Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
Ath
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
595 1000
Frá kr.
59.995
17 OKTÓBER Í 4 NÆTUR
u.
Ath
.a
ðv
er
ðg
etu
rb
re
yst
án
fyr
irv
ar
a.
.
Ljubljana
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Söluaðilar geta sleppt posum
Reiknistofa bankanna fer af stað með nýtt greiðsluforrit Færslugjöld verða
hagstæðari ef greitt er með forritinu Minnkar umsýslu hjá minni söluaðilum
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Á næstu vikum mun Reiknistofa
bankanna (RB) fara af stað með
snjallsímaforritið Kvitt sem gerir
notendum kleift að borga með milli-
færslu gegnum síma hjá söluaðilum.
Með þessu verða færslugjöld mun
hagstæðari þar sem ekki er þörf á
notkun debet- eða kreditkorts. Þeir
söluaðilar sem það kjósa geta þá
sleppt því að vera með posa og tekið
við greiðslum gegnum Kvitt. „Þetta
er í raun app hjá okkur og þú ferð í
verslun og borgar í þessari greiðslu-
vél, Kvitt. Þú berð símann upp að
nemanum, sem er svona greiðslu-
kubbur, færð upphæðina á skjáinn og
hjá hvaða söluaðila þú ert staddur og
staðfestir,“ segir Aðalgeir Þorgríms-
son, framkvæmdastjóri sérlausna hjá
Reiknistofu bankanna. Hann er einn-
ig framkvæmdastjóri Kvitt ehf. sem
er í 100% eigu RB. „Við millifærum
bara peninginn frá reikningi notand-
ans yfir á reikning söluaðilans. Það er
ekkert uppgjör eða kortafærsla, bara
bein millifærsla,“ segir Aðalgeir og
bætir við að í raun sé verið að gera
ferlið stafrænt og þægilegt. „Færslu-
gjöld verða ódýrari, þetta eru alla-
vega ódýrari innviðir þannig að það
stendur til að hafa færslugjöld hag-
stæðari og þá fyrir söluaðila líka. Við-
skiptavinir Kvitt eru í raun söluaðil-
ar. Við vitum að við erum að fara að
bjóða færslugjöld sem eru hagstæð-
ari en sést hefur með kortum.“
Kvitt virkar í posum líka
Aðalgeir segir að í raun hafi RB átt
að fara í þetta verkefni fyrr þar sem
rauntímagreiðslumiðlun á Íslandi sé
það góð. Þá hefur RB einnig farið í
samvinnu við Verifone þannig að
hægt verði að greiða með Kvitt í pos-
um á þeirra vegum en að sögn Að-
algeirs eru þeir með um 70% mark-
aðshlutdeild á Íslandi. Spurðir um
hvort Kvitt gæti ekki gert minni sölu-
aðilum kleift að sleppa því að vera
með posa segir hann svo vera. „Posi
kostar töluvert þannig að þetta hent-
ar minni aðilum vel. Þannig þurfa
þeir ekki að fara í greiðslukerfi ef
þeir kjósa það.“ RB hefur verið með
Kvitt í prófunum síðustu 6 mánuði og
hefur að sögn Aðalgeirs allt gengið
vel.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
„Það er þannig hjá okkur með kröfur
sem við rukkum fyrir opinbera aðila
að við notum lögfræðiinnheimtu þeg-
ar annað gengur ekki,“ segir Sigurð-
ur Rúnar Sigurjónsson, forstjóri Eir-
ar, spurður um beiðni Eirar um
fjárnám hjá Lýð Ægissyni, heilabil-
uðum öryrkja sem býr á hjúkrunar-
heimilinu. „Það tekst nánast undan-
tekningarlaust alltaf að greiða úr
öllum málum. Menn hafa alltaf fundið
lausn en í þessu tilfelli hefur það ekki
tekist,“ segir hann.
Krafan hljóðar upp á 1,3 milljónir
króna og er tilkomin vegna leigu-
skuldar í sex mánaða uppsagnarfresti
vegna öryggisíbúðar sem Lýður hafði
áður á leigu. Ættingjar Lýðs segja að
hann eigi ekki eignir til að standa
undir greiðslunum og að hann sé
tekjulítill. „Við innheimtum fyrir
þriðja aðila sem er í þessu tilfelli hið
opinbera og getum ekki leyft okkur
að láta þetta bitna á stofnun sem hef-
ur ekki hagnað að markmiði, heldur
að sinna fólki sem þarf á öryggisþjón-
ustu að halda,“ segir Sigurður Rúnar.
Sömu reglur fyrir alla
Fjölskylda Lýðs er ósátt við Eir og
stóð í þeirri trú samkvæmt vilyrði frá
Eir að það mætti fækka greiðslum í
uppsagnarfresti yrði íbúðin tæmd á
tilteknum tíma. „Það er uppsagnar-
frestur á íbúðum og hann gildir nema
það takist að koma íbúðinni út fyrr,
þ.e. að búið sé að finna nýjan leigu-
taka, mála íbúðina og undirbúa fyrir
leigu o.s.frv. Þá losna menn fyrr und-
an samningnum og það gilda sömu
reglur fyrir alla,“ segir Sigurður Rún-
ar, en mikil eftirspurn er eftir íbúð-
unum að hans sögn og 99% nýting að
jafnaði. Þó geti hæglega komið upp að
íbúðir gangi ekki strax út.
Lýður þurfti skyndilega að skipta
um vistarverur vegna heilsubrests og
telur fjölskyldan að í uppsagnarfrest-
inum hafi hann verið rukkaður tvö-
falt. Þetta segir Sigurður Rúnar
rangt enda renni tekjurnar ekki til
Eirar, heldur ríkisins sem hjúkrunar-
heimilið sinni innheimtu fyrir. Hjúkr-
unarheimilið fær svo daggjöld greidd
frá Sjúkratryggingum fyrir þá ein-
staklinga sem þar dveljast.
Bitni ekki á þjónustunni
Forstjóri Eirar segir sömu reglur gilda um alla leigjendur
Leigjendur séu ekki tvírukkaðir í uppsagnarfrestinum
Lýður Fjölskyldan er ósátt við kröf-
ur hjúkrunarheimilisins Eirar.
Erlendur ferða-
maður á sextugs-
aldri hlaut tals-
verða áverka á
höfði þegar hann
féll í klettum í
vestanverðu
Skjálfandafljóti,
neðan við Goða-
foss, í gær.
Tilkynning um
slysið barst lög-
reglu klukkan 14.22 og var við-
bragðsáætlun vegna hópslyss ræst á
svæðinu og viðbragðsaðilar kallaðir
út, þ.á m. björgunarsveitir. Þá var
óskað aðstoðar Landhelgisgæsl-
unnar og ein af þyrlum hennar send
á vettvang.
Vel gekk að komast til mannsins,
en hann var lemstraður víða um lík-
amann og með skerta meðvitund
þegar að honum var komið. Lauk að-
gerðum við slysstað um klukkan
15.30. Maðurinn var fluttur á Land-
spítalann í Fossvogi með þyrlu
Landhelgisgæslunnar skömmu eftir
klukkan fimm, en áður hafði hann
verið fluttur með sjúkrabifreið til
Akureyrar þar sem hlúð var að hon-
um.
Maðurinn var á ferðalagi með fjöl-
skyldu sinni og fengu fjölskyldu-
meðlimir áfallahjálp hjá áfallateymi
Rauða krossins á Akureyri. Tildrög
slyssins eru enn óljós að því er fram
kemur í tilkynningu frá lögreglu en
unnið er að rannsókn málsins.
Féll við
Skjálf-
andafljót
Goðafoss Myndin
er úr safni.
Ferðamaður á sex-
tugsaldri slasaðist
Þrír karlmenn hafa verið ákærðir í
„Skáksambandsmálinu“ svokallaða.
Meðal þeirra eru Sigurður Kristins-
son, fyrrverandi eiginmaður Sunnu
Elviru, sem sætti farbanni um nokk-
urra vikna skeið eftir að hafa lamast
við fall á heimili sínu á Spáni. Skák-
sambandsmálið kom upp í janúar og
tengist meintum innflutningi á rúm-
lega fimm kílóum af amfetamíni. Þá
var Sigurður staddur á Spáni en var
handtekinn við komuna hingað til
lands. Hann var úrskurðaður í
gæsluvarðhald og svo í farbann, sem
hann hefur sætt síðan 20. apríl.
Þrír karlar
sæta ákæru
Eignarhaldsfélagið Spölur og íslenska ríkið rit-
uðu formlega undir samning í gær um afhend-
ingu Hvalfjarðarganganna til ríkisins en gjald-
töku var hætt á föstudaginn. Undirrituðu þeir
Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, og Sig-
urður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra
samninginn. Á myndinni tekur Sigurður Ingi í
hönd Gylfa Þórðarsonar, framkvæmdastjóra
Spalar. Til hægri standa þau Gunnar Gunnars-
son, fyrrverandi aðstoðarvegamálastjóri og
stjórnarmaður í Speli, og Bergþóra Þorkels-
dóttir vegamálastjóri.
Spölur ehf. afhenti ríkinu Hvalfjarðargöngin
Morgunblaðið/Eggert
Tímamót í samgöngusögu þjóðarinnar