Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 7
Efnalaugin Björg fagnar
65 ára afmæli
Efnalaugin Björg er rót-
gróið fjölskyldufyrirtæki
sem hefur starfað í 65 ár
og er ein elsta starfandi
efnalaug hér á landi.
Nú eru tímamót hjá
Efnalauginni þar sem
þriðja kynslóðin hefur
tekið við rekstrinum.
Álfabakka 12, 109 Reykjavík, sími 557 2400, www.bjorg.is • Opið alla virka daga kl. 8-18
Á myndinni er Magnús Kristinsson stofnandi, seinni kona hans Gréta Bachman, dóttir Magnúsar
Ágústa K. Magnúsdóttir, eiginmaður hennar Sigurður Jónsson, Guðrún E. Sigurðardóttir og
konan hennar Þuríður V. Eiríksdóttir sem voru að taka við sem þriðja kynslóð.
„Ég hef starfað við Efnalaugina Björg til margra ára bæði þegar afi var með
Efnalaugina Björg og nú undanfarin tuttugu ár hjá mömmu og pabba hér í Mjódd.
Við Þuríður munum hafa sömu gæði, innra eftirlit og halda áfram að vera með nýjustu
tækin á markaðnum hverju sinni.
Það sem við leggjum mestu áherslu á er að veita persónulega þjónustu, gott starfsfólk, gæði og
þekkingu. Við erum með einu, svo við vitum til, umhverfisvænu hreinsivélina á landinu fyrir það
allra viðkvæmasta eins og t.d. palliettukjóla og allar flíkur sem eru merktar F.
Við erum með gæðavottun frá BOSS í þýskalandi. Við hreinsum allt leður, rúskinn og loðfeldi.
Ánægjulegt hvað viðskiptavinirnir hafa haldið tryggð við okkur og nýir bæst við.
Við nýju eigendurnir munum því kappkosta að halda sömu gæðum.“
Þökkum viðskiptin í 65 ár
Afmælis-
tilboð!
20% afsláttur
af hreinsun á öllum yfirhöfnum
til 12. október