Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 14
Morgunblaðið/Golli Skrifað hefur verið undir kaup- samning svissneska fjárfestingar- félagsins DC Renewable Energy AG á 12,7% hlut fagfjárfestingarsjóðs- ins ORK í HS Orku. Í tilkynningu sem send var fjöl- miðlum á laugardag kemur fram að DC Renewable Energy hafi um ára- bil kynnt sér íslenska orkugeirann í gegnum systurfélag sitt Atlantic SuperConnection, sem sérhæfir sig í þróunarverkefnum í orkugeira. DC Renewable Energy sjái tækifæri í frekari nýtingu jarðvarma til orku- framleiðslu á alþjóðavísu og þyki fjárfesting í HS Orku því góður fjár- festingarkostur til lengri tíma. Móðurfélag DC, Disruptive Cap- ital Finance, er skráð í kauphöllina í Sviss. ai@mbl.is Svisslendingar fjárfesta í HS Orku 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Rakaskemmdir ogmygla Rb á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Málstofa um innivist og áhrif raka ogmyglu á vellíðan og heilsu Nýsköpunarmiðstöð Íslands að Árleyni 8, 112 Reykjavík Mánudaginn 8. október frá kl. 13 -16 Fundurinn er opinn öllum og aðgangur ókeypis Skráning á nmi.is/malstofa Setning Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands Hvað kosta rakaskemmdir marga milljarða á ári fyrir samfélagið? Ólafur H. Wallevik, prófessor við HR og forstöðumaður Rannsóknarstofu byggingariðnaðarins á Nýsköpunarmiðstöð Íslands Loftgæðamælingar við mat á innivist Alma Dagbjört Ívarsdóttir, verkfræðingur á Mannviti Indoor air quality and health issues due to moisture and mold Sverre B. Holøs, yfirverkfræðingur hjá SINTEF í Noregi Pallborðsumræður Stjórnandi: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og þátttakendur eru: Björn Marteinsson Háskóli Íslands Indriði Níelsson Verkís Ríkharður Kristjánsson EFLA Kristmann Magnússon Rb á NMÍ Einnig verður sérstakt námskeið um áhrif raka á myglu og innivist. Þriðjudaginn 9. okt frá kl 9 – 12 með Sverre B. Holös frá Sintef. Aðgangsverð að því námskeiði er 19.000 kr. Skráningar sendist á margret.th@nmi.is BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Guðjón Heiðar Pálsson segir íslensk- um fyrirtækjum hætta til að velja sk. geiraforstjóra frekar en fagforstjóra til að stýra rekstrinum. „Þekkingar- lega stendur þó fagforstjórinn skör- inni hærra en geiraforstjórinn, enda hefur fagforstjórinn menntað sig sérstaklega með einhverjum hætti til að gegna starfinu.“ Geiraforstjóri, í þessu tilviki, er stjórnandi sem klifrar upp metorða- stigann í tilteknum geira en er ekki með mikla stjórnunarmenntun. „Þetta eru afburðamanneskjur sem henta vel til að gegna t.d. stöðu fram- kvæmdastjóra tiltekins sviða og nýta þar sérþekkingu sína s.s. á sviði fjár- mála, verkfræði eða sölu, en þetta er ekki endilega hæfasta fólkið til að fylla í skarðið þegar forstjórastóllinn losnar. Samt er algengt á Íslandi að velja úr röðum framkvæmda- og sviðsstjóra þegar manna þarf for- stjórastöður,“ segir Guðjón Heiðar. „Ástæðan er sú að þar sem þetta fólk þekkir geirann og fyrirtækið vel þykir það af þeim sökum hæfast til að leiða reksturinn. Vissulega getur það verið rétt mat að þetta fólk geti stýrt fyrirtækinu, en getur það leitt reksturinn í anda þjónandi forystu til móts við nýja og síbreytilega tíma? Það getur fagforstjórinn gert.“ Þarf persónutöfra og næmi Guðjón Heiðar, sem er fram- kvæmdastjóri BCW, Burson Cohn & Wolfe Íslandi, segir grundvallarmun á því að stýra sérhæfðu sviði og halda utan um stefnu heils fyrirtæk- is. „Fagforstjóri getur gengið inn í hvaða fyrirtæki sem er, fengið alla starfsmenn á sitt band og leitt rekst- urinn í samræmi við stefnulega áætl- un. Hann þarf ekki að hafa reynslu af sjómennsku til að geta stýrt sjávar- útvegsfyrirtæki eða vera verkfræð- ingur til að geta stýrt vegagerð. Fag- forstjórinn þekkir lögmál stefnu- legrar nálgunar, þekkir samvirkni á hverju stigi og á milli stiga, og hlut- verk hans gengur að stóru leyti út á þjónandi forystu,“ segir Guðjón Heiðar og bætir við að lausn lítillar þjóðar á vöntun á forstjórum geti verið fólgin í fagforstjóranum. Fagforstjórinn, segir Guðjón Heiðar, ræður síðan til fyrirtækisins framkvæmdastjóra sem hafa dýpri þekkingu á ólíkum sviðum rekstrar- ins. „Fagforstjórinn getur leitt ótak- markaðan fjölda af sérhæfðu starfs- fólki án þess að hafa nokkuð þekkingarlegt forskot á þeim til- teknu sviðum sem sérfræðingarnir fást við, á meðan framkvæmdastjór- inn, stjórnandinn, þarf að vita jafn- mikið og allir sem hann stjórnar – og a.m.k. einu meira.“ Einnig þarf fagforstjórinn að búa yfir töluverðum hæfileikum í mann- legum samskiptum. „Nauðsynlegt er að hann hafi mikla persónutöfra og sé næmur á vellíðan og vanlíðan starfsmanna. Hann nýtir þann breytileika sem má finna innan starfsmannahópsins til að efla heild- ina og dregur um leið fram það sem hver og einn er bestur í. Hann treystir líka starfsfólki sínu, sam- virkni og samskiptum þeirra í milli.“ Þurfa vettvang og fræðslu En er þá ekki allt sem þarf, til að geta kallast góður fagforstjóri, að vera með MBA-gráðu? „Í dag virðast margar MBA-námsbrautir vera óttaleg hraðsuða í rekstrarfræðum en lítið kafað ofan í hirðingjahlut- verk forstjórans. MBA-nám er ekki lykillinn heldur viljinn til verka; að skilja stefnulega hugsun og aðferða- fræði vandaðrar stjórnunar.“ Gæti hjálpað, að sögn Guðjóns Heiðars, að setja á laggirnar sér- stakan vettvang fyrir fagforstjóra. „Forstjórar eiga erfitt með að leita sér stuðnings inni í fyrirtækinu því það getur skaðað trúverðugleika þeirra. Þeir þurfa því að ná sér í stuðning og styrk utan rekstrarins en á Íslandi er sá vettvangur lítill og vanmáttugur,“ útskýrir Guðjón Heiðar. „Hjá Burson Cohn & Wolfe erum við að skapa slíkan vettvang þar sem forstjórar geta leitað í sarp innlendra og erlendra ráðgjafa og fræðst um nýjustu stefnur og strauma og haft stað til að skiptast með óformlegum hætti á skoðunum við aðra fagforstjóra.“ Gætum nýtt fagforstjóra betur Morgunblaðið/Hari Auðlind Guðjón Heiðar Pálsson segir fagforstjórann geta stýrt hvaða rekstri sem er, meðal annars í krafti stjórnunarþekkingar og persónutöfra.  Það er ekki endilega best að velja úr framkvæmdastjórahópnum þegar fylla þarf lausa forstjórastöðu Stjórnvöld í Kína tilkynntu á sunnu- dag að bindiskylduhlutfall banka þar í landi yrði lækkað um 100 punkta. Í dag er bindiskylda stærri banka 15,5% en smærri bankar þurfa að geyma 13,5% innlána. Lækkunin mun taka gildi 15. október og verður bindi- skylduhlutfallið þá 14,5% og 12,5%. Að sögn Reuters er þetta í annað skiptið á árinu sem slakað er á bindi- skyldukröfum í Kína en sams konar lækkun var gerð í apríl. Eiga hag- fræðingar von á að hlutfallið verði lækkað enn frekar áður en árið er á enda. Með því að lækka bindiskylduna má reikna með að um 750 milljarðar júana, jafnvirði 109,2 milljarða dala, streymi út í kínverska hagkerfið og mun það hjálpa til að draga úr nei- kvæðum áhrifum harðnandi tolla- stríðs á milli Kína og Bandaríkjanna. Mátti greina veikleikamerki í útflutn- ingi á fyrir hluta ársins og segja sér- fræðingar að áhrifa tollastríðsins sé farið að gæta í hagkerfinu. Ríkisfréttastofan Xinhua News hafði á sunnudag eftir Liu Kun, fjár- málaráðherra Kína, að það kynni að vera von á frekari örvunaraðgerðum, s.s. víðtækum skattalækkunum. ai@mbl.is AFP Viðbragð Lægri bindiskylda losar um hundruð milljarða júana. Bindiskylduhlutfall lækkað í Kína  Innspýting til að vega upp á móti áhrifum tollastríðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.