Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 8
Fjölnota-
tækið má
líka nota
sem utan-
vega-
hjóla-
stól.
aði í viðhaldi. Hér á Íslandi má
reikna með að á venjulegum líftíma
götusópsins verði kostnaðurinn nokk-
urn veginn jafnhár hvort sem valið er
að nota rafmagns- eða díselútgáfu.“
Friðrik segir rafdrifna götusóp-
inn geta nýst vel í borgarkjörnum
þar sem sópa
þarf götur
nokkrum sinn-
Þ
að er ekki bara á fólksbílamarkaði
sem framleiðendur hafa náð góð-
um árangri við að skipta bensín-
og díselvélum út fyrir rafhlöður
og rafmótora. Framleiðendur
vinnuvéla eru líka í vaxandi mæli farnir að
bjóða upp rafdrifin tæki sem m.a. hafa þá
kosti að vera mjög hljóðlát og framleiða eng-
an útblástur.
Friðrik Ingi Friðriksson hjá Aflvélum hef-
ur fylgst með þessari þróun og segir hann að
á vinnuvélasýningum erlendis séu rafdrifin
tæki orðin áberandi og spanni alla flóruna
allt upp í risavaxnar gröfur. „Tæknin er enn
á byrjunarpunkti en framleiðendur á borð
við Aebi Schmidt hafa tekið forystu með
tækjum eins og nýjum götusóp sem er alfar-
ið rafdrifinn,“ útskýrir hann. „Markmiðið hjá
Schmidt var að þróa rafdrifinn götusóp sem
væri ekki stærri en þeirra vinsælasti götu-
sópur en gæti samt fullnægt ströngustu
kröfum og hreinsað götur viðstöðulaust út
langan vinnudag. Útkoman er götusópur sem
varla heyrist í og getur hreinsað göturnar í
10 klst. áður en þarf að stinga honum aftur í
samband.“
Læðist um göturnar
Götusópurinn sem um ræðir er meðalstór,
með litlu stýrishúsi, og hentar vel til þrifa í
þröngum miðborgargötum. „Tækið er búið
tveimur rafgeymapökkum þar sem annar
knýr áfram hreinsibúnaðinn og hinn knýr
mótorana sem hreyfa götusópinn úr stað.
Rafhlöðurnar gera þennan fullkomna götu-
sóp dýrari en ef valin væri sprengihreyfilsvél
en á móti kemur að raforkan er mun ódýrari
en díselolía. „Þeir hafa reiknað það út í
Þýskalandi að rafdrifni götusópurinn skili
85% sparnaði í orkukostnaði og 70% sparn-
um í viku, oft að
nóttu til þegar götur
eru auðar, þegar
hætta er á að hávað-
inn frá vél og hreinsi-
búnaði veki fólk sem býr
og gistir á þessum stöðum. „Það eru meira
að segja komnir nýir burstar á markað,
framleiddir af Weber í Þýskalandi, og eru
nánast hljóðlausir. Hávaðinn frá rafdrifnum
götusóp gæti því verið minni en hljóðið í
ryksugu.“
Vinnuþjarkur sem hjálpar
líka fötluðu fólki
Aebi Schmidt hefur líka smíðað lítið raf-
drifið fjölnota tæki sem hægt er að festa á
aukahluti s.s. til að slá gras, blása snjó og
sópa götur. „Þetta tæki er á beltum svo það
kemst nánast hvert á land sem er og veldur
ekki skemmdum á jarðvegi. Ökumaður getur
komið sér fyrir í þægilegu sæti eða fjarstýrt
tækinu, t.d. ef vinna þarf í miklum halla.“
Friðrik viðurkennir að í svona litlum
pakka endist hleðslan á rafhlöðunum ekki
lengi ef mjög er reynt á rafdrifnu beltavél-
ina, s.s. með snjómokstri. Hann segir hægt
að reikna með um það bil tveggja tíma notk-
un í senn og geti tækið því hentað t.d. til að
létta störf umsjónarmanna sem geta gengið í
önnur verk á meðan tækið er hlaðið.
Komið hefur í ljós að rafdrifna litla belta-
vélin gagnast ekki bara við smáfram-
kvæmdir og umhirðu heldur getur líka hjálp-
að fólki með skerta göngugetu að komast
leiðar sinnar. Friðrik segir að vélin sé eins
og lítill skriðdreki með sæti ofan á: „Það er
fátt sem getur stöðvað þetta farartæki og
núna getur fólk í hjólastól farið með vinum
og ættingjum í ferðir út í óspillta náttúruna,
og t.d. auðveldlega ekið upp á tind Esj-
unnar,“ segir hann. „Þarf bara að hafa nægi-
lega mikinn kjark því beltavélin getur ráðið
við mjög mikinn halla og það eru taugarnar
sem gefa sig löngu áður en nokkur hætta er
á að hallinn verði tækinu ofviða.“
Morgunblaðið/RAX
Hreinsar göturnar hljóðlaust
Rafmagnsgötusóparnir frá Schmidt minnka útblástursmengun og raska ekki ró íbúa. Litla rafdrifna
beltavélin getur nýst sem hjólastóll sem kemst auðveldlega yfir urðir og grjót.
Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is
„Markmiðið hjá Schmidt var
að þróa rafdrifinn götusóp
sem væri ekki stærri en
þeirra vinsælasti götusópur
en gæti samt fullnægt
ströngustu kröfum og
hreinsað götur viðstöðulaust
út langan vinnudag,“ segir
Friðrik Ingi Friðriksson.
Rafmagns götusópar
læðast hreinlega um göt-
urnar.
Rafmagnsknúnar vinnuvélar
henta vel í ákveðin verk.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018