Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 23

Morgunblaðið - 13.09.2018, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2018 23FÓLK Borgartúni 22 og Skútuvogi 2, Reykjavík • Dalshrauni 11, Hafnarfirði • Hafnargötu 54, Reykjanesbæ • Gleráreyrum 2, Akureyri Sími 588 8000 • Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 laugardaga • slippfelagid.is DÖGG „Dögg – Hinn fullkomni hlýi grái litur í alrýmið. Hentar vel fyrir björt og opin rými og er mjög kósý í svefnherbergi. Þó svo að hann sé hlýr þá er samt þessi fallegi reykur í honum. Hann faðmar mann auðveldlega og jarðtengir rýmið. Fallegur með öllum hlutlausum litum og muskuðum dökkum litum. – Sara Dögg Guðjónsdóttir, innanhúshönnuður. GÆÐIN Ein af ástæðum þess að íslenskir hönnuðir velja Slippfélagið. Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT Uppselt var á fyrsta Shopify-viðburð á Íslandi, sem fram fór í Gamla bíói á dög- unum. Viðburðurinn var skipu- lagður af Vínberi, ráðgjafafyrir- tæki fyrir vefverslanir. Eins og segir Facebook-síðu Vínbers þá eru viðburðir sem þessir haldnir víða um heim og eru vettvangur fyrir verslunareigendur, sér- fræðinga og áhugasama til að hittast, læra og tengjast. Uppselt á fyrsta Shopify-viðburð- inn á Íslandi Rósa Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Vínbers, í pontu. Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Taktikal, í hrókasamræðum. Anna Kristín Magnús- dóttir hjá Kjólar & konfekt ræðir málin. Anna Lea Friðriksdóttir og Dögg Hjaltalín hjá Sölku. Fiona Higgins frá Shopify hélt erindi. Morgunblaðið/Hari FUNDUR Íslenska auglýsingastofan Guðlaugur Aðalsteinsson hef- ur verið ráðinn til þess að leiða sköpunarvinnu stofunnar og tekur hann við starfi hönnunarstjóra (e. creative director). Guðlaugur er 37 ára og með áralanga reynslu úr auglýs- ingageiranum. Hann útskrifaðist árið 2005 með BA-gráðu í markaðsfræðum frá Bournemouth-háskóla í Bretlandi. Á ár- unum 2004-2009 var hann hugmyndasmiður, viðskiptastjóri og birtingastjóri hjá Himinn & Haf og hjá TBWA/Reykjavík. Þá var hann hönnunarstjóri og markaðsráðgjafi hjá Vatikaninu auglýsingastofu á árunum 2009-2012. Síð- astliðin sex ár hefur hann gegnt starfi hugmyndasmiðs og viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Tekur við stöðu hönnunarstjóra Origo Margrét Jóna Gísladóttir hefur verið ráðin sérfræðingur við mannauðs- og launakerfið Kjarna hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Origo. Áður en Margrét Jóna kom til starfa hjá fyrirtækinu starfaði hún í nærri tvo áratugi sem sér- fræðingur við launakerfið H3 hjá Advania og Tölvumiðlun. Kjarni er heildstæð mannauðs- og launalausn sem tekur til allra málefna er snúa að starfsfólki, allt frá ráðningarsamningi til út- greiðslu launa. Með kerfinu er hægt að vega og meta störf og taka út skýrslur með jafn- launagreiningu. Nýr sérfræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.