Morgunblaðið - 01.10.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið
Veður víða um heim 30.9., kl. 18.00
Reykjavík 5 alskýjað
Bolungarvík 9 rigning
Akureyri 3 skýjað
Nuuk 2 snjóél
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló 14 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 11 skúrir
Helsinki 11 skýjað
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 11 skúrir
London 14 skýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 14 léttskýjað
Hamborg 15 heiðskírt
Berlín 17 heiðskírt
Vín 15 heiðskírt
Moskva 8 heiðskírt
Algarve 25 skýjað
Madríd 29 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 17 rigning
Winnipeg 3 léttskýjað
Montreal 9 alskýjað
New York 19 heiðskírt
Chicago 16 rigning
Orlando 31 léttskýjað
1. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:37 18:58
ÍSAFJÖRÐUR 7:44 19:01
SIGLUFJÖRÐUR 7:27 18:44
DJÚPIVOGUR 7:07 18:27
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á þriðjudag Vestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, en
lægir seinnipartinn. Hiti 1 til 6 stig.
Á miðvikudag Gengur í austan 13-20 með rigningu
eða slyddu, fyrst S-lands. Hiti 0 til 8 stig.
Gengur í allhvassa suðlæga átt með rigningu eða slyddu. Dregur úr vindi og úrkomu norðvestan
til síðdegis. Vestan 15-23 sunnan- og suðvestanlands í kvöld. Mun hægari í öðrum landshlutum.
Áhugamenn um vélhjól í sígildum „retró“-stíl
vöktu athygli á heilsu karla þegar þeir óku um
stræti Reykjavíkur í gær. Þetta var í fyrsta skipti
sem viðburðurinn „Gentleman’s ride“ var haldinn
hér á landi en viðburðurinn hefur verið haldinn
víða um heim síðustu ár. Sérstök athygli var vakin
á blöðruhálskrabbameini og geðheilsu. „Það er
mikil þörf á að vekja alla til umhugsunar um heilsu
karla og ræða hana,“ sagði einn skipuleggjenda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herramenn á hjólum vöktu athygli á heilsu karla
Ekið á bifhjólum í sígildum stíl um stræti Reykjavíkur
Fólk sem glímir við geðrænan vanda
skilaði sér síður inn á atvinnumarkað
eftir efnahagshrunið árið 2008, en mat
andlega líðan sína þó ekki verri eftir
hrunið heldur en
fyrir hrunið. Þetta
kemur fram í
meistaraverkefni
Unnar Jónsdóttur,
meistaranema í
lýðheilsuvísindum,
en hún rannsakaði
hvort efnahags-
hrunið hefði haft
áhrif á fólk sem
glímir við geðræn-
an vanda og hvort
þau hefðu verið alvarlegri heldur en
hjá þeim sem voru við góða andlega
heilsu.
Tíu ár eru nú liðin frá efnahags-
hruninu, sem skall á 29. september ár-
ið 2008. Í kjölfarið voru neyðarlög
sett, hinn 6. október, og 7. október tók
Fjármálaeftirlitið yfir rekstur Lands-
bankans. Tveimur dögum seinna tók
FME yfir Kaupþing banka, sem nú
heitir Arion banki.
„Niðurstöðurnar gætu bent til þess
að ef fólki liði illa, þá liði því illa hvort
sem það kæmi efnahagssveifla eða
ekki. Það var hins vegar marktæk
breyting á verri líðan hjá fólki án geð-
ræns vanda árin 2009 og 2012 en árið
2007,“ segir Unnur.
Þá gaf rannsóknin einnig til kynna
að fólk sem átti við geðrænan vanda
að stríða var lengur að koma inn á at-
vinnumarkaðinn eftir efnahagshrunið.
Bilið milli hópanna óx árið 2012. „Báð-
ir hóparnir voru líklegri til að vera at-
vinnulausir árin 2009 og 2012 en svo
fór hlutfallið að lagast árið 2012 hjá
þeim sem voru við góða andlega
heilsu,“ segir Unnur.
Rannsóknarhópurinn byggðist á
þátttakendum úr rannsókninni Heilsa
og líðan Íslendinga sem framkvæmd
var af Embætti landlæknis árin 2007,
2009 og 2012. Þátttakendur voru á
aldrinum 18-69 ára og ákvarðaðist
rannsóknarhópurinn af spurningum
um hvort viðkomandi hefði haft kvíða,
þunglyndi eða einhver önnur vanda-
mál tengd geðheilsu.
Notast var við lógistíska aðhvarfs-
greiningu til að kanna breytingar á
líðan, streitu og atvinnustöðu árin
2009 og 2012 með árið 2007 sem við-
miðunarár. Eins var atvinnustaða
fólks með geðrænan vanda könnuð,
þar sem fólk án geðræns vanda var
sem viðmiðunarhópur.
veronika@mbl.is
Neikvæð
áhrif
hrunsins
Skertir atvinnu-
möguleikar fyrir fólk
með geðraskanir
Unnur
Jónsdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslenska miðasölufyrirtækið Tix
hefur stækkað hratt síðasta árið og
selur nú fleiri miða erlendis en það
gerir hér á landi.
„Við seldum í kringum 850 þús-
und miða á Íslandi í fyrra. Þetta
hefur svo stækkað hratt í Skandin-
avíu,“ segir Sindri Már Finnboga-
son, stofnandi Tix.is, í samtali við
Morgunblaðið.
Tix fagnar fjögurra ára afmæli í
dag, 1. október, og selur miða fyrir
stærstu menningarhús landsins;
Hörpu, Þjóðleikhúsið og Borgar-
leikhúsið auk flestra tónleikahald-
ara. Fyrir helgi sá Tix um miða-
sölu á tónleika Ed Sheeran en
salan nam yfir 500 milljónum
króna á tveimur tímum. Nýlega
færði KSÍ miðasölu sína yfir til Tix.
Auk þessa selur fyrirtækið miða
fyrir fjölda menningarhúsa í Sví-
þjóð, Noregi og nú síðast í Fær-
eyjum. Alls hefur Tix tryggt sér
miðasölu hjá þrettán menningar-
húsum í Noregi, sjö í Svíþjóð auk
Norræna hússins í Færeyjum. Þá
er Tix einnig með útibú í Dan-
mörku og gæti herjað á þann
markað í framtíðinni. Þrettán
manns starfa hjá Tix í fjórum lönd-
um.
„Við höfum unnið 90 prósent af
útboðunum sem við höfum tekið
þátt í á Norðurlöndunum. Ég held
að ástæðan sé einfaldlega sú að við
erum með flott kerfi og starfsfólk
með gríðarlega reynslu, segir
Sindri. Hann segir jafnframt að Tix
bjóði öðruvísi verðlagningu en
gengur og gerist á þessum mark-
aði. „Við erum með einfaldara og
öflugra kerfi en margir aðrir og er-
um ekki að miðla sjálfri miðasölu-
veltunni í gegnum okkur. Við get-
um því einbeitt okkur að því að
gera betra miðasölukerfi í stað þess
að þurfa að huga að bókhaldskerfi.
Þetta spyrst út og þessi norrænu
menningarhús hafa viljað fá okkur í
samstarf.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í sókn Starfsfólk Tix.is; Sindri Finnbogason, Hrefna Jónsdóttir, Íris Sch.
Einarsdóttir og Þórir Jökull Finnbogason. Björn Steinar Árnason vantar.
Sópa til sín kúnnum í Skandinavíu
Miðasölufyrirtækið Tix selur nú
fleiri miða erlendis en hér á landi