Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 11
Mælingin á Rodrygo Goes var
mikilvæg fyrir Soccer Genius. Eft-
ir að kappinn sló öll met í mæl-
ingum fyrirtækisins og var svo
fjórum árum síðar keyptur til eins
stærsta og ríkasta knattspyrnu-
félags heims á 45 milljónir evra
var komin sterk tenging við það
að mælingar Soccer Genius virð-
ast mæla raunveruleg gæði knatt-
spyrnufólks.
Tilviljun ein réð því hins vegar
að úr þeirri mælingu varð. Einn
framkvæmdastjóra þýska íþrótta-
vöruframleiðandans Adidas í
Bandaríkjunum sá Soccer Genius
við mælingar í skóla í Bandaríkj-
unum. Bauð hann þeim að slást í
för með Adidas að kynna Messi-
skóinn í Texas. Þar var lið Santos
statt. Brynjar segir mælinguna á
Goes skipta máli og bætir við: „Þú
getur ímyndað þér ef við ættum
mælingar frá Ronaldo, Messi eða
Neymar þegar þeir voru 13 ára.
Hvort krakkar hefðu ekki áhuga á
að gera sömu þrautir og sjá hvar
þeir eru í samanburði.“
Rodrygo Goes hvatti aðra til að reyna að slá met sitt fyrir fjórum árum.
Dýrmæt mæling á Rodrygo Goes
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 11SPROTAR
Rodrygo Goes er nafn sem ekki
margir þekkja í knattspyrnuheim-
inum. Hann er 17 ára gamall drengur
frá Brasilíu og var keyptur til
spænska knattspyrnuliðsins Real
Madrid í sumar á 45 milljónir evra
sem nemur rúmum fimm milljörðum
íslenskra króna. Drengurinn er fót-
boltasnillingur og það hefur Brynjar
Bjarnason, stofnanda íslenska fyrir-
tækisins Soccer Genius, grunað um
nokkurt skeið. Fyrirtækið sérhæfir
sig í mælingu á getu knattspyrnu-
fólks og mælir fimm þætti: knattrak,
sendingar, spretti, skothraða og ná-
kvæmni skota. Fyrir fjórum árum
var Goes mældur með tækjum
Soccer Genius og til að gera langa
sögu stutta þá sló Goes öllum við sem
höfðu prófað. Varan sem Soccer
Genius býður upp á er aftur á móti
ekki aðeins mælingar á knattspyrnu-
getu. Sérstaðan liggur í samanburð-
inum. Félög geta borið saman hvar
þeirra leikmenn standa að meðaltali
við önnur félög. Þá geta leikmenn
sjálfir borið sig saman við fyrri mæl-
ingar sínar og séð hvar þeir geta
bætt sig. Samanburður við aðra úti í
heimi er einnig mögulegur ef maður
vill.
Stefna á 100 þúsund mælingar
„Þetta er spennandi og skemmti-
legt verkefni sem á góða möguleika á
markaði. Hversu mikla verður fram-
tíðin að leiða í ljós. En þetta er
spennandi hugmynd og spennandi
fyrirtæki,“ segir Brynjar Bjarnason,
stofnandi og framkvæmdastjóri
Soccer Genius, í samtali við Við-
skiptaMoggann. Fyrirtækið var
stofnað árið 2011 og er með starfsemi
í þremur löndum, á Íslandi, í Banda-
ríkjunum og á Írlandi en Craig
Moore, fyrrverandi fyrirliði ástralska
landsliðsins í knattspyrnu, er um-
boðsmaður fyrirtækisins í Ástralíu.
Soccer Genius hefur verið vel tekið
víða og er ónefnt félag utan efstu
deildar á Englandi með búnaðinn til
reynslu. Þá ber þess að geta að
Guðni Bergsson, formaður KSÍ og
fyrrverandi atvinnumaður í knatt-
spyrnu, er einn aðilanna á bakvið
fyrirtækið.
Um 130 milljónir íslenskra króna
hafa verið settar í Soccer Genius sem
hlaut meðal annars 25 milljóna styrk
frá Tækniþróunarsjóði. Fyrirtækið
einblínir á bandarískan markað eins
og heiti þess gefur til kynna og er nú
þegar í samstarfi við þrettán félög
þar í landi, sum hver í efstu deild,
sem hafa keypt Soccer Genius græj-
ur til að mæla iðkendur. Fyrirtækið
stefnir á að vera komið með 100 þús-
und mælingar á leikmönnum á fyrri
helmingi næsta árs í gagnagrunn
sinn og stefnir einnig á að vera í sam-
starfi við tíu klúbba til viðbótar þar í
landi á sama tímabili.
Breytt tekjumódel
Fyrst um sinn gekk tekjumódel
Soccer Genius út á að selja mæl-
ingabúnaðinn. Það breyttist hins
vegar eftir að Brynjari og félögum
var boðið, ásamt öðrum norrænum
sprotafyrirtækjum, að fara til Silicon
Valley í Bandaríkjunum. Í stað þess
að gera mælingatækin sjálf að aðal-
söluvöru var framleiðslunni breytt,
hún gerð ódýrari, og hafist var handa
vinna við að búa til app þar sem seld-
ur er aðgangur að svokallaðri
„premium-útgáfu“ en stefnan er að
það verði aðaltekjulind fyrirtækisins.
Generalprufa í Bandaríkjunum
„Við seljum búnaðinn á rúmlega
1000 bandaríkjadali. Mælingarnar
eru svo fríar og krakkarnir fá app
frítt og þar geta þeir séð hvernig þeir
eru að standa sig og geta borið sig
saman við liðsfélaga ef þau vilja. En
Soccer Genius er fyrst og fremst
hugsað fyrir krakka til að sjá hvar
þau geta bætt sig,“ segir Brynjar.
„Premium-aðgangurinn veitir
krökkum aðgang að samskiptakerfi
við alla í heiminum. Það kemur til-
kynningarkerfi. T.d. þegar einhver
lendir í topp 10 í fylkinu, eða heim-
inum. Þá fá allir tilkynningu um það.
Einstaklingar geta þannig komið sér
á framfæri ef þeir kjósa svo,“ segir
Brynjar.
Í ársbyrjun 2019 mun fyrirtækið
taka nokkurs konar generalprufu í
Bandaríkjunum og gefa út appið fyr-
ir leikmenn sem geta fengið upplýs-
ingar um hvernig þeir standa sig
beint í símann sinn um leið og mæl-
ingu lýkur, endurgjaldslaust. Þjálf-
arar þessara félaga sem taka þátt
munu einnig fá aðgang til þess að
bera saman mælingar leikmanna inn-
an sinna raða. Þá mun einnig verða
sérstakur aðgangur fyrir njósnara
knattspyrnuliða sem geta nálgast
mælingar þeirra leikmanna sem hafa
kosið það sjálfir að hafa aðgang sinn
opinn.
Leit að fjárfestum
hluti af langtímaplani
Brynjar og félagar hyggjast einnig
vera með viðburði í kringum Soccer
Genius í Bandaríkjunum á næsta ári
og er það einkum til þess að vekja at-
hygli á vörunni.
„Stefnan er að vera með Soccer
Genius fylkisins, Soccer Genius Ís-
land og svo framvegis. Þeir sem
verða með premium-aðgang munu
hafa rétt til þess að keppa að því að
komast á þessa viðburði. Á þá geta
væntanlegir viðskiptavinir mætt til
að sjá og upplifa stemninguna. Þá sjá
einnig njósnarar alla bestu leikmenn-
ina á einum stað,“ segir Brynjar.
„Markmiðið hjá okkur er að um
þetta leyti á næsta ári þá séum við að
taka inn eða leita eftir stórum fjár-
festum og séum búin að fara með
nýja módelið í gegnum alla þá kúnna
sem við erum með og komnir inn í
fleiri klúbba til viðbótar. Að við verð-
um með þetta app og búnir að láta
reyna á það og sanna, og leita þá eftir
fjárfestum til að springa út ef að-
stæður verða þannig. Það er svona
planið okkar að ná þessu eftir ár,“
segir Brynjar.
Fótboltasnillingar framtíðar mældir
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Fyrirtækið Soccer Genius
mælir getu knattspyrnu-
fólks á ýmsum sviðum
knattspyrnunnar og hyggst
gefa út app á næsta ári þar
sem notendur geta borið
saman mælingar sínar við
sig og aðra og komið sér á
framfæri á stóra sviðinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brynjar Bjarnason er stofnandi Soccer Genius. Hér eru mælingartækin uppsett og ungir iðkendur á fullri ferð.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma