Morgunblaðið - 08.10.2018, Side 17

Morgunblaðið - 08.10.2018, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Með tösku í för Þessir ferðamenn voru á ferð austur Bústaðaveg, þar sem oft er kallað Litla-Öskjuhlíð. Eggert Umhverfismál eru smám saman að þokast ofar á dag- skrá alþjóðastjórnmála og einnig hérlendis. Á þessu sviði hefur tregðulögmálið ráðið för eins og best sést af því að nær hálfa öld tók það alþjóðasamfélagið að sam- einast um að spyrna við fót- um gegn manngerðum lofts- lagsbreytingum. Þegar árið 1968 sýndu rannsóknir í hvað stefndi með aukningu koldíoxíðs í and- rúmslofti. Dæmi um að skilaboðin hafi loks náð eyrum stjórnmálamanna eru orð Guð- laugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fyrir viku þar sem hann sagði engan vafa í sínum huga „að loftslagsbreytingar eru óðum að verða alvarlegasta ógnin við heimsfrið, ör- yggi og þróun“. Í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar og stefnu umhverfis- og auðlindaráðuneytis er síðan að finna mörg fyrirheit sem stefna í rétta átt, m.a. um nátt- úruvernd og skipulag. En til að ná raunveru- legum árangri þarf að virkja almenning til þátttöku og stilla saman strengi með sveit- arfélögum sem nýverið hafa kosið sér for- ystu til fjögurra ára. Það á ekki síst við um ákvarðanir í skipulagsmálum, þar sem sveit- arfélögin eru í lykilstöðu lögum samkvæmt. Breyttar forsendur fyrir náttúruvernd „Fámenn þjóð í stóru landi“ er oft við- kvæðið þegar lýsa skal aðstæðum hérlendis og viðfangsefnum sem tengjast búsetunni. Samkvæmt opinberum tölum er innan við fjórðungur landsins talinn gróinn og til bú- setu fallinn og hefur sá hluti minnkað mikið frá landnámi vegna gróðureyðingar og upp- blásturs. Fyrstu skipulagslög hérlendis voru sett árið 1921 og náðu þá aðeins til kauptúna og sjávarþorpa með yfir 500 íbúa. Það er svo fyrst árið 1979 að allt landið var gert skipu- lagsskylt og ekki fyrr en undir síðustu alda- mót að þau ákvæði tóku í reynd einnig til há- lendissvæða eftir að mörk sveitarfélaga voru ákvörðuð inn til landsins. Fyrsti þjóðgarður- inn að náttúruverndarlögum var stofnaður í Skaftafelli árið 1967 og fyrsti fólk- vangurinn hérlendis í Neskaup- stað 1972. Fyrsti þjóðgarðurinn sem náði að sjó var Snæfells- nesþjóðgarður, stofnaður árið 2001 eftir að hafa verið á dagskrá í þrjá áratugi. Aðsókn að honum hefur margfaldast síðustu árin. Með skipulagslögunum 1997 og þjóðlendulögum um sama leyti opnuðust möguleikar á að efna til þjóðgarða í óbyggðum hálendisins og á þeim grunni var Vatnajökuls- þjóðgarður formlega stofnaður fyrir röskum áratug. Samhliða fór fram um- ræða um fleiri þjóðgarða á þjóðlendum miðhálendisins. Er nú markvisst unnið að því máli á vegum stjórnvalda í samráði við aðliggjandi sveitarfélög. Stór og smá svæði bíða friðlýsingar Á náttúruminjaskrá er listi yfir öll friðlýst svæði á Íslandi og fjölmörg önnur áhugaverð og merkileg svæði sem enn hafa ekki verið friðlýst. Umhverfisstofnun á í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands og hlutaðeig- andi náttúrustofur og náttúruverndarnefnd- ir að sjá um undirbúning og öflun gagna vegna viðbóta við náttúruminjaskrá og heildarútgáfu hennar. Forðast ber að raska svæðum eða náttúrumyndunum sem eru á skránni og ekki hafa þegar verið friðlýstar og auk þess fylgir viss forkaupsréttur ríkis- ins ef fyrirhuguð er sala þeirra. Í lok síðasta árs voru þannig skráðar samtals 778 nátt- úruminjar, mikill meirihluti án friðlýsingar að náttúruverndarlögum. Að mínu mati hef- ur gengið alltof hægt hjá stjórnvöldum að taka afstöðu til og láta reyna á friðlýsingu slíkra minja og veldur miklu fjárskortur til Umhverfisstofnunar mörg undanfarin ár. Þetta á m.a. við um stór svæði fram með ströndum landsins sem fallið hafa úr byggð að mestu eða öllu leyti á síðustu öld og búa yf- ir fjölbreyttri og sérstæðri náttúru og menn- ingarminjum, sem sumar hverjar eru í bráðri eyðingarhættu, m.a. af hækkun sjávarborðs. Á sama tíma seilast útlendingar á síauknum mæli eftir kaupum á landi og jörðum hér- lendis, m.a. í krafti EES-samningsins. Efniviður í stór verndarsvæði Undirritaður hefur í meira en hálfa öld fylgst með stöðu og þróun náttúruverndar- mála hér heima og erlendis. Margt ánægju- legt hefur borið við á þeirri vegferð en annað miður. Þannig hafa hlaðist upp fjölmörg verkefni sem kalla á afstöðu og úrlausn. Þetta á m.a. við um áðurnefnd stór svæði í öllum landshlutum þar sem byggðin er orðin mjög strjál eða hefur lagst af með öllu. Ef skipulagsyfirvöld á vegum ríkis og sveitar- félaga eru ekki á vaktinni um afdrif slíkra landsvæða ræður kylfa kasti um meðferð þeirra og afdrif. Ég vil sérstaklega hvetja sveitarstjórnarmenn eldri sem yngri til að fara yfir þessi mál, hvern í sínum ranni. og bind vonir við að þeir fái betri áheyrn nú af hálfu Alþingis sem og ríkisvaldsins og stofn- ana þess en verið hefur um skeið. Leyfist mér hér í lokin að tilfæra nokkur dæmi um álitleg svæði utan miðhálendisins sem efni í þjóðgarða, friðlönd eða til landslagsverndar: Búlandstindur, Búlandsdalur og Hálsar  Breiðdalseldstöð  Gerpissvæðið  Úthérað og aðliggjandi fjallgarðar  Víkur og Loðmundarfjörður  Langanes frá Gunnólfsvík að Fonti  Melrakkaslétta norðanverð  Flateyjarskagi og Náttfaravíkur.  Kálfshamarsvík og Ketubjörg á Skaga  Norður-Strandir með Drangajökli  Skaginn milli Arnarfj. og Dýrafjarðar  Arnarvatnsheiði og Tvídægra  Brynjudalur, Botnsdalur og Hvalvatn  Reykjanes, Eldvörp og Hafnabjarg  Skjaldbreiður og grennd  Þórsmörk og nágrenni  Núpsstaður, Núpsstaðarskógar og Grænalón Hér er verk að vinna í þágu alþjóðar og umheimsins. Eftir Hjörleif Guttormsson »Ég vil sérstaklega hvetja sveitarstjórnar- menn eldri sem yngri til að fara yfir þessi mál, hvern í sínum ranni. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Fjölga þarf náttúruverndar- svæðum í öllum landshlutum Fiskeldi er einn mest vaxandi sproti í mat- vælaframleiðslu í heiminum. Það er vel enda telur Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) að heimsbyggðin þurfi að tvöfalda matvælaframleiðslu sína fyrir árið 2050 til að mæta mannfjöldaaukningu jarðarinnar. Nú þegar koma meira en 50% af framleiddum fisk- afurðum í heiminum frá fiskeldi. Bara hér á landi er nú þegar alinn upp fiskur sem dugar í um 50 milljón máltíðir á ári. Við Íslendingar eigum ómæld ónýtt tækifæri í þessari atvinnu- grein en erum á góðri leið með að hindra fram- ganginn með deilum og ótta. Nýting tækifæra í nærumhverfi Við greinarhöfundar eigum það sammerkt að þekkja samtímasögu sjávarbyggða. Sum okkar fædd þar og uppalin og muna þá tíð þegar sjávarbyggðir meðfram allri strandlengjunni blómstruðu. Það var því miður á forsendum of- veiði og óhagkvæmni. Markvissari sóknarstýr- ing og hagræðing í greininni var nauðsynleg. Íslenskur sjávarútvegur er í dag hátækniiðn- aður þar sem störfin hafa færst úr því að skera fisk, setja í frysta og slá úr pönnum yfir í störf ofar í virðisaukakeðjunni svo í nýsköpun, vöruþróun og markaðsmál. Þetta er ánægjuleg þróun sem gerir okkur kleift að vera í fremstu röð og standast alþjóðlega samkeppni en því er ekki að neita að hefðbundnum störfum í sjáv- arbyggðunum hefur fækkað. Þessar nauðsyn- legu breytingar komu eðlilega harðast niður á íbúum sjávarbyggða. Réttur þeirra nú sem fyrr er að nýta tækifærin í nærumhverfi í sátt við náttúruna, þjóðarbúinu öllu til hagsbóta. Verðmætasköpun er forsenda velmeg- unar Forsenda velmegunar, velferðarríkisins Ís- lands, er verðmætasköpun. Til að viðhalda hér lífskjörum sem eiga sér fáa líka í heiminum verðum við nýta þau tækifæri sem landið, miðin og mannauðurinn gefa okkur hverju sinni. Kjörnum fulltrúum og stofnunum ríkisins ber að tryggja að lagaumhverfi og stjórnsýsla séu með þeim hætti að hvati sé fyrir fyrirtæki og einstaklinga að sækja fram og sjá ný tækifæri til sóknar fyrir okkur öll. Ef Íslendingar ætla ekki að dragast aftur úr í lífskjörum í saman- burði við hinar Norðurlandaþjóðirnar þurfum við að auka útflutning um 1.000 milljarða næstu 20 árin. Það þýðir að á hverju ári verðum við að auka útflutning um 50 milljarða eða um tæpan milljarð á viku. Þetta er verkefnið sem blasir við okkur Íslendingum. Vaxandi mikilvægi fyrir þjóðarbúið Fiskeldi gæti uppfyllt hluta af þessum 1.000 milljörðum. Ef vel tekst til gætu útflutnings- tekjur af því orðið um 100 milljarðar á ári innan áratugar. Það gefur því augaleið að mikið er í húfi fyrir þjóðina alla. Þótt fiskeldið hafi hvað augljósust áhrif í hinum dreifðu byggðum þá skiptir það okkur öll máli. Íslensk fiskeldis- fyrirtæki afla þjóðarbúinu verulegs gjaldeyris enda yfir 90% afurðanna seld á erlendum mörkuðum. Útflutningsverðmæti eru í dag á annan tug milljarða. Ekkert samfélag hefur rétt til að varpa slíku frá sér á forsendum deilna, tilfinningahlaðinnar umræðu og for- dóma. Jákvæð byggðaáhrif Fiskeldi hefur orðið mörgum byggðum kær- komið tækifæri. Með vexti þess hafa rótgrónar sjávarbyggðir á ný fengið tækifæri, langt um- fram það sem jafnvel bjartsýnustu menn þorðu að vona. Áhrifa fiskeldis gætir t.d. í öllum bæj- um og þorpum Vestfjarða nú þegar og Vestfirð- ingar flytja í dag út meiri verðmæti í laxi en þorski. Þetta er því atvinnugrein sem skiptir máli og með nýjum tækifærum koma nýir íbúar. Hjól atvinnulífsins eru farin að snúast og íbúarnir fullir trúar á framtíðina. Það er verk- efni stjórnmálanna að uppfylla þessar vænt- ingar. Fiskeldi fylgir áhætta Eins og við á um flestar atvinnugreinar sem byggjast á nýtingu náttúrunnar fylgir ákveðin áhætta fiskeldinu. Mest hefur verið rætt um slysasleppingar sem valdið geta erfðablöndun og þannig haft neikvæð áhrif á viðkomu villtra stofna. Raddir þar að lútandi hafa að mestu komið frá stangveiðifólki og eigendum veiði- réttar í laxveiðiám. Þá áhættu er hægt að tak- marka verulega og áhættumat Hafró staðfestir það. Áhættan er þó víðtækari. Það er því auð- velt að skilja og taka undir áhyggjur þar að lút- andi. Það er því sanngjarnt og eðlilegt að fisk- eldi verði áfram settur skýr rammi sem tryggir almannahagsmuni svo sem náttúruvernd. Vegferðin er hafin Að þessu leyti er fiskeldi eins og allar aðrar atvinnugreinar. Hún þarf lagaumhverfi sem er skýrt og einkennist af meðalhófi og sanngirni. Ábyrgð stjórnvalda nú er að tryggja að rekstrarumhverfi fiskeldisfyrirtækja verði þannig að þau geti haldið áfram að eflast. Þann- ig fjölgar stoðum efnahagslífs okkar og þannig styrkjast byggðir. Að sumu leyti er vegferðin hafin. Þannig hefur t.d. laxeldinu verið ætlað afmarkað svæði á Austfjörðum og Vest- fjörðum, gagngert til að vernda laxastofninn en jafnframt með það fyrir augum að skilyrði fyrir laxeldisframleiðslu á þessum stöðum séu hag- stæð í öllu tilliti. Fiskeldi í sátt við náttúruna Krafa okkar er að fiskeldi hér á landi séu settar sanngjarnar kröfur en ekki þannig að þær nálgist að vera hreint bann. Við skorum á þingmenn allra flokka, og þá ekki síst Sjálf- stæðisflokksins, að lyfta umræðu upp úr hjól- förum efasemdarhyggju og ómálefnalegra sjónarmiða í farveg skynsemi og sanngirni. Ef við berum gæfu til að hafa pólitíska forystu í þessu mikilvæga máli verður fiskeldi í sátt við náttúruna farsælt verkefni en ekki vandamál. Þingmenn og ráðherrar þurfa að stíga inn í um- ræðuna og axla ábyrgð sem löggjafi. Í þessu er ekki í boði að skila auðu. Eftir Daníel Jakobsson, Elliða Vignisson, Jens Garðar Helgason og Völu Pálsdóttur »Ef við berum gæfu til að hafa pólitíska forystu í þessu mikilvæga máli verður fiskeldi í sátt við náttúruna farsælt verk- efni en ekki vandamál. Daníel Jakobsson Daníel er bæjarfulltrúi á Ísafirði, Elliði er bæj- arstjóri í Ölfusi, Jens Garðar er bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og Vala er formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna. Úr hjólförum efasemdarhyggju í farveg skynsemi Elliði Vignisson Vala PálsdóttirJens Garðar Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.