Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.09.2018, Blaðsíða 16
Veitur eru ungt fyrirtæki, stofnað í núverandi mynd árið 2014, en byggir á gömlum grunni og stendur nú á tímamótum: Ný stefna hefur verið samþykkt og Veitur ætla að vera til fyrirmyndar þegar kemur að nýsköpun og tækniþróun. Veitur sinna mikilvægri þjónustu í almannaþágu en veiturnar eru undirstaða samfélaga; án þeirra væru ekki borgir, bæir eða þorp. „Nú stendur þetta unga, en þó reynslumikla, fyrirtæki á tímamótum,“ segir Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmda- stjóri Veitna. „Ný stefna hefur verið samþykkt þar sem horft er til langrar framtíðar og þeirra öru tæknibreytinga sem nú eiga sér stað. Við ætlum að vera til fyrirmyndar þegar kemur að nýsköpun og tækni- þróun í rekstri veitukerfanna, vinnulagi og þjónustu við viðskiptavinina.“ Gott að vinna hjá Veitum Hjá Veitum vinna um 200 starfsmenn. „Hér er samhent liðsheild með skýra sýn, markmið og umboð til framþróunar,” segir Inga Dóra. „Við leggjum áherslu á að tryggja að til staðar sé þekking sem styður við nauðsynlega nýsköpun í rekstri veitukerfa. Hér er hlúð að hugviti og snjöllum lausnum og mikið púður sett í starfsþróun. Það er gott að vinna hjá Veitum; vel er búið að starfsfólki og starfsánægja er mikil. Þegar ég heyri skellihlátur berast úr fundarherbergjum veit ég að við erum á góðri leið.” Veitur búa sig undir snjalla framtíð Inga Dóra Hrólfsdóttir veitur.is/framtidin Í nýrri stefnu Veitna eru metnaðarfull markmið. Áherslan er á trygga afhend- ingu rafmagns, gnægð af heitu vatni, hreinar strend- ur, hreint vatn og ánægða viðskiptavini. Stefnt er að sjálfbærni í rekstri og fram- kvæmdum og fullnýtingu orkustrauma. „Til þess að geta staðið við þessa metnaðarfullu fram- tíðarsýn þurfum við að hugsa út fyrir boxið, nýta okkur tækniþróun og nýsköpun og byggja upp snjöll veitukerfi með öryggi, umhverfissjónar- mið og langtímaþarfir viðskiptavina og samfélagsins alls að leiðarljósi. Við ætlum að vera leiðandi í orkuskiptum og hámarka nýtingu kerfanna.” „Ef lagnirnar væru lagðar saman næðu þær frá Íslandi til Sjanghæ“ Veitur eru með starfsemi víða á suðvesturhorni landsins, allt frá Grundarfirði að Hvolsvelli. Þannig þjónar fyrirtækið hátt í 75% landsmanna á einn eða annan hátt. Hátt í þúsund fasteignir tilheyra rekstrinum og væru lagnir þess lagðar saman næðu þær frá Íslandi til Sjanghæ. Veitur hafa einnig umsjón með mikilvægum auðlindum, eins og vatns- bólunum í Heiðmörk og lág- hitasvæðunum í Reykjavík og Mosfellsdal, svo eitthvað sé nefnt. Góð umgengni við auðlindirnar og umhverfis- vernd skiptir því höfuðmáli í starfseminni. Öflugt þróunarstarf „Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki. Þrátt fyrir að almenningur verði mest var við framkvæmdir okkar við veitukerfin; uppgröftinn og afhendingu rafmagns, heits og kalds vatns og fráveituna, þá er mikið þróunarstarf í gangi, oft i samvinnu við utanað- komandi aðila. Sem dæmi má nefna djúpdæluverkefni í hitaveitunni sem er nýjung á heimsvísu, mikla gagnasöfnun á vatnstökusvæðum sem nýta á til að auka þekkingu okkar á grunnvatnsstraumum, nýting myndgreiningartækni við rannsóknir á örplasti í drykkjarvatni og verið er að vinna fyrir okkur nýtt líkan til að herma olíuslys. Þetta er aðeins lítill hluti þess sem verið er að vinna að innan fyrirtækisins en nú ætlum við að gefa í, ganga skrefinu lengra og taka fullan þátt í mótun framtíðarinnar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.