Morgunblaðið - 01.10.2018, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
Framkvæmdir eru hafnar við
breikkun Grindavíkurvegar á tveim-
ur stöðum. Tekinn er 1,8 kílómetra
kafli við Seltjörn, upp undir Reykja-
nesbraut, og svo 1,5 kílómetra lang-
ur spotti við afleggjarann að Bláa
lóninu. Á báðum stöðum verða veg-
axlir færðar, en slíkt þarf að gera
svo aðskilja megi akbrautir með
vegriði.
Talin hefur verið mikil þörf á
þessum framkvæmdum, en allmörg
umferðarslys – þar með talin bana-
slys – hafa orðið þessari leið á und-
anförnum árum þar sem til dæmis
bílar sem mætast hafa skollið sam-
an. Þrýstu Grindvíkingar mjög á um
endurbætur á veginum og má segja
að framkvæmdirnar nú séu svar við
því kalli bæjarbúa. Þá ber að geta
þess að vegurinn er mjög fjölfarinn,
svo sem vegna mikillar og sívaxandi
umferðar sem er í Bláa lónið.
Það er Loftorka ehf. sem hefur
framkvæmdir þessar með höndum,
en tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á
434 millj. kr., sem voru 96,0% af
kostnaðaráætlun.
Á tveimur fyrrnefndum bútum
sem nú eru breikkaðir verður veg-
urinn áfram ein akrein til hvorrar
áttar, en vegrið ættu að draga mjög
úr allri slysahættu. Á næsta ári
verður seinni hluti framkvæmdar-
innar svo boðinn út en þá verður
útbúinn svonefndur 2-1 vegur á um
2,5 kílómetra löngum spotta, sem
verður því sem næst miðja vegu milli
þeirra kafla á leiðinni sem eru end-
urbættir nú, segir Óskar Örn Jóns-
son, forstöðumaður framkvæmda-
sviðs Vegagerðarinnar. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grindavíkurvegur Framkvæmdir eru í fullum gangi og miðar vel.
Vegurinn breikkaður
Bútar og vegrið á Grindavíkurvegi Brugðist við slysum
Orkuveita Reykjavíkur (OR) ásamt
samstarfsaðilum hefur hlotið ríf-
lega tveggja milljarða króna styrk
úr Horizon 2020 Rannsókna- og ný-
sköpunaráætlun ESB. Styrkurinn
er til verkefnisins GECO, sem mið-
ar að sporlausri nýtingu jarðhita.
OR leiðir þetta verkefnið en það
er samstarfsverkefni 18 fyrirtækja
og stofnana víðs vegar að úr Evr-
ópu. Markmið verkefnisins er að
þróa jarðhitavirkjanir með sem
allra minnsta losun koltvíoxíðs og
brennisteinsvetnis.
Frá formsatriðum varðandi
styrkinn var gengið nú fyrir helgi
og á næstu dögum mun OR auglýsa
eftir sérfræðingum til að vinna að
verkefninu að því er fram kemur í
tilkynningu frá OR. Bergur Sigfús-
son, fagstjóri á þróunarsviði OR,
mun stjórna verkefninu og mun það
standa yfir í fjögur ár.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Styrkur Verkefnið GECO mun
standa yfir í fjögur ár hjá OR.
Rúmir 2
milljarðar
til OR
Orkuveitan fær
styrk fyrir verkefni
Stíflaðar eða skítugar síur urðu þess
valdandi að loftflæði var skert í vél
Icelandair á laugardag. Fjórir flug-
liðar leituðu læknisaðstoðar eftir að
þeir komu til landsins frá Edmont-
on. Í kjölfarið var farið yfir loft-
ræstikerfi og skipt um síur í vélinni.
Vélin var tilbúin til flugs í gær og fór
aftur í loftið síðdegis.
„Við erum með ákveðna skoðun
sem fer í gang ef svona kemur upp,“
sagði Jens Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri rekstarsviðs Ice-
landair, í samtali við mbl.is í gær.
Hann sagði að starfsfólkið hefði
fundið fyrir óþægindum, höfuðverk
og þreytueinkennum en ekkert hafi
bent til þess að farþegar hafi fundið
fyrir einhverju sambærilegu.
„Það er mjög sjaldgæft að farþeg-
ar kenni sér meins þegar svona ger-
ist,“ sagði Jens og bætti við að að-
stæður þeirra væru öðruvísi þar sem
þeir væru að mestu kyrrir í flugi.
Vélin fór
aftur í loftið
Fjórir flugliðar
leituðu til læknis