Morgunblaðið - 01.10.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 01.10.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar ● Samfélagsmiðillinn Facebook upp- lýsti á föstudag að tölvuþrjótar hefðu stolið stafrænum aðgangskóðum sem þeir gátu notað til að ná stjórn á reikn- ingum allt að 50 milljón notenda. Fa- cebook segir að ekki sé enn að fullu ljóst hvort tölvuþrjótarnir hafi nýtt sér aðganginn í ólögmætum tilgangi eða hvort þeir hafi stolið persónuupplýs- ingum. Árásin virðist ekki hafa beinst að til- teknum fórnarlömbum en á símafundi með blaðamönnum sagði Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, að bæði reikningur hans og Sheryl Sand- berg framkvæmdastjóra rekstrar hefðu orðið fyrir barðinu á hökkurunum. Hlutabréfaverð Facebook lækkaði um 2,6% á föstudag. ai@mbl.is 50 milljón Facebook- reikningar í hættu vegna tölvuþrjóta AFP Tjón Reikningur Marks Zuckerberg sjálfs var meðal þeirra sem voru í hættu. Tilkynnt var á laugardag að samkomulag hefði náðst um að milljarðamæringurinn Elon Musk og fyrirtæki hans Tesla muni hvort um sig greiða bandaríska verðbréfaeftirlitinu (SEC) sekt að upphæð 20 milljónir dala. Verðbréfaeftirlitið gaf Musk að sök að hafa villt um fyrir fjárfestum með skeytum sem hann sendi frá sér á Twitter 7. ágúst síðastliðinn þar sem hann sagði að tekist hefði að tryggja fjármögnun fyrir afskráningu Tesla af hlutabréfamarkaði á genginu 420 dalir á hlut. Betra en langdregin málaferli SEC segir að umrædd tíst hafi ekki átt sér neina stoð í raunveruleikanum og valdið óðagoti á mörk- uðum sem olli fjárfestum tjóni. Tesla og Musk hvorki neituðu né játuðu sök í málinu. Samkomulagið kveður einnig á um að Musk muni hætta sem stjórnarformaður Tesla en hann mun áfram gegna starfi forstjóra. Þrátt fyrir að Musk og Tesla greiði samtals jafn- virði um 4,4 milljarða króna í sekt segir Reuters að málið hafi fengið farsælan endi. Höfðu hluthafar óttast að uppátæki Musks myndi hafa í för með sér langdregin málaferli sem hefðu flækt rekstur bandaríska rafbílaframleiðandans enn frekar. Þá virðast markaðssérfræðingar almennt á þeirri skoðun að það muni efla Tesla að setja nýja manneskju í stjórnarformannsstólinn og þannig ná betri stjórn á raðfrumkvöðlinum Musk sem undanfarin misseri hefur þótt helst til framhleyp- inn á opinberum vettvangi. Er Tesla gert að ráða sjálfstæðan stjórnarformann og tvo sjálfstæða stjórnarmenn. ai@mbl.is Musk og Tesla greiða risasekt AFP Hólpinn Þó hann verði 20 milljónum dala fátæk- ari þykir Elon Musk hafa sloppið nokkuð vel.  Gert að hætta sem stjórnarformaður en fær áfram að gegna stöðu forstjóra VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sjálfsafgreiðslukassar í verslunum geta valdið því að annars heiðarlegir viðskiptavinir taka upp á því að hnupla varningi. Iðulega lítur þetta fólk ekki þannig á að það sé að stela, heldur finnst því hnuplið vera eðlileg umbun fyrir það ómak og ergelsi sem stundum fylgir því að skanna inn eigin innkaup. Þetta segir dr. Emmeline Taylor, afbrotafræðingur og yfirmaður rannsókna við samfélagsfræðideild City, University of London. Hún hélt erindi um þessi mál á ráðstefnu sem Öryggismiðstöðin stóð fyrir síð- astliðinn fimmtudag. Að sögn Emmeline er ekki flókið að snúa á þær varnir sem sjálfs- afgreiðslukassarnir búa yfir en tölv- an í afgreiðslukassanum notar vog til að mæla það sem skannað er og lætur vita ef varan sem sett er á vog- ina er óeðlilega þung eða létt. „En það sem fólk gerir er að finna eitt- hvað mun ódýrara en af svipaðri þyngd, og skanna það í staðinn, t.d. skanna 500 g af kjúklingabringum en setja 500 g nautalund ofan í pok- ann. Þetta svindl verður enn auð- veldara þegar um er að ræða vöru sem seld er í lausu og getur við- skiptavinurinn þá t.d. slegið inn að hann sé að vigta ódýrar gulrætur eða kartöflur á meðan hann er í raun að vigta lárperur,“ segir hún og bæt- ir við að oft gerist það fyrir slysni þegar fólk stelur með þessum hætti í fyrsta skipti. Fimmtungur stelur Vandinn við búðahnupl á sjálfs- afgreiðslukössum er útbreiddur í Bretlandi, að sögn Emmeline, og í spurningakönnun sagðist einn af hverjum fimm svarendum stunda það reglulega að svindla í sjálfs- afgreiðslu og stela að jafnaði fyrir 15 pund á mánuði. Á ársvísu gæti tjónið fyrir breskar verslanir numið allt að 1,6 milljörðum punda á ári. „En sjálfsafgreiðslustöðvarnar hafa líka sína kosti og er t.d. áætlað að ef af- greiðslukassinn er mannaður kosti það verslunina 1 pund að afgreiða 100 punda matarinnkaup. Sjálfs- afgreiðslustöðvar draga líka stór- lega úr tapi vegna rýrnunar s.s. vegna þess sem í Bretlandi er kallað „sweethearting“ þegar starfsmaður á kassa skannar ekki allan þann varning sem vinur, ættingi eða koll- egi setur á færibandið.“ Aðspurð hvað megi til bragðs taka segir Emmeline að það megi t.d. fara þá leið að strikamerkja dýra ávexti og grænmeti frekar en að selja í lausu. „Einnig gæti hjálpað að hafa eftirlitsmyndakerfi við hverja afgreiðslustöð og varpa á skjá þar sem viðskiptavinurinn getur séð sjálfan sig. Með því má ná fram þeim sálrænu áhrifum að honum þyki hnuplið ekki lengur jafn léttvægt.“ Vopnaðir ræningjar forðast bankana Emmeline hefur einnig gert rann- sóknir á vopnuðum ránum og segir að þökk sé markvissum aðgerðum heyri nánast sögunni til að rán séu framin í bönkum. „Peningaskápar með tímalæsingu, skothelt gler og aðrar öryggislausnir hafa skilað sínu og ræningjar vita að ef þeir leggja til atlögu við banka eru þeir að taka mikla áhættu og hafa líklega mjög lítið upp úr krafsinu,“ segir hún. „Vandinn er sá að fyrir vikið hafa vopnuð rán færst annað, s.s. yfir til verslana, í afgreiðslulúgur skyndi- bitastaða og jafnvel að hótel eru rænd. Vinsælustu skotmörkin eru fyrirtæki sem eru tiltölulega ein- angruð, eins og bensínstöðvar þar sem oft er aðeins einn starfsmaður á vakt og engin önnur fyrirtæki í næsta nágrenni.“ Hér segir Emmeline að geti gagnast að beita svipuðum lausnum og bankarnir gerðu, t.d. með því að nota peningaskápa með tímalæsingu og auglýsa það vel við innganginn. „En það þarf líka, rétt eins og með sjálfsafgreiðsluhnuplið, að reyna að breyta hugarfari gerendanna. Í við- tölum kemur í ljós að þeir sem hafa framið vopnað rán líta á það sem töffaralegri glæp en t.d. innbrot. Þeim þykir eitthvað heiðarlegt við það að standa andspænis fórn- arlambinu frekar en að læðast inn í hús og láta greipar sópa. Það sem virðist vanta er skilningur á hversu djúpstæð og alvarleg áhrifin geta verið fyrir afgreiðslufólkið sem ber þess kannski seint eða aldrei bætur að hafa verið hótað með vopni við störf sín.“ Freistast til að stela í sjálfsafgreiðslu Ljósmynd / Thinkstock Svindl Stúlka á mynd úr safni notar sjálfsafgreiðslukassa í matvöruverslun. Í Bretlandi má finna slíka kassa víða og þeir eru farnir að birtast á Íslandi. Sálrænt Emmeline Taylor segir þurfa að minna viðskiptavini á að hnuplið er ekki léttvægt.  Óheiðarlegir viðskiptavinir þykjast vera að vigta gulrætur þegar dýrar lárperur eru í pokanum  Vopnuð rán í Bretlandi hafa færst frá bönkunum yfir til bensínstöðva og skyndibitastaða 1. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 110.8 111.32 111.06 Sterlingspund 144.62 145.32 144.97 Kanadadalur 85.09 85.59 85.34 Dönsk króna 17.211 17.311 17.261 Norsk króna 13.543 13.623 13.583 Sænsk króna 12.459 12.531 12.495 Svissn. franki 113.5 114.14 113.82 Japanskt jen 0.9766 0.9824 0.9795 SDR 154.54 155.46 155.0 Evra 128.34 129.06 128.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.8699 Hrávöruverð Gull 1183.5 ($/únsa) Ál 2028.0 ($/tonn) LME Hráolía 81.63 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.