Morgunblaðið - 25.09.2018, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
Björgunarsveitin á Húsavík bjargaði
í gær manni sem var í vanda í sjón-
um. Samkvæmt tilkynningu frá
Landsbjörg hafði maðurinn verið á
bretti í sjónum út af Höfðagerðis-
sandi við Barm í talsverðan tíma
þegar félaga hans var hætt að lítast á
blikuna. Óskaði sá þá eftir aðstoð í
gegnum neyðarlínuna og barst boðið
til björgunarsveitarinnar rétt fyrir
klukkan átta um kvöldið.
Þar sem óljóst var hvar maðurinn
var var mikill fjöldi björgunarsveit-
armanna kallaður út á nokkrum bát-
um, en björgunarsveitin naut einnig
aðstoðar frá ferðaþjónustufyrirtæki
á Húsavík, sem útvegaði nokkra báta
til viðbótar.
Maðurinn fannst 27 mínútum eftir
að útkallið barst og var siglt með
hann í land, þar sem sjúkrabíll tók
við honum og fór með hann til að-
hlynningar á Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Húsavík.
Bjargað
úr sjónum
við Barm
Var talsverðan
tíma í sjónum
Tveir karlmenn á
þrítugsaldri hafa
verið ákærðir af
embætti héraðs-
saksóknara fyrir lík-
amsárás á dyravörð
fyrir utan skemmti-
staðinn Kíkí í des-
ember 2016.
Þeir eru einnig
ákærðir fyrir brot
gegn valdstjórninni
með því að hafa reynt að koma í veg
fyrir handtöku og ráðist á lög-
reglumenn. Til viðbótar er sambýlis-
kona annars mannanna ákærð fyrir
að hafa reynt að sparka í höfuð lög-
reglumanns og togað í hár hans þeg-
ar verið var að handtaka mennina
tvo.
Í ákærunni er því lýst að menn-
irnir hafi slegið dyravörðinn með
krepptum hnefa í andlitið. Þá er
annar þeirra sagður hafa tekið dyra-
vörðinn hálstaki. Eftir að lögregla
mætti á staðinn hafi fyrri maðurinn
klipið lögreglumann í lærið og bitið
hann í handlegg. Þá hafi hann haft í
hótunum við lögreglumenn á lög-
reglustöðinni og sagst ætla að „gera
eitthvað miður skemmtilegt við þá
og aðstandendur þeirra“.
Hinn maðurinn er ákærður fyrir
að hafa bitið annan lögreglumann í
innanvert lærið. Konan er ákærð
fyrir að hafa ekki hlýtt fyrirmælum
lögreglu á staðnum og reynt að
koma í veg fyrir handtöku mann-
anna. Þannig gerði hún tilraun til að
sparka í höfuð tveggja lögreglu-
manna og togaði í hár annars þeirra.
Tveir ákærðir
fyrir árás á
dyravörð
Skemmtistað-
urinn Kíkí
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fulltrúar Spalar ehf. og ríkisins
funduðu í gær um yfirtöku ríkisins á
Hvalfjarðargöngunum en ráðgert er
að gjaldtöku í göngin verði lokið á
föstudaginn í þessari viku. Gísli
Gíslason, formaður stjórnar Spalar
ehf., segir að enn sé verið að leysa úr
ákveðnum hnútum sem komið hafi
upp og þar spili spurningar um af-
skriftir og skattamál inn í. Hann seg-
ir að ekki hafi tekist að leysa þau mál
á fundinum í gær.
„En við erum
vongóðir um að
það sjáist til lands
á morgun [í dag,
þriðjudag] eða á
miðvikudaginn.“
Gísli segir að
ekki verði neinn
formlegur fundur
í dag á milli aðila
en menn verði í talsambandi. „Þetta
mjakast en er ekki klárt.“
Gísli segir að ganga þurfi fljótt
saman til að fyrri tímaáætlun um lok
gjaldtökunnar geti gengið eftir. „Við
erum búnir að setja tímamörkin á að
hætta gjaldtöku á föstudaginn, að
því gefnu að við getum klárað allt
það sem þarf að vera á tæru og við
höfum þá ekki lengri tíma en fram á
miðvikudaginn til þess að ljúka verk-
efninu. Ég treysti því að það gangi
eftir, en það er ekki klárt ennþá.“
Gísli tekur fram að samningsvilji
hvorra tveggja sé mikill. „Það er vilji
allra að ljúka málinu eins fljótt og
hægt er.“
Enn að leysa úr ákveðnum hnútum
Gísli Gíslason
Stefnan að hætta gjaldtöku í Hvalfjarðargöngin á föstudaginn Vilja ljúka málinu sem fyrst
Hvalfjarðargöng Stefnt er því að gjaldtöku verði lokið á föstudaginn.