Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 14

Morgunblaðið - 25.09.2018, Side 14
Ný veglína þjóðvegar 1 um Mýrdalshrepp Steig Ás Skeiðflöt Hvammból Ketilsstaðaskóli Rauðháls Oddnýjartjörn Vatnsskarðshólar Garðakot Dyrhólar Skagnes Suður-Götur Suður-Hvammur Reynisfjall Dyrhólaey Dyrhólaós Vík Víkurheiði Norður-Foss Suður-Foss Reynishverfi Þórisholt Lækjarbakki Reyniskirkja Garðar Reynisfjall Núverandi veglína þjóðvegar Ný veglína þjóðvegar Aðrir vegir Loftmyndir ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Í yfirliti um innihald samgönguáætl- unar, sem kynnt var í ríkisstjórn í síð- ustu viku, eru hringvegi um Mýrdal og jarðgöngum um Reynisfjall mark- aðir 5,3 milljarðar króna á yfirliti um nokkrar vegaframkvæmdir á 2.-3. tímabili á Suðurlandi. Það er á ár- unum 2022-2033. Tekið er fram að leitað verði leiða til að fjármagna verkefnið í samvinnu við einkaaðila. Yfirlitið er birt með þeim fyrirvara að það hafi ekki verið samþykkt í þing- flokkum stjórnarflokkanna. Láglendisvegur og göng í gegnum Reynisfjall myndu stytta leiðina milli Víkur og höfuðborgarsvæðisins um þrjá kílómetra og vegfarendur þyrftu ekki lengur að aka upp í 120 metra hæð til að komast leiðar sinnar. Ekki þyrfti lengur að fara um hina ill- ræmdu Gatnabrún, sem oft er erfið yfirferðar í vetrarveðrum og hálku, né heldur um Víkina, fjallaskarð þar sem oft er mjög sviptivindasamt. Á báðum stöðum hafa slys og umferð- aróhöpp verið nokkuð tíð. Hugmyndin um göng ekki ný Hugmyndin um göng í gegnum Reynisfjall og láglendisveg er ekki ný af nálinni. Fram kemur í grein Þóris N. Kjartanssonar Mýrdælings í Morgunblaðinu í fyrra að göng undir Reynisfjall og meðfylgjandi láglend- isveg hafi komist á dagskrá hjá Mýr- dælingum í aðdraganda sameiningar Dyrhólahrepps og Hvammshrepps árið 1983. Vegagerðin gaf út jarðgangaáætl- un í janúar árið 2000. Þar er Reyn- isfjall eitt af 21 jarðgangaverkefni sem stofnunin telur að eigi að koma til skoðunar. Bent er á að á hringveg- inum á Suðurlandsundirlendi megi segja að Reynisfjall sé eina verulega misfellan. Þar sé snjór stundum til trafala og leiðin upp á fjallið að vest- anverðu, um svonefnda Gatnabrún, brött. Oft hafi verið rætt um að ein- faldast sé að fara í gegnum fjallið í til- tölulega stuttum göngum. Eðlilegast væri þá að færa veginn í Mýrdalnum töluvert sunnar og fara í gegnum fjallið á móts við Vík og svo áfram með veginn sjávarmegin byggð- arinnar. Málið hefur oft borið á góma á al- þingi. Hjálmar Árnason alþing- ismaður lagði ásamt fleirum fram þingsályktunartillögu árið 2003 um að samgönguráðherra yrði falið að láta fara fram úttekt á gerð jarð- ganga í Reynisfjalli. Samgöngunefnd óskaði eftir umsögnum. Í umsögn Vegagerðarinnar kom m.a. fram að göng í Reynisfjalli yrðu um 1,2 km á lengd. Áætlað var að heildarkostn- aður við tvíbreið göng í gegnum fjall- ið yrði 1,2-1,3 milljarðar á verðlagi ársins 2004. Sigurður Ingi Jóhannsson, nú sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, var alþingismaður 2009 og spurði þá- verandi samgönguráðherra um vega- mál og sjóvarnargarð við Vík í Mýr- dal. Í svari Kristjáns L. Möller kom m.a. fram að jarðgöng í þeirri lausn sem þá var til skoðunar yrðu um 1.600 metra löng. „Jarðgöng eru góð- ur kostur með tilliti til öryggis og greiðfærni en helsti ókosturinn er mikill kostnaður,“ sagði m.a. í svarinu. Ásmundur Friðriksson o.fl. alþing- isþingmenn lögðu fram þingsályktun- artillögu í fyrra þess efnis að sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra yrði falið að beina tilmælum til Vega- gerðarinnar um „að mat á umhverfis- áhrifum framkvæmda við lagningu láglendisvegar um Mýrdal við Dyr- hólaós verði unnið sem fyrst“. Til- lagan var aftur lögð fram 18. sept- ember síðastliðinn. Veglína norðan Dyrhólaóss og göng í gegnum Reynisfjall eru á að- alskipulagi Mýrdalshrepps sem um- hverfis- og auðlindaráðherra sam- þykkti 2013. Jarðgöng í gegnum Reynisfjall  Hugmyndin kom fram fyrir 35 árum  Láglendisvegur eftir öllu Suðurlandsundirlendinu  Farið framhjá hættulegum köflum á leiðinni  Opnað á einkaframkvæmd í drögum að samgönguáætlun Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson Reynisfjall Til vinstri við fjallið sést Reynishverfi og Vík í Mýrdal hægra megin. Reynisdrangar fyrir framan. Myndin var tekin haustið 2015. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018 Bergvin Oddsson, Beddi á Glófaxa, út- gerðarmaður og skip- stjóri í Vestmanna- eyjum, lést á Land- spítalanum 22. september, 75 ára að aldri. Bergvin fæddist 22. apríl 1943 á Norðfirði og ólst þar upp. For- eldrar hans voru hjónin Oddur A. Sigurjónsson skólastjóri og Magnea Bergvinsdóttir. Bergvin kynntist eft- irlifandi eiginkonu sinni, Maríu Friðriksdóttur frá Skál- um á Langanesi, árið 1962. Þau fluttu til Vestmannaeyja í nóvember 1964 og hafa búið þar síðan. Bergvin hafði þá róið þrjár vertíðir frá Eyj- um. Sama ár og þau fluttu til Eyja lauk Bergvin námi í Stýrimanna- skólanum. Hann fór að róa á Stíg- anda VE sem kokkur hjá Helga Bergvinssyni móðurbróður sínum. Þaðan fór Bergvin á Halkion VE og reri á honum í þrjú ár. Svo tók hann við skipstjórn á Ver VE 1969. Eftir það var Bergvin skipstjóri á Stíg- anda VE til 1974 að hann hóf eigin útgerð. Bergvin keypti Gullberg VE ásamt Hrafni bróður sínum og Sæ- valdi Elíassyni mági sínum. Báturinn fékk nafnið Glófaxi VE og var mikið afla- og happaskip. Bergvin keypti félaga sína út úr útgerðinni 1986. Hann eignaðist Arnþór EA, sem var stærri stálbát- ur, 1996 og nefndi hann Glófaxa VE. Bergvin var sjálfur með bátinn til 2008 en gerði hann út þar til í fyrra. Bergvin gerði einnig út lítinn bát, Glófaxa II, og reri á honum. Nýlega fékk hann afhentan nýjan tólf tonna bát, Glófaxa VE 300, sem var smíðaður í Bretlandi. Bergvin var farsæll og aflasæll skipstjóri og missti aldrei mann. Bergvin var jafnaðarmaður alla tíð og tók þátt í bæjarpólitíkinni í Vestmannaeyjum. Þá hafa þau hjón, Bergvin og María, stutt íþrótta- hreyfinguna í Vestmannaeyjum myndarlega í gegnum árin. Þegar þau héldu upp á samtals 150 ára af- mælin sín á liðnu vori afhentu þau ÍBV tíu milljónir króna. Bergvin og María eignuðust þrjú börn, Lúðvík, Magneu og Harald. Andlát Bergvin Oddsson, skip- stjóri og útgerðarmaður Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.