Morgunblaðið - 25.09.2018, Síða 2
Morgunblaðið/Eggert
Læknar Svandís fundaði með hags-
munaaðilum í ráðuneytinu í gær.
leiðir komi til greina í þeim efnum.
Segir þar einnig að breytt fyrirkomu-
lag kalli á „vandaða greiningarvinnu,
góðan undirbúning og samráð við
hagsmunaaðila“ og því sé æskilegt að
framlengja gildandi rammasamning.
Þá verði framkvæmd hans á gildis-
tímanum að byggjast á nýlegri nið-
urstöðu héraðsdóms sem kveði á um
að fram fari faglegt mat á hverri um-
sókn læknis sem óskar eftir að starfa
á grundvelli rammasamningsins. „Ég
er vongóð um að það megi ná nið-
urstöðu um fyrirkomulag sem allir
geta vel við unað og er í þágu sjúkl-
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð-
herra fundaði í gær með fulltrúum
allra helstu hagsmunaaðila í málefn-
um sérgreinalækna í velferðar-
ráðuneytinu og lagði þar fram hug-
myndir sínar um framtíðar-
fyrirkomulag við kaup á þjónustu
sérgreinalækna. Lýsti hún þar vilja
sínum til að framlengja gildandi
rammasamning um eitt ár meðan
unnið yrði að breyttu fyrirkomulagi.
Í fréttatilkynningu frá velferðar-
ráðuneytinu sagði að heilbrigðisráð-
herra legði áherslu á vilja sinn til að
koma á skipan sem myndi stuðla „að
samfelldri þjónustu við sjúklinga og
tryggir sem best samspil milli meg-
instoða heilbrigðiskerfisins, þ.e.
heilsugæslu, heilbrigðisstofnana,
sjálfstætt starfandi heilbrigðisstétta
og sérhæfðra sjúkrahúsa“.
Skv. tilkynningunni segir ráðherra
ljóst að endurskipuleggja þurfi fyr-
irkomulag þessara mála og að ýmsar
inga,“ segir Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.
Þórarinn Guðnason, formaður
Læknafélags Reykjavíkur, segir að
þessar tillögur ráðherra verði ræddar
á félagsfundi í kvöld. „Þar er ætlunin
að ræða ýmis mál, en sá fundur var
löngu ákveðinn. Ráðherra kom með
ákveðið útspil á þessum fundi um að
framlengja núgildandi samning og við
munum ræða þær tillögur í okkar
hópi á fundi í Læknafélagi Reykjavík-
ur á morgun.“ Hann segir að læknar
hafi einnig ákveðnar hugmyndir um
lausnir sem verði væntanlega ræddar
á fundi með ráðherra og Sjúkratrygg-
ingum Íslands á fimmtudaginn í
næstu viku. „Þannig að samtal er haf-
ið og ég lýsi yfir ánægju með það.“
Verður ekki áfrýjað
Fyrr um daginn hafði ráðuneytið
tilkynnt að heilbrigðisráðherra hygð-
ist ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms
í máli sérgreinalæknis varðandi aðild
að rammasamningi Sjúkratrygginga
Íslands. Hins vegar teldi ráðherra nið-
urstöðuna undirstrika nauðsyn þess
að núverandi fyrirkomulag yrði end-
urskoðað með gerð nýrra samninga á
öðrum grunni. Þá myndu sérfræðing-
ar ráðuneytisins og Sjúkratrygginga
fara yfir niðurstöðu héraðsdóms til að
ákveða næstu skref og hefur ráðu-
neytið beðið Sjúkratryggingar um að
leggja fram áætlun um framkvæmd
samningsins á gildistíma hans.
Heilbrigðisráðherra gerði einnig
athugasemd við fullyrðingar þriggja
sérfræðilækna, þeirra Högna Ósk-
arssonar, Sigurðar Árnasonar og Sig-
urðar Guðmundssonar, sem birtust í
aðsendri grein í Morgunblaðinu í
gær, þar sem þeir sökuðu ráðherrann
um að láta pólitíska kreddu stýra
ákvörðunum sínum í málefnum sér-
greinalækna.
Segir í athugasemd ráðherra að
það skipti máli að ríkið axli ábyrgð
sína sem kaupandi þjónustu fyrir al-
mannafé, þar sem fjármunir til heil-
brigðisþjónustu séu ekki ótakmark-
aðir. Segir þar einnig að óvenjulegt sé
að ekki sé fyrir hendi þjónustustýring
varðandi starfsemi sérgreinalækna
og að þessu þurfi að breyta. „Það er
hins vegar alröng fullyrðing sem fram
kemur í grein læknanna þriggja … að
ég ætli að færa þjónustu sjálfstætt
starfandi sérgreinalækna „að miklu
leyti eða alfarið inn á göngudeildir
sjúkrahúsanna“ og mér finnst það
áhyggjuefni að rangfærslur sem
þessar séu ítrekað settar fram í um-
ræðunni,“ segir Svandís. »19
Leggur til framlengingu um ár
Heilbrigðisráðherra lagði fram sínar hugmyndir að framtíðarfyrirkomulagi kaupa á þjónustu
sérgreinalækna Ráðherra mun ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms Mótmælir aðsendri grein
Svandís
Svavarsdóttir
Þórarinn
Guðnason
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 Flo
ttir í fötu
m
Frímúrarar – Oddfellowar
Frábæru
kjólfötin okkar
komin aftur
Verð 76.900,-
með svörtu vesti
Nú þegar nokkuð er liðið á haustið fara farfuglarnir okkar að
hugsa sér til hreyfings suður á bóginn þar sem hlýrra veður-
far bíður þeirra. Stór gæsahópur sem blasti við ljósmyndara
Morgunblaðsins við Lagarfljótið virðist búa sig undir að yfir-
gefa landið. Ljósin á Egilsstaðaflugvelli sjást í forgrunni og
hafa gæsirnar eflaust notið góðs af þeim við flugtakið.
Farfuglarnir búa sig undir brottför frá landinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæsahópur heldur suður á bóginn frá Lagarfljóti
Valur Lýðsson var í gær dæmdur í
Héraðsdómi Suðurlands í sjö ára
fangelsi fyrir að hafa orðið Ragnari
bróður sínum að bana hinn 31. mars
síðastliðinn með stórhættulegri og
vísvitandi líkamsárás.
Ákæruvaldið krafðist þess að Val-
ur yrði dæmdur í 16 ára fangelsi fyr-
ir brot sitt, en dómari taldi hins veg-
ar að ekki hefði tekist að sanna að
það hefði vakað fyrir Val að ráða
bróður sínum bana og því yrði 211.
gr. almennra hegningarlaga, sem
fjallar um manndráp af ásetningi,
ekki beitt um háttsemi hans.
Í dómnum segir meðal annars að
þar sem „enginn er til frásagnar um
þau atvik sem leiddu til átaka milli
þeirra bræðra er ekkert hægt að
fullyrða um upptökin að þeim“, en að
auki er tekið fram að fyrir liggi að
Valur hafi átt það til að beita ofbeldi
undir áhrifum áfengis og eigi sögu
um óminni eftir neyslu áfengis.
Þannig er tekið fram í dómnum að
ekki verði talið ljóst að ákærði hafi
áttað sig á því að gjörðir hans gætu
verið lífshættulegar, auk þess sem
ekkert hafi komið fram í málinu sem
bent geti til þess að Valur hafi notað
einhvers konar vopn eða áhald er
hann veittist að bróður sínum, en
verjandi Vals benti á það sem dæmi
um skort á ásetningi.
Auk fangelsisdómsins var Val
sömuleiðis gert að greiða fjórum
börnum Ragnars þrjár milljónir
hverju fyrir að hafa banað föður
þeirra. Þá greiðir Valur allan sak-
arkostnað í málinu. sgs@mbl.is
Dæmdur í fangelsi til
sjö ára fyrir manndráp
Ekki sannað að Valur hafi ásett sér að myrða bróður sinn
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Dómur Valur Lýðsson ásamt verj-
anda sínum við upphaf málsins.