Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 20
K ristín Snorradóttir segir að það hafi borgað sig fljótt fyrir hana að ljúka meiraprófs- og vinnuvélaréttindum. Kristín er 27 ára gömul og skrúðgarðyrkjufræðingur að mennt en hún segir það m.a. hafa verið fyrir hvatningu og stuðning vinnuveitanda síns Garðlistar að hún bætti við sig þessum réttindum: „Ég byrjaði að vinna við garðyrkju árið 2007 og fann það fljótlega að starfið átti vel við mig. Meiraprófið tók ég árið 2015 með það að markmiði að geta orðið betur að liði við snjómokstur en samhliða því að hreinsa burt snjóinn þarf að salta göturnar og til þess notaði Garðlist á sínum tíma stóra pallbíla sem kölluðu á aukin ökuréttindi.“ Kristín bætti siðar við sig sk. kerruréttindum til að mega aka kerrum og eftirvögnum yfir 750 kg. „Í garðyrkjunni þarf að flytja mikið af tækj- um, tólum og jarðvegi á milli staða og brýnt að hafa kerruprófið,“ útskýrir hún. „Í garðyrkjunáminu við Landbúnaðarháskólann stóð mér síðan til boða að taka áfanga sem kallast „vinnuvélar“ og veitir leyfi á minnstu gröfurnar, en ég er hins vegar þessi „go big or go home“-týpa, sleppti því þessum áfanga og fór beint í námskeið í stóru gröfunum og hjólaskófl- unum.“ Gæðastundir á gröfunni Kristínu þótti ekki sérlega strembið að öðlast vinnuvélaréttindin en meiraprófið var stærri pakki. „Það má sinna bóklegum hluta vinnuvél- anámsins yfir netið eftir hentugleika og því auðveldara að samræma það störfum og fjölskyldulífi. Meiraprófið kallar aftur á móti á að eyða mörg- um kvöldum í skólastofu og felur því í sér meiri röskun.“ Það kostar sitt að ljúka meiraprófi og öðlast vinnuvélaréttindi en Kristín kveðst alls ekki sjá eftir ákvörðuninni: „Fyrir mig borgaði þetta sig alveg 100%. Með þessi réttindi upp á vasann er fátt sem getur stoppað mann.“ „Með þessi réttindi upp á vasann er fátt sem getur stoppað mann“ Morgunblaðið/Eggert Þegar Kristín Snorradóttir er á gröfunni finnst henni gefandi að sjá hvernig vinnunni fleygir fram og umhverfið tekur breytingum með hverri skóflustungu Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Vinnuveitandi Kristínar hvatti hana til að fá meirapróf og vinnuvélaréttindi svo hún gæti gengið í fleiri störf. Ein af Instagram myndum Kristínar. Hún vill vera öðrum konum fyrirmynd. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 i: kg og 2500 kg álkerrur pallur 303x150x35 að opna að framan og aftan. 435.000,- og 535.000,- VSk og skráningu. g ýmsar stærðir af 750 kg álkerrum. Kerrur frá Humbaur ýmsum gerðum Dæm 1300 Hægt Verð með Einni til á lager í Smiðjuveg 40 (gul gata) 200 Kópavogi | Sími:517 7718 | topplausnir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.