Morgunblaðið - 01.10.2018, Side 11

Morgunblaðið - 01.10.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018 Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR – 1990 KR/KG Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn SÍLDIN FRÁ DJÚPAVOGI ER KOMIN KLAUSTUR-BLEIKJA GLÆNÝ LÍNUÝSA Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Danska popp- og rokkstjarnan Kim Larsen lést í gær eftir langvinn veikindi, 72 ára að aldri. Ferill Lar- sens spannar tæpa fimm áratugi en hann gaf út yfir 20 hljóðversplötur, bæði með hljómsveitum og sem sólólistamaður. Þá var hann einnig þekktur fyrir að vilja hrista upp í hlutunum, segja alltaf það sem hann langaði til og mótmæla bæði konungsveldinu og banni á reyk- ingum. Í samtali við Morgunblaðið segir Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistargagnrýnandi og doktor í tónlistarfræðum, Larsen hafa bæði verið mikinn kjaftask og með gott eyra fyrir fallegum laglínum, en fyrst og fremst hafi hann verið sjarmerandi. „Mikill kjaftaskúmur“ „Ferill Larsens hófst með rokk- hljómsveitinni Gasolin snemma á áttunda áratug síðustu aldar. Hann eiginlega tók yfir bandið. Þá var hann víst allan daginn með gítarinn spilandi, kjaftandi og reykjandi. Þeir urðu mjög vinsælir og í raun bara stærsta rokksveitin í Dan- mörku. Þá varð Larsen frægur. Hann var mikill kjaftaskúmur, talaði og talaði og var áberandi. Hann var rosalega sjarmerandi,“ segir Arnar. „Á níunda áratugnum varð hann bara rosalega mikil poppstjarna. Hann fór að gefa út sólóplötur og varð stjarna í Skandinavíu allri,“ segir Arnar og nefnir sérstaklega Noreg og Svíþjóð auk Danmerkur. Risi í Skandinavíu Hann segir Larsen hafa mest spilað einfalt popp og rokk en hafi einnig náð til fólks í gegnum al- þýðubaráttumál. „Hann talaði fyrir munn hins venjulega manns og söng verkalýðssöngva. Bubbi var að gera svipaða hluti hérlendis í byrjun níunda áratugarins. Billy Bragg var í Englandi og Bruce Springsteen í Bandaríkjunum.“ Arnar segir að Larsen hafi hald- ið áfram að vera stjarna í Skandin- avíu og segir að hann hafi verið ákveðinn fasti í tónlist á Norður- löndunum. Hann bendir einnig á að tónlist Larsens hafi t.d. borist hingað til lands með fólki sem lagði stund á nám í Danmörku á þessum tíma og að hún sé ennþá vinsæl meðal hluta þjóðarinnar. „Hann er bara svona risi í skandinavískri popptónlist.“ Frá árinu 1995 lék Larsen með hljómsveitinni „Kim Larsen & Kjukken“ sem gaf út 10 hljóðvers- plötur. Larsen hafði í byrjun árs aflýst öllum tónleikum sínum en kom fram á sínum síðustu tón- leikum nú í sumar. Spilaði, kjaftaði og reykti  Kim Larsen er látinn, 72 ára að aldri  Ferillinn spannar tæplega hálfa öld  Gaf út yfir tuttugu hljóðversplötur Morgunblaðið/Eggert Farvel Rokkarinn Kim Larsen í stuði á tónleikum í Valsheimilinu árið 2007. Arnar Eggert Thoroddsen Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Bókaútgáfan Forlagið hefur tekið þá ákvörðun að hætta að pakka stórum hluta þeirra bóka sem koma út fyrir jólin í plast. Með þessu móti verður bókaútgáfan mun umhverfs- vænni en verið hefur. „Við höfum ekki farið var- hluta af umræðunni um að draga úr plastnotkun. Sú hefð hefur skapast á Íslandi að nær allar bækur hafa ver- ið plastpakkaðar. Það er öf- ugt við það sem við þekkjum í öllum nágrannalöndum þar sem nánast heyrir til undantekninga að bókum sé pakkað í plast. Sjálfsagt hefur það töluvert að gera með gjafamarkaðinn en eins og allir vita hafa bækur verið langvinsælustu jólagjafir landsins áratugum saman,“ segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri For- lagsins. „Okkur þótti engu að síður rétt að reyna að spyrna við fótum þegar kemur að plastpökkuninni og höfum tekið þá ákvörðun að plastpakka ein- göngu þeim bókum sem eru með hlífðarkápu. Þannig verður til dæmis barna- og unglingabókum ekki pakk- að inn í plast fremur en fjölda ann- arra titla fyrir þessi jól,“ segir Egill. Morgunblaðið greindi frá því á síð- asta ári að bókaútgáfan Salka hefði tekið upp þá stefnu að reyna eftir fremsta megni að sleppa því að plasta bækur. Erfitt væri þó að sleppa því alfarið vegna verðmerk- inga og skiptimiða. Sífellt fleiri virð- ast því reyna að minnka óþarfa um- búðafargan og munar um minna. Sér í lagi þar sem Forlagið er stærsta bókaútgáfa landsins. „Líklega eru þetta eitthvað á ann- að hundrað þúsund bækur sem verða ekki plastaðar á þessu ári,“ segir Egill Örn. „Stefnan er auðvitað sú að halda þessu áfram og ef vel gengur að skoða hvort rétt sé að hætta alfar- ið að plasta bækur. Þetta getur verið umtalsvert magn af plasti enda selur Forlagið nokkur hundruð þúsund eintök af bókum á hverju ári.“ Færri bækur plastaðar í ár  Bókaútgáfan verður umhverfis- vænni  Stefnan á að hætta plöstun Jólabækur Siggi sítróna eftir Gunnar Helgason og Silfurlykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn verða ekki plastaðar í ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.