Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 1
Helgi viðurkennir að hann hafi haft áhyggjur af því að brotum myndi fjölga í kjölfar hrunsins og að við myndum sjá einhverja hrinu auðg- unar- og ofbeldisbrota næstu misseri á eftir, en það gerðist ekki. Fíkniefnabrotum sem tengjast ræktun fjölgaði nokkuð í kjölfar hrunsins og héldu sumir því fram að það tengdist afleiðingum þess, að sögn Helga. »10 Morgunblaðið/Ómar Handtaka Hegningarlagabrotum fækkaði almennt frá 2006 til 2016. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Miklar áhyggjur voru um að brota- tíðni færi að aukast í kjölfar efna- hagshrunsins 2008. Hins vegar varð aðeins lítil tímabundin fjölgun brota árin 2008 og 2009 og hefur hegning- arlagabrotum almennt fækkað árin 2006 til 2016. Þetta kom m.a. fram í erindi Helga Gunnlaugssonar, pró- fessors í félagsfræði við Háskóla Ís- lands, á ráðstefnunni „Hrunið, þið munið“ sem haldin var á laugardag. Þá sagði Helgi að síðastliðin ár hefðu hegningarlagabrot verið um 15 prósent skráðra brota hér en umferð- arlagabrotin væru langflest eða um 75 prósent allra skráðra brota. Í að- draganda og strax í kjölfar banka- hrunsins árið 2008 hefði málum fjölg- að, einkum innbrotum og þjófnuðum. Brotum fjölgaði tímabundið  Áhrif hrunsins á afbrotatíðni reyndust minni en óttast var M Á N U D A G U R 8. O K T Ó B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  236. tölublað  106. árgangur  TÓNLISTAR- ÆVINTÝRI Í ELDBORG SÁU BEINA- GRINDUR OG FORNT SKYR VERKIN HAFA MÓTAÐ ÁSÝND SAMFÉLAGSINS ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 12 ÞEKKT VÖRUMERKI 26MAXI FER Á FJÖLL 29 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Fiskeldi Vestfirðingar flytja nú orðið út meiri verðmæti í eldislaxi en í þorski.  Stjórnvöld vinna að tilteknum lausnum til að bregðast við óviss- unni sem Vestfirðingar standa nú frammi fyrir, að sögn bæjarstjóra Vesturbyggðar og oddvita Tálkna- fjarðarhrepps. Þær hittu formenn stjórnarflokkanna á laugardag. Formennirnir tjáðu sig allir um fiskeldismálið um helgina. Fjórir forystumenn í Sjálfstæðis- flokknum gera þá kröfu í aðsendri grein í Morgunblaðinu „að fiskeldi hér á landi séu settar sanngjarnar kröfur en ekki þannig að þær nálg- ist að vera hreint bann. Við skorum á þingmenn allra flokka, og þá ekki síst Sjálfstæðisflokksins, að lyfta umræðu upp úr hjólförum efa- semdahyggju og ómálefnalegra sjónarmiða í farveg skynsemi og sanngirni“. »2 og 17 Unnið að lausn til að leysa úr óvissu í fiskeldi Ungir öryrkjar » 30% öryrkja með 75% ör- orkumat eða meira undir fer- tugu. » Ungum karlmönnum, 20 til 30 ára, með geðraskanir fjölg- ar hlutfallslega mest. Þór Steinarsson thor@mbl.is „Ég get tekið undir það að þetta er mikið áhyggjuefni. Við höfum líka bent á þetta hjá VIRK, að ungum einstaklingum sem koma til okkar í starfsendurhæfingu hefur fjölgað svakalega,“ segir Vigdís Jóns- dóttir, framkvæmdastjóri VIRK, í samtali við Morgunblaðið. Tilefnið er umræða um mikið nýgengi ungs fólks í hópi öryrkja, sérstaklega ungra karlmanna með geðraskanir. Vigdís segir að meiri meðvitund um þjónustu VIRK skýri að ein- hverju leyti þessa miklu fjölgun en í öllu falli sé hlutfall örorku mjög hátt hér á landi. Vandamálið er margþætt en efla þarf úrræði í geðheilbrigðisþjón- ustu og heilsugæslu svo hægt sé að grípa fyrr inn í. „Það er mjög mikilvægt í um- fjöllun um þetta að átta sig á því að málið er mjög flókið og hefur margar hliðar. Það þýðir ekki að kenna einhverjum einum um. Það er okkar allra að leysa þetta mál og það bera allir ábyrgð,“ segir Vigdís einnig. Sérfræðingar og samráðshópur Alþingis leggja til upptöku starfs- getumats í stað örorkumats. Hlutfall örorku áhyggjuefni  Skortur á úrræðum ástæða þess að fleiri greinast með geðraskanir hér á landi  Lífskjör hafa áhrif á fjölda greininga  Vilja meta starfsgetu í stað örorku MÞriðjungur öryrkja innan … »4 Stórhundakynning var haldin í Garðheimum í Reykjavík um helgina. Þangað mættu félagar í Sleðahundaklúbbi Íslands og buðu börnum að sitja í vagni sem sterkur hundur dró á eftir sér. Páll, stjórnandi hundsins Úlfs, hljóp með en Kristinn Ari sat í vagninum og hafði gaman af. Sleðahundur dró börn í kerru Morgunblaðið/Kristinn Magnússon  „Ég mótmæli þeim ásökunum sem á mig eru bornar,“ sagði Kristjana Val- geirsdóttir, fjár- málastjóri Efl- ingar, í samtali við Morgun- blaðið. Gunnar Smári Egilsson, forystu- maður í Sósíalistaflokknum, skrif- aði í Miðjuna og á Facebook um launuð störf eiginkonu sinnar fyrir Eflingu. Hann nafngreindi þar Kristjönu og vændi hana um að hafa gert greiðslur til Öldu Lóu að fréttaefni vegna deilna við yfir- menn sína á skrifstofu félagsins. Hann sakaði einnig Kristjönu um spillingu í starfi. »9 Mótmælir ásök- unum Gunnars  Ef skylda á sveitarfélög til sam- einingar þurfa að vera há mörk um lágmarksfjölda íbúa til viðmiðunar. Þetta segir Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri í Sveitarfélaginu Skagafirði. Ef vel takist til um sam- einingu sveitarfélaga hafi þau betri tök en ella á að veita íbúum góða þjónustu. Mikilvægt sé líka að sveit- arfélög spanni félagslegar heildir og landsvæði. Framhald á eflingu sveitarfélaga sé að þeim verði fal- inn rekstur framhaldsskóla, enda fylgi því tekjur frá ríkinu. »8 Sveitarfélögin reki framhaldsskólana

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.