Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
H
vað getur þú sagt okkur um þá starfsemi?
„Félag vinnuvélaeigenda var stofnað árið
1953 og hefur átt aðild að Samtökum iðn-
aðarins frá 1993. Félagið hefur unnið að
mörgum og fjölbreyttum baráttumálum í
gegnum tíðina er varða framgang greinarinnar. Helstu
áherslumál um þessar mundir varða m.a. endurmenntun
atvinnubílstjóra, menntamál tengd jarðvinnuverktöku og
nýliðun í greininni.“
Nýliðun mikilvæg
Spurður um nýliðun segir Óskar að hún sé of lítil. „Við
verðum að finna leiðir til að breyta því. Sömuleiðis skort-
ir okkur verklegt og bóklegt nám sem tengist jarð-
vinnuverktöku. Við þurfum að tengja jarðvinnuverktöku
betur inn í menntakerfið m.a. til að stuðla að nýliðun í
faginu.“
Ríkir stuðningur stjórnvalda við ykkar baráttumál?
„Félagið okkar hefur rödd og þar af leiðandi einhver
áhrif. Við komum sjónarmiðum félagsins á framfæri, s.s.
í gegnum umsagnir við lagafrumvörp og fleira. Oft er
tekið tillit til okkar sjónarmiða. Sömuleiðis vinnast ýmis
sameiginleg baráttumál innan Samtaka iðnaðarins.
Stjórnvöld vinna um þessar mundir að því að búa til
hvata til orkuskipta, sem er jákvætt og félagsmenn vilja
vinna að jákvæðri þróun í þessum efnum. Tækni-
framþróun er hröð en þó er það svo að ekki er hægt að fá
stærri ökutæki, vinnuvélar og sum iðnaðartæki þannig að
þau nýti endurnýjanlega orkugjafa. Það er ekki tækni-
lega mögulegt í nánustu framtíð fyrir jarðvinnuverktaka
að bregðast við hvötum sem stjórnvöld hafa talað fyrir.
Félagið hefur ásamt Samtökum iðnaðarins talað fyrir því
að hvatarnir verði að vera þannig að raunhæft sé að
framfylgja þeim og gerðar séu undanþágur, þegar kemur
að auknum gjöldum o.fl., vegna þeirra sem hafa ekki
möguleikann á orkuskiptum.“
Uppbygging mikil í greininni
Hvernig hefur tíðin verið að undanförnu hjá ykkur?
„Það er mikið er að gera hjá jarðvinnuverktökum
núna. Verktakar hafa verið að endurnýja tæki og byggja
fyrirtækin upp til að geta mætt aukningu í eftirspurn.
Frá 2014 hefur rekstrarumhverfi verið að lagast. Það er
meira framboð af verkefnum samhliða aukinni uppbygg-
ingu í samfélaginu.“
Hvað er það nýjasta á markaði?
„Það nýjasta núna er aukin sjálfvirkni vinnuvéla. GPS-
búnaður sem hefur verið keyptur sem aukabúnaður í
vinnuvélar og settur í eftir á, er að koma sem staðalbún-
aður frá framleiðendum. Við það eykst sjálfvirkni, gröfur
geta unnið eftir hönnun og vélin fer ekki dýpra en á að
grafa. Þá er ekki grafið dýpra en þarf og vinnusparnaður
verður þannig til í ferlinu.
Eins eru eftirlitskerfi sem gera stjórnendum fyr-
irtækja kleift að fylgjast með verkum og vélum í gegnum
netið.“
Með höfuðstöðvar í Borgarnesi
Hvernig lýsir þú Borgarverki?
„Fyrirtækið var stofnað árið 1974 í Borgarnesi. Fastir
starfsmenn eru 72 en þeim fjölgar talsvert yfir sumarið
þegar mesti álagstíminn er. Höfuðstöðvar Borgarverks
eru í Borgarnesi en einnig er rekin starfsstöð á Selfossi.
Helstu verkefni sem í gangi eru um þessar mundir eru
yfirlagnir fyrir Vegagerðina á Norðurlandi, Vesturlandi
og Suðurlandi, styrking Biskupstungnabrautar, styrking
vega á Norðausturlandi, vegur um Hvolsdal í Dalasýslu,
Uxahryggjavegur, Götuás-Gröf, gatnagerð á Hvanneyri í
Borgarbyggð, gatnagerð á Hagalandi á Selfossi, gamli
miðbærinn á Selfossi og Grænamörk, endurnýjun lagna á
Selfossi.“
Óskar segir að stærstu
viðskiptavinir fyrirtækisins
séu Vegagerðin, Borg-
arbyggð, Árborg, Selfos-
sveitur og Orkuveita Reykja-
víkur.
Hvernig sérðu framtíðina?
„Almennt séð lítur fram-
tíðin vel út. Stjórnvöld tala
um að auka við fjármagn í
innviðauppbyggingu. Mikið
er að gera í uppbyggingu á
íbúðarhúsnæði. Þetta þýðir
aukin verkefni fyrir jarðvinnuverktaka.“
Tæknibreytingar eru tækifæri
Hvernig er að starfa á markaði sem er svona sveiflu-
kenndur?
„Í okkar bransa er mjög erfitt að gera áætlanir langt
fram í tímann. Við sjáum í besta falli eitt ár fram í tím-
ann, því þarf að fara varlega. Það koma alltaf samdrátt-
artímabil sem fyrirtækin þurfa að geta tekist á við.“
Hvað þykir þér gaman að gera utan starfstíma?
„Frítíma er að mestu varið með fjölskyldunni. Ég hef
áhuga á ferðamennsku og ferðast nokkuð um landið á
jeppa og er einnig með fjórhjól.“
Óttastu tæknibreytingar eða eru þær tækifæri?
„Tæknibreytingar eru tækifæri fyrir verktaka.“
Baráttumál greinarinnar mörg
Óskar Sigvaldason hefur starfað hjá Borgarverki alla sína starfsævi eða frá fjórtán ára aldri. Í fyrstu sem sumarstarfsmaður en síðar í
föstu starfi. Hann er viðskiptafræðingur og ötull í baráttumálum greinarinnar. Í dag starfar hann sem formaður Félags vinnuvélaeigenda.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Það er mikið er að gera
hjá jarðvinnuverktökum
núna. Verktakar hafa
verið að endurnýja tæki
og byggja fyrirtækin upp
til að geta mætt aukningu
í eftirspurn. Frá 2014
hefur rekstrarumhverfi
verið að lagast.“
Óskar Sigvaldason er for-
maður Félags vinnuvéla-
eigenda. Félagið var stofn-
að árið 1953 og hefur átt
aðild að Samtökum iðn-
aðarins frá 1993.