Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 21
Gaman er að líta yfir fallegan garð í lok dags. Hér snyrtir Kristín fallegt og þétt tré. Ekki er nóg með að réttindin geri Kristínu að verðmætari starfskrafti heldur létta þau henni líka störfin. „Það getur stundum verið mikill lúxus að fá að sitja uppi í gröfunni og moka holur og skurði með því einu að ýta til stýripinnum, varin gegn veðri og vindum.“ Hún segir líka mjög gefandi að t.d. vinna á gröfu. „Það getur verið af- skaplega gaman að leika sér með öflugri vinnuvél þegar maður hefur náð góðri tengingu við tækið. Þá hreyfir maður stýripinnana nánast án þess að hugsa og sér hvernig verkefninu fleygir fram. Er mjög góð tilfinning að geta t.d. litið yfir dagsverkið og séð að maður er búinn að moka burt heilli lóð og hægt að hefjast handa við jarðvegsskipti og að gera garðinn fal- legan,“ útskýrir Kristín. „Það sem mér finnst hvað mest gefandi við starf skrúðgarðyrkjufræðingsins er einmitt að sjá umhverfið breytast: koma að garði þar sem órækt eða tilbreytingaleysi ræður ríkjum og skilja við fal- legan og vistlegan garð.“ Kristín hóf að sýna störf sín á Instagram m.a. til að upp- fræða ættingja og vini. Kristín kallar ekki allt ömmu sína og er virk í Félagi fagkvenna. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 21 Helluhraun 4, 220 Hafnarfjörður, sími 565 2727, 892 7502, www.rag.is • RAG Import-Export Mercedes Benz 519 Arctic Edition Mercedes Benz 519 Arctic Edition, 4x4 með háu og lágu drifi, 21 manna. Og nú er hægt að fá þær með 35T breytingu eftir íslenskri fyrirmynd. Þeir sem ætla að tryggja sér nýjar rútur 2019 þurfa að fara að panta. Erum farin að taka niður pantanir fyrir 2019 árgerðina. Hafðu samband! Kristín er virk í starfi Félags fagkvenna en um er að ræða félagsskap kvenna sem starfa í greinum sem hingað til hafa þótt karlagreinar. Í félaginu eru m.a. skrúðgarð- yrkjufræðingar, rafvirkjar, smiðir og píparar, bifvélavirkjar o.fl. og segir Kristín að með- limum fjölgi jafnt og þétt. Það hallar ekki bara á konur á þessum sviðum heldur er líka töluverð karlaslagsíða á þeim sem ljúka meiraprófi og vinnu- vélaréttindum. „Ég var ekki eina stelpan í meiraprófsnáminu, en við vorum klárlega í minnihluta,“ segir Kristín en bætir við að hún sjái þess merki í umferðinni að konum með meirapróf fari fjölgandi: „Mér finnst ég æ oft- ar sjá konur á bak við stýrið á strætis- vögnum og vörubílum, hef orðið vör við tölu- verða breytingu á skömmum tíma.“ Aðspurð hvað hún telji sennilega skýringu á að ekki skuli fleiri konur ljúka meiraprófi og vinnuvélaréttindum segir Kristín að sig gruni helst að of margar kynsystur sínar láti óöryggið þvælast fyrir sér. „Það er með þetta eins og allt annað að hæfnin kemur með æfingunni og það er hvorki flóknara né auðveldara fyrir konur að ná á þessu tök- um.“ Til að leggja sín lóð á vogarskálarnar og auka sýnileika kvenna í sínu fagi setti Kristín í loftið instagramsíðuna Kristinthegardener og er þar hægt að skyggnast inn í dagleg störf hennar og sjá afraksturinn af vinnunni. „Ég lét verða af þessu eftir afmælisboð hjá frænda mínum þar sem ættingjarnir áttu ósköp erfitt með að átta sig á hvað ég væri að gera, með öll þessi próf mín og réttindi og hve krefjandi starfið getur verið á köflum. Bæði vildi ég að ættingjarnir skildu betur hvað ég er að tala um, en líka reyna að vera góð fyrirmynd og sýna öðrum konum að við getum gert allt sem við einsetjum okkur.“ Sýnir starfið sitt stolt á Instagram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.