Morgunblaðið - 25.09.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2018
ICQC 2018-20
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
Smásögur úr kjallaranum nefnist
einkasýning myndlistarmannsins
Helga Þórssonar sem nú stendur
yfir í kjallara verslunarinnar
Geysir heima á Skólavörðustíg 12.
Helgi er búsettur í Belgíu þar sem
hann iðkar listsköpun sína og í
kjallaranum sýnir hann bæði tvívíð
verk og skúlptúra.
Á Facebook er haft eftir Helga að
verkin á sýningunni séu „einhvers
konar stuttar sögur ekki ólíkt bíó-
myndinni Short Stories sem hafi
þótt býsna góð þegar hún kom út en
tíminn leiddi svo í ljós að um þunn-
an þrettánda hafi verið að ræða.“
Helgi er fæddur árið 1975, lærði
málmsmíði í Iðnskóla Reykjavíkur,
hlaut BA-gráðu í myndlist frá Ger-
rit Rietveld Academie í Hollandi ár-
ið 2002 og að lokum MA-gráðu í
myndlist frá Sandberg Institiut,
líka í Hollandi, árið 2004.
Hann stofnaði sýningarrýmið
Kunstschlager 2012-2015 með öðr-
um myndlistarmönnum og rekur nú
í slagtogi við fleiri myndlistarmenn
sýningarrýmið ABC Klubhuis í Ant-
werpen í Belgíu. Sýningunni í kjall-
ara Geysis heima lýkur 14. október.
Litrík Nokkur verka Helga á sýningu hans Smásögur úr kjallaranum.
Helgi sýnir í kjallara
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Ég er mjög mikill aðdáandi íslensk-
unnar og allra möguleika hennar.
Við eigum svo mikið af flottum, fal-
legum orðum og orðasamböndum yf-
ir svo geggjaða og einstaka hluti,“
segir Arnar Freyr Freyson rappari
sem gaf nýverið út sína fyrstu sóló-
plötu, Hasarlífsstíl.
Arnar gengur undir listamanns-
nafninu Arnar Úlfur en hann er bet-
ur þekktur sem annar af tveimur
meðlimum rapptvíeykisins Úlfur
Úlfur. Arnar er því enginn nýgræð-
ingur í tónlist en ákvað að snúa sér
að sólóverkefni þegar hinn meðlimur
Úlfs Úlfs, Helgi Sæmundur, fór að
einbeita sér að því að skapa kvik-
myndatónlist.
„Þetta er bara eitthvað sem okkur
hefur langað mjög lengi, við erum að
detta í það að verða fullorðnir menn
og höfum báðir látið okkur dreyma
um að stíga einhver sólóskref. Um
leið og Helgi fór að einbeita sér að
kvikmyndatónlist fékk ég meira
rými til þess að einbeita mér að
þessu dóti en við erum alltaf eitt,
óaðskiljanlegir sálufélagar fram í
rauðan dauðann,“ segir Arnar.
Íslenskunörd varð rappari
Textasmíð Arnars hljómar út-
hugsuð, textar hans ríma nánast
undantekningalaust og eru smekk-
fullir af myndmáli og
vísunum.
Aðspurður viður-
kennir Arnar að hann sé
svolítill íslenskunörd.
„Ég hef alltaf haft áhuga
á tungumálinu, bók-
menntum og ljóðum.
Mér finnst líka gaman
að blanda saman hátíð-
legum orðum og slangri, að vera há-
fleygur en samt svona slangur há-
fleygur.“
Eiginleg merking textanna er þó
ekki í hávegum höfð í textum á plöt-
unni heldur eru rím og myndmál
sett í fyrsta sæti. „Frekar en að
miðla einhverjum einum boðskap
finnst mér meira gaman að mála
myndir með setningum og skapa
andrúmsloft. Það fer
mér betur og mér finnst
það þægilegra,“ segir
Arnar. Platan var unnin
mjög hratt og í raun
kláruð á tveimur mán-
uðum. Arnar segir að
þessi hraði hafi haft
áhrif á textasköpun og
stemningu á plötunni.
„Af því að ég var að vinna þessa
plötu svo hratt þá var ég meira að
vinna með andartakið en við höfum
verið að gera í Úlfi Úlfi. Ég hlustaði
mikið eftir því hvaða sögu undir-
spilið var að segja og túlkaði það
svolítið í einhverju myndmáli, rími,
hrynjandi og þess háttar. Ég var
eiginlega bara að drita eins og mask-
ína,“ segir Arnar.
Gefur allt af sér
Blaðamaður spyr Arnar út í sér-
staka línu í laginu „Falafel“ sem er á
plötunni. Línan er „ég kom hingað
til að gefa blóð, þú komst hingað til
að stela smók.“
Arnar kveðst hissa á því að blaða-
maður spyrji út í þessa línu. „Mér
finnst þessi lína reyndar vera minna
torkennileg heldur en margar.
Þarna er ég einfaldlega að rappa um
senuna, tónlistarsenuna. Það er
náttúrlega mjög göfugt að gefa blóð,
mér líður eins og ég hafi komið og
gefið allt í senuna, allt blóðið á með-
an það er fullt af gaurum sem koma
og eru partur af senunni en gefa
ekkert, eru þarna til að stela smók.
Ég er ekki að tala um neinn ákveð-
inn, ég er bara búinn að vera lengi í
þessari senu og ég hef gefið allt af
mér í langan tíma og það er einfald-
lega það sem ég er að meina með að
gefa blóð.“
Eins og Arnar segir þá er hann
búinn að vera virkur í senunni í
mörg ár. Hann segir rappsenuna
gjörbreytta frá því sem áður var.
„Hún hefur breyst til hins betra.
Aðallega hvað hljóð varðar. Upp-
tökustjórarnir, strákarnir í stúd-
íóinu sem eru á bak við þetta allt,
eru komnir á heimsklassa, það er
held ég mesti munurinn. Þetta er
farið að hljóma svo rosalega vel.“
Arnar segir jákvætt að tónlist-
arstefnan sé komin í tísku. „Þegar
tónlistarstefnan komst í tísku jókst
framboðið rosalega mikið. Mér
finnst það bara vera jákvætt, því
meira framboð, því betur þarftu að
standa þig til þess að skara fram úr.
Ég held að það hafi bara góð áhrif á
tónlistarstefnuna í heild sinni.“
Íslenska senan fjölbreytt
Aðspurður segir Arnar hans sér-
stöðu vera mikla og að langflestir
rapparar á Íslandi greini sig frá öðr-
um. „Mér finnst að ég hafi alveg
mjög mikla sérstöðu, hvort sem það
er varðandi hrynjandina, efnið sem
ég fjalla um eða einfaldlega hvernig
ég orða hlutina. Margir rapparar á
Íslandi hafa einhverja sérstöðu, eng-
ir tveir hljóma eins. Mér finnst eng-
inn hljóma eins og Gauti, mér finnst
enginn hljóma eins og Gísli Pálmi,
mér finnst enginn hljóma eins og Ar-
on Can. Það er svo mikil áhersla á að
vera ekki eins og hinir og það er
gott. Þetta er ekki eins og ameríska
senan þar sem það er eitthvert eitt
heitt lag í gangi og næsta árið eru
menn að reyna að endurskapa þetta
lag. Það er ekki þannig á Íslandi.“
Arnar segir fjölbreytni einkenna
íslensku rappsenuna. „Það sem gerir
þessa litlu senu svona góða er ein-
faldlega fjölbreytnin. Það þykir bara
ekki töff á Íslandi að hljóma eins og
annar gaur. Eins og með Birni, hann
var lengi að finna sjálfan sig, byrjaði
að rappa fyrir löngu en þegar hann
fór að einbeita sér að því að komast
að því hvað hann stæði fyrir og kom
upp á yfirborðið með það voru allir
mjög hrifnir af því vegna þess að það
var nýtt. Það er miklu meiri wow-
factor í því þegar þú heyrir einhvern
gera eitthvað vel og það hljómar
ekki eins og eitthvað annað, það er
miklu meiri sprengja.“
Málar myndir með rapptónlist
Rapparinn Arnar Úlfur gaf nýverið út sína fyrstu sólóplötu, Hasarlífsstíl „Frekar en að miðla
einhverjum einum boðskap finnst mér meira gaman að mála myndir með setningum,“ segir hann
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Aðdáandi „Ég er mjög mikill aðdáandi íslenskunnar og allra möguleika hennar,“ segir Arnar Freyr.