Morgunblaðið - 01.10.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 2018
SÆNSKAR
GÆÐASAGIR
GOTT ÚRVAL
Bogasög/Kjötsög
verð 3.730
Sög - verð 3.730
Með japönsku sniði, gúmíhandfang.
Ahliða hágæða sög - verð 3.860
með teflon húðuðu blaði
Greinasög - verð 2.890
Sög sem leggst saman
eins og vasahnífur
Ryoba sög - verð 5.940
Með japönsku sniði; tennt beggja
vegna, þverskera og langskera
Dozuki sög - verð 6.190
Með japönsku sniði, frábær í
fínvinnu t.d. geirneglingu
Greinasög - verð 2.650
með harðviðarskefti
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Ný
vefverslunbrynja.is
Þeir sem vilja lifa löngu, heil-brigðu og góðu lífi verða aðpassa upp á eigin líkama. Ég
fjallaði um daglega hreyfingu í síð-
ustu viku – að finna hreyfifæri á
hverjum degi. Það er mjög mikil-
vægt. Styrktaræfingar eru sömuleið-
is mikilvægar, á öllum aldri, því þær
lágmarka vöðvarýrnun og auka þar
með lífsgæði. Styrktaræfingar snú-
ast ekki um nýjustu líkamsræktar-
tækin, fjölda endurtekninga eða
þyngdir. Þær snúast í kjarna sínum
um að gera einfaldar æfingar vel.
Gæði framyfir magn.
Nelson Mandela hélt sér í góðu
formi fram á síðasta dag með því að
gera fáar styrktaræfingar daglega.
Mandela notaði nánast bara eigin
líkamsþyngd í sínum styrktaræf-
ingum. Ég er hrifinn af þannig æf-
ingum, sérstaklega fyrir þá sem vilja
æfa heima hjá sér. En það er líka
hollt og gott fyrir þá sem eru komnir
á efri ár að fara reglulega á góðan
æfingastað, hitta fólk með svipað
hugarfar og æfa með því.
Félagslegi hlutinn skiptir máli og
getur hjálpað til við að halda manni
við efnið. Aðalatriðið er að gera
styrktaræfingarnar reglulega, koma
þeim inn í venjukerfið þannig að þær
fari að kalla á mann í stað þess að
vera kvöð. Ég á reyndar erfitt sjálfur
með að hugsa um styrktaræfingar
sem kvöð, hef alltaf haft gaman af
því að reyna á mig. Fyrst og fremst
vegna þeirrar vellíðanar sem
streymir um líkamann eftir góða
styrktaræfingu. Og þeirra góðu
áhrifa sem líkamleg áreynsla hefur á
hugann. Obama byrjar flesta daga á
góðri æfingu. Hreinsar þannig hug-
ann og kemur sér í gott stand fyrir
daginn.
Fyrir ykkur sem hafið litla reynslu
af styrktaræfingum eru hér nokkur
góð ráð. 1. Það er aldrei of seint að
byrja, sama hvað maður er gamall og
í hvaða ástandi maður er. 2. Byrjið
rólega, kapp er best með forsjá. 3.
Það er hægt að þjálfa allan líkamann
með fáum en góðum æfingum,
grunnæfingum á borð við hnébeygj-
ur, réttstöðulyftur, armbeygjur,
upphífingar og planka. 4. Það er
hægt að útfæra allar grunnæfingar
þannig að allir geti gert þær. 5.
Fjöldi endurtekninga og þyngdir
skipta ekki máli, það sem skiptir
máli er hversu vel æfingin er gerð.
Ein armbeygja, með góðri tækni,
sem framkvæmd er á einni mínútu
byggir til dæmis meiri styrk en 50 lé-
legar armbeygjur. Margar lélegar
armbeygjur skapa meiri meiðsla-
hættu en styrk. 6. Njótið þess að
finna líkamann styrkjast og um leið
hausinn léttast með því að gera góð-
ar styrktaræfingar reglulega.
Njótið þess að styrkjast
Morgunblaðið/Hari
Sundleikfimi Kennari leiðir hóp í sundlauginni á Akureyri í blíðviðri.
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Áfallegum sunnudags-morgni blasti fallegurfjallahringur Þingvalla viðaf Mosfellsheiðinni. Botn-
súlur voru með hvíta húfu eftir hélu
næturinnar en önnur fjöll snjólaus;
Ármannsfell, Skriða, Kálfstindar og
Hrafnabjörg. Þingvallavatnið var
spegilslétt og eyjarnar tvær, Sand-
ey og Nesey, eins og bátar við ból-
færi.
Skarpir litir
Haustlitirnir skarpir; rauður og
grænn og birkilaufið víða orðið gult.
Landverðir stóðu vaktina; beindu
ökumönnum í stæði og vísuðu veg-
inn. Og hér var margt um manninn
og allra þjóða fólk; krökkt af túr-
istum á útsýnispallinum á Hakinu
sem er fínn staður fyrir selfí.
Í Almannagjá voru margir á
ferli. Fólk staðnæmist gjarnan á
Lögbergi eða á Öxarbrú yfir Drekk-
ingaryl. Neðan við fossinn þar má
nú víða sjá í ánni stórurriðann sem
nú er kominn á svæðið til hrygn-
ingar. Liggur fiskurinn við árbotn-
inn og sést vel af bökkum árinnar
sem göngustígar liggja um. Sér-
staklega má hafa orð á því hvað
stígar, pallar og önnur mannvirki
falla vel inn í umhverfið á þessum
slóðum; útfærslurnar eru góðar og
fyrir öllu er hugsað.
Ungur piltur, brosandi og
bjartsýnn, stóð við Þingvallakirkju.
Presturinn mættur; fermingardagur
stráksins runninn upp!
Lagt á djúpið
Við Silfru voru kafarar að
leggja á djúpið og aðrir að koma úr
kafi. Yfir flaug dróni með suðandi
söng en hljóðin minntu helst á engi-
sprettufaraldur. Á leiðinni til baka
var gengið fram hjá Flosagjá sem er
mótívið í Fjallamjólk Kjarvals, því
fræga verki.
Myndlist, mannlíf og mögnuð
náttúra. Góður göngutúr, hreyfing
og súrefni. Gott upphaf á nýrri
vinnuviku. Ísland í haustblíðunni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Myndarlegt Stöngin kom í góðar þarfir þegar ferðamennirnir austurlensku skelltu í sjálfu á útsýnispalli á Hakinu.
Morgunstund á Þingvöllum
Útivera er góð fyrir lík-
ama og sál. Úr borginni
er stutt austur á Þingvöll;
í fallega náttúru og
ævintýraveröld.
Haustlitir Falleg er Flosagjá, fyrirmyndin að Fjallamjólk Kjarvals.
Frá hausti til
vors sinna fjórir
landverðir dag-
legri gæslu á
Þingvöllum. Þeir
eru hver á sín-
um póstinum og
meðal annars er
alltaf einn við
Silfru, þann vin-
sæla köfunar-
stað.
„Eftir slys sem hér urðu var
hert á ýmsum reglum og eftirlit
með köfuninni aukið,“ segir Ing-
unn Ósk Árnadóttir landvörður.
„Núna á haustin fara kannski um
250 manns á dag í Silfru til að
snorkla en mun fleiri á sumrin.
Já, þetta eru að stærstum hluta
útlendingar og reglan sem hér
gildir er að leiðsögumennirnir,
sem margir eru erlendir, fari aldr-
ei með fleiri en sex niður í einu.
Þeirri reglu fylgjum við landverð-
irnir eftir. Já, ég hef tvisvar
snorklað hér í Silfru og fannst
það æðislegt. Og þó maður sé
bara við yfirborðið sést vel niður
í gjárnar og jafnvel niður til
botns, vatnið hér er svo ein-
staklega tært,“ segir Ingunn Ósk
sem hefur starfað lengi á Þing-
völlum.
Vatnið er einstaklega tært
STENDUR VAKTINA VIÐ SILFRU
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Silfra Snorklarar koma í land í Lóni, eftir að hafa synt í bláköldu vatninu.
Ingunn Ósk
Árnadóttir