk og lét andagiftina koma yfir sig. Er ekki hætt við að einhver óræður mannlegur þáttur – innsæi og sköpunargáfa – sitji á hak- anum ef markaðsstarfið ræðst al- farið af því sem gögnin segja? „Þvert á móti virðist það hjálpa skapandi fólki í auglýsingageir- anum að hafa gögn til að styðjast við. Það er okkar reynsla að aug- lýsingasmiðir standi sig best þeg- ar þeim eru gefin skýr mörk til að vinna út frá og eins og þeir koðni niður þegar þeim er gefið algjört frelsi og engin viðmið sem veitt geta leiðsögn,“ segir Sami. „Vita- skuld verður það alltaf ómissandi að geta unnið með skapandi hætti, og það á sér ekki stað nein nýsköpun með gögnunum einum saman. Þá þarf bæði sköpunar- gáfu og innsæi til að skilja hvað það er sem gögnin eru að segja okkur.“ Svo verður að hafa það bak við eyrað að gögnin segja ekki alltaf alla söguna. Sami kynntist þessu þegar hann tók þátt í að markaðs- setja íslenskt skyr í heimalandi sínu Finnlandi og víðar í Evrópu. „Það er ekki mikill vandi að mark- aðssetja íslenska skyrið enda ákaflega góð vara, en eitt af því sem við þurftum að rannsaka var hvaða bragðtegundir neytendur væru líklegastir til að velja. Við gerðum prófanir með ýmsar blöndur og kom t.d. í ljós að mjög óhefðbundin samsetning reyndist falla mjög í kramið þegar fólk fékk að smakka. En þegar skyr með þessu sama bragði var komið í hillur verslana seldist það ekki vel, því fyrir þá sem aldrei höfðu fengið að kynnast bragðinu var varan of framandi og í staðinn völdu neytendur skyr með bragði sem þeir þekktu betur, s.s. jarð- arberjabragði.“ Gögnin hrökkva skammt ein og sér Úr Mad Men. Sami segir gögn efla sköpun frekar en kæfa hana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.