Morgunblaðið - 01.10.2018, Qupperneq 21
á Ísafirði, leikur enginn vafi á
því að Gerða er komin af ein-
staklega góðu fólki. Móðurafi
minn var líka ættaður að vestan
og ég hafði alist upp í þeirri trú
að Vestfirðingar væru í sér-
flokki, fullir seiglu og harðdug-
legir. Jenný átti eftir að stað-
festa þá trú mína.
Hún vann fulla vinnu enda
átti hún fyrir þremur dætrum
að sjá. Það var vinsælt að fara
upp í Sólheima eftir skóla þar
sem engir fullorðnir voru að
þvælast fyrir okkur. Við möl-
uðum og muldum í okkur hjóna-
bandssælu í eldhúsinu eða
renndum vísifingri eftir smáletr-
uðum dálkum í símaskránni í leit
að sálfræðingi. Við höfðum rek-
ist á þetta starfsheiti og fengið
þá hugmynd að láta tékka á
stöðunni hjá okkur.
Jenný vann alla virka daga í
Sjóklæðagerðinni og um helgar
ferðuðust þau Jói um sveitir
landsins í Rússajeppanum. Þá
gafst okkur gott næði til að
máta kjólana hennar og skrúfa
Alice Cooper í botn.
Samtöl við mömmurnar voru
ekki farin að taka á sig neina
mynd. Það var ekki fyrr en við
komumst á þeirra aldur að við
fórum að sjá þær sem einstak-
linga. Trúnaðarsamtöl táning-
anna snerust um að kryfja for-
eldrakynslóðina til mergjar og
lífsgátuna um leið.
Gerða fór í menntaskóla á
Ísafirði, ég í MH og þá fækkaði
heimsóknunum í Sólheimana.
Jenný fór í öldungadeildina.
„Þarna siturðu með vísindin,“
andvarpaði Jói þegar hún sat við
náttlampann með Eðlisfræði I í
kjöltunni. Síðar fór hún út í at-
vinnurekstur, stofnaði verslun
og seinna líkamsræktarstöð fyr-
ir konur með fínar línur.
Þegar hér var komið sögu var
ég flutt til útlanda en fylgdist
með vestfirska dugnaðinum
gegnum dæturnar sem drógu
mömmu sína að landi, til dæmis
þegar hún sat hryggbrotin í
hjólastól. Síðar hittumst við æ
oftar við matarborðið hjá Gerðu
og Pálma á Öldugötunni. Þá
kynntist ég Jennýju upp á nýtt.
Ein síðasta minningin um hana
er þegar við Gerða lokuðumst
inni á elliheimilinu Grund á
sjálfri nýársnótt eftir að hafa
komið Jennýju í háttinn.
Ég er þakklát fyrir hjóna-
bandssælurnar í Sólheimum og
útilegu í Þórsmörk svo eitthvað
sé nefnt. En í augum sextugs
unglingsins er Jenný fyrst og
fremst kynsystir og dugnaðar-
forkur sem ruddi sjálfri sér
braut og lét ekki tíðarandann
aftra sér. Allar systurnar þrjár
hafa fengið eitthvað af þessum
vestfirska eldmóði með sér í
veganesti.
Ég votta þeim og allri fjöl-
skyldunni samúð mína. Blessuð
sé minning Jennýjar Sigfúsdótt-
ur.
Erla Sigurðardóttir.
Hinsta kveðja frá St. Ými nr.
724.
Ég vil með nokkrum orðum
minnast systur okkar Jennýjar
Sigfúsdóttur er lést 22. septem-
ber.
Jenný var fríð sýnum og hæg-
lát í framkomu en samt létt í
lund. Hún var trú samferða-
mönnum sínum og traust. Hún
hafði ákveðnar skoðanir og var
föst fyrir og þoldi engum að
beita aðra ranglæti.
Jenný gegndi trúnaðarstörf-
um fyrir stúku sína um nokk-
urra ára skeið með stakri prýði.
Í mörg ár átti Jenný við erf-
iðan sjúkdóm að fást, sem haml-
aði henni að sækja fundi okkar
síðustu árin.
Fyrir hönd systkina hennar í
stúkunni votta ég börnum henn-
ar og öðrum ástvinum samúð og
þakka Jennýju samfylgdina með
ósk um velfarnað á nýjum leið-
um.
Ragnheiður Lilja
Georgsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018 21
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kapitólurnar, útskurður,
félagsvist kl. 13-16. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-
15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Myndlist kl. 12.30. Félagsvist kl. 13. Vatns-
leikfimi kl. 14.30.
Bústaðakirkja Félagasstarfið hefst kl. 12 á miðvikudaginn kemur
með tónleikum í hádeginu, Jónas Þórir og Gréta Salome stíga á
stokk. Þetta er byrjun á listamánuði Bústaðakirkju sem verður í
október. Súpa á eftir í safnaðarsal og félagsstarfið heldur svo áfram til
kl. 16 eins og vant er. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk
Bústaðakirkju.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, núvitund kl. 10.30-
11.30, bókabíllinn kl. 13.10-13.30, handaband kl. 13-15.30, söngstund
við píanóið kl. 13.30-14.15, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, línudans
kl. 15-16, verð 500 krónur, söguhópur kl. 15.30-16.15. Skráning hafin í
haustferðina okkar sem er öllum opin. Farið verður á Eldfjallasetrið á
Hvolsvelli fimmtudaginn 11. október kl. 12.30. Verð 5.800 kr. með kaffi
og meðlæti. Upplýsingar og skráning í síma 4119450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/ 8.15 /15.15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl.11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 14.10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13–
16, allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður meið leið-
beinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben. kl.
11-11.30. Qigong kl. 10.30-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári FEBK. Leshópurinn í Gullsmára: á morgun, þriðjudag, kl.
20 mun Steinar J. Lúðvíksson koma í heimsókn. Allir velkomnir. Eng-
inn aðgangseyrir.
Hraunsel Myndmennt kl. 9. Tiffanys í föndurstofu kl. 9-12. Gaflara-
kórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Byrjendanámskeið línudans kl. 10. Æðstaráðsfundur kl. 10.20.
Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd. kl. 12.30-15.30. Handa-
vinnuhornið kl. 13-15. Félagsvist kl. 13. Kaffi kl. 14.30. Allir velkomnir,
óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9, gönguhópar kl. 10 frá Borgum
og Grafarvogskirkju, samkvæmisdansæfingar með Sveini kl. 11 í
Borgum, allir velkomnir. Skartgripagerð í Borgum kl, 13, fleiri vel-
komnir í hópinn og félagsvist kl. 13 í Borgum. Tréútskurður kl. 13 á
Korpúlfsstöðum í umsjón Gylfa og KORPUSYSTKIN hefja kóræfingar
undir stjórn Kristínar í dag kl. 16 í Borgum, allir velkomnir.
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins við Suðurströnd kl.
9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi
í króknum á Skólabraut kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skóla-
braut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni
kl. 18.40.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist
sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30.
Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, ZUMBA Gold kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.
11.30. Tanya leiðir báða hópana.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Málarar
Málarar.
Faglærðir málar geta bætt við
sig verkefnum. Öll almenn
málningarþjónusta í boði.
uppl. í síma 696-2748, netfang:
loggildurmalari@gmail.com
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝ Jóhannes Guð-mannsson
fæddist á Vatns-
enda í V- Húna-
vatnssýslu 28. jan-
úar 1934. Hann lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópa-
vogi 23. september
2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
mann Sigurður
Halldórsson, f. 26.6. 1900, d.
18.12. 1990, og Rósa Jóhann-
esdóttir, f. 26.6. 1912, d. 23.9.
1984. Þau bjuggu í Hrísum og
síðar á Sæbóli í V- Húnavatns-
sýslu en fluttust til Hvamms-
tanga eftir að þau hættu bú-
skap.
Jóhannes var elstur fimm
systkina. Þau eru: Sigurbjörg
María, f. 11.2. 1937, Sigríður
Halldóra, f. 11.6. 1938, Hringur,
f. 27.6. 1945, og Árni Ingvar, f.
8.5. 1954, d. 16.6. 1974. Fyrri
kona Jóhannesar var Kristbjörg
Inga Magnúsdóttir, f. 10. desem-
ber 1940. Þau slitu samvistum.
Börn þeirra eru:
1) Laufey Margrét,
f. 6.9. 1957. Börn
hennar eru fimm
og barnabörnin
níu. 2) Guðmann
Sigurður, f. 5.6.
1959. Kona hans er
Rósa Fanney Frið-
riksdóttir, f. 13.1.
1962. Börn þeirra
eru þrjú og barna-
börn fimm. 3) Birg-
ir Smári, f. 17.4. 1962. Kona
hans er Anna Margrét Braga-
dóttir, f. 30.1. 1965. Börn þeirra
eru þrjú og barnabörnin þrjú. 4)
Kári Ragnar, f. 19.4. 1965, d.
16.7. 1966. 5) Rósa, f. 7.5. 1970.
Börn hennar eru tvö og eitt
barnabarn. 6) Hulda Björg, f.
21.5. 1972. Börn hennar eru tvö.
Seinni kona Jóhannesar er
María Jakobsdóttir, f. 1. ágúst
1940 í Færeyjum. Þau eiga ekki
börn saman. María á þrjú börn
og þrjú barnabörn.
Útförin fer fram frá Grafar-
vogskirkju í dag, 1. október
2018, klukkan 13.
Tengdafaðir minn lést á líkn-
ardeild Landspítalans í Kópavogi
eftir erfið veikindi.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Höndin þín, Drottinn, hlífi mér,
þá heims ég aðstoð missi,
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína eg glaður kyssi.
Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja,
meðtak þá, faðir, mína önd,
mun ég svo glaður deyja.
Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna eg burt úr heimi.
(Hallgrímur Pétursson.)
Ég sendi aðstandendum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku Jói, þú átt og munt alltaf
eiga stað í hjarta mínu.
Hvíldu í friði, elsku vinur.
Anna Margrét.
Jóhannes
Guðmannsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
SIGRÍÐUR Ó. CANDI,
Kringlunni 89, Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 28. september. Útför hennar fer
fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík, Ingólfsstræti 19,
fimmtudaginn 4. október kl. 13.
Marina Candi Harald Ragnar Óskarsson
Indro Candi Heba Magnúsdóttir
barnabörn
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.