Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 10

Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 10
Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 Mikið var af gullglyrnum hér á landi seinni part sum- ars. „Gullglyrnurnar streymdu yfir landið austanvert. Á Höfn í Hornafirði sáust þær í hverjum garði í ágústmánuði. Smám saman tóku þær að berast vest- ur eftir landinu allt til höfuðborgarinnar,“ skrifar Er- ling Ólafsson skordýrafræðingur á facebooksíðu sína, Heimur smádýranna, og talar um að þær hafi gert innrás. „Gullglyrnan þokkafulla er af bálki netvængja,“ skrifar Erling. „Hún er árviss gestur hér frá Evrópu sem berst sunnan úr álfunni með hlýjum vindum. Í byrjun ágúst streymdi til landsins fjöldi þessara glæsilegu smádýra með granna græna bolinn og stóru glertæru vængina með þéttriðna æðanetinu sem leggjast í ris í hvíld. Gulgræn augun eru ein- staklega falleg, stór og hvelfd, líkust sindrandi gull- molum. Þaðan kemur heitið.“ Ekki hefur verið sýnt fram á að gullglyrnur fjölgi sér hérlendis, en vísast geta þær lifað af vetur í köld- um geymslum og sumarhúsum. Eintök af gull- glyrnum sem finnast úti á landsbyggðinni eru ávallt vel þegin, skrifar Erling. aij@mbl.is Ljósmynd/Heimur smádýranna Árviss gestur Gullglyrnan er af bálki netvængja og sótti þessi Kópasker heim í sumar. Gullglyrnur gerðu innrás  Í hverjum garði á Höfn  Augun sem sindrandi gullmolar Þú færð tveggja ára aukaábyrgð með allri þjónustu innifaldri þegar þú kaupir notaðan, viðurkenndan Mercedes-Benz bíl hjá okkur. Viðurkenndir Mercedes-Benz. Nýskráður 5/2015, ekinn 39 þús. km, dísil, 2143 cc og 170 hestöfl. Auka- búnaður: Dráttarbeisli, krómútlits- pakki, minnispakki fyrir sæti o.fl. Nýskráður 12/2015, ekinn 28 þús. km, dísil, 2143 cc og 170 hestöfl. Aukabúnaður: Næturpakki, glerþak, bakkmyndavél o.fl. Nýskráður 4/2016, ekinn 17 þús. km, dísil, 2143 cc og 205 hestöfl. Aukabúnaður: Leðuráklæði, bakk- myndavél, fjarlægðarskynjarar o.fl. GKL 220 4MATIC 4.490.000 kr. GLC 220 4MATIC 6.490.000 kr. C 250 4.490.000 kr. Askja notaðir bílar www.notadir.is · 5902160 Nýskráður 5/2015, ekinn 52 þús. km, dísil, 1461 cc og 90 hestöfl. A-Class 160 CDI 2.490.000 kr. Nýskráður 5/2015, ekinn 51 þ. km, dísil, 2143 cc og 136 hestöfl. Aukabúnaður: Leðuráklæði, nætur- pakki, hærri fjöðrun o.fl. B-Class 200 3.150.000 kr. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Mér þykir það miður að ekki hafi orðið framhald á. Það var lögð mikil vinna, tími og fyrirhöfn í þetta verk- efni og markmiðið var að bæta starf- semi, starfshætti og þjónustu Sam- göngustofu. Ég held að það hafi verið full þörf á að ljúka þessari vinnu,“ segir Sig- urður Kári Krist- jánsson, lögmaður og formaður starfshóps sem skipaður var á síð- asta ári um störf Samgöngustofu. Ár er liðið frá því starfshópurinn skilaði af sér áfanga- skýrslu en ekki verður séð að nokkuð hafi verið gert með skýrsluna í ráðu- neytinu. „Starfshópurinn fékk á sinn fund tugi gesta, ég myndi giska á að þetta hafi verið um 80 manns. Á grundvelli viðtalanna og gagna skrifuðum við þessa skýrslu með fjölmörgum tillög- um og ábendingum. Við gerðum til að mynda athugasemdir við ýmislegt í innri starfsemi og stjórnun Sam- göngustofu og öll þessi atriði voru til- greind og rökstudd nokkuð ítarlega. Í kjölfar þessa þá hefur ráðuneytið ekki óskað eftir því að starfshópurinn leggi af mörkum frekari vinnu og þar við situr,“ segir Sigurður Kári. Meðal þess sem fram kemur í áfangaskýrslu starfshópsins er tillaga um að gera forskráningar bifreiða rafrænar sem fyrst. Afgreiðslu núm- era verði úthýst til skoðunarstöðva og þeim verði falið að annast að fullu skráningu eigendaskipta á ökutækj- um. Þá segir í skýrslunni að ekki sé nægur mannafli til að sinna lög- bundnum verkefnum og eftirliti með flugstarfsemi innan Samgöngustofu. Á sama tíma sé jafnframt nauðsyn- legt að tryggja skýran aðskilnað milli eftirlitsaðila og eftirlitsskyldra aðila; flugrekstraraðila, Isavia og Sam- göngustofu. Raunar kom fram í vinnu starfshópsins alvarleg gagnrýni á samskipti Samgöngustofu og Isavia. „Hefur verið á það bent að eftirlits- og stjórnvaldshlutverk Samgöngustofu hafi ekki verið virt. Samskiptin hafi hvorki verið nægilega fagleg né form- leg og þess ekki gætt að hafa hæfilega fjarlægð gagnvart Isavia við töku ákvarðana sem snerta fyrirtækið beint. Lagt til að ráðherra láti kanna þetta málefni sérstaklega í því skyni að ákveða hvort ástæða þyki til frek- ari viðbragða.“ Í skýrslunni er lagt til að laga- umhverfi og reglur sem snúa að smíði og skoðun skipa verði endurskoðuð. Fleiri verkefnum á sviði siglinga verði útvistað og lögskráning sjómanna endurskoðuð. Að síðustu kemur fram að marg- víslegar athugasemdir hafi verið gerðar við skipulag Samgöngustofu og stjórnunarhætti. Mikið álag hafi verið á starfsfólki og fólksflótti frá stofnuninni. „Starfshópurinn telur ástæðu til að skoða hvernig unnið er úr erfiðum starfsmannamálum innan stofnunarinnar. Mikilvægt er að tryggja við úrvinnslu erfiðra mála, t.d. þegar samskiptaörðugleikar koma upp eða aðfinnslur eru gerðar við störf tiltekinna starfsmanna, að unnið sé eftir skýrum verklagsreglum og réttindi starfsfólks tryggð.“ Ekki náðist í Sigurð Inga Jóhanns- son samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra. Morgunblaðið/Þórður Samgöngustofa Ýmsar athugasemdir voru gerðar við starfsemina í skýrslu starfshóps og tillögur um úrbætur. Alvarleg gagnrýni og krafa um úrbætur  Ár liðið frá því áfangaskýrslu um Samgöngustofu var skilað Sigurður Kári Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.