Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.10.2018, Qupperneq 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Fagurfræði hinna hversdagslegu hluta ns hurðarhúnn nnuður: Arne Jacobsen artur, 111mm ir þýskar skrár og SA/Boda skrár d line hurðarhúnn Hönnuður: KnudHolscher Satínáferð, ryðfrítt stál Mgerð 16mm Fyrir þýskar skrár og ASSA/Boda skrár d line hurðarhúnarnir eru sígild dæmi um glæsilega hönnunþar semhvergi er gefið eftir í útliti og efnisvali. Fagurfræði í fullko sáttviðnotagildi, óaðskiljanlegur h hversdagsins. Iko Hö Sv F AS mi i luti SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Leikritið Ég heiti Guðrún frumsýnt í Kúlunni Glaðbeittir Sigurður Waage og Davíð Arnar Baldursson nutu listarinnar. Máttarstólpar Rikke Wölck, höfundur verksins, ásamt Magdelene Grön Juul, sem leikstýrði uppsetningu þess í Danmörku. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Áhugavert er til þess að hugsa hvernig sköpunarverk Gísla B. Björnssonar hafa mótað ásýnd sam- félagsins. Hann er hönnuður margra þekktustu vörumerkja Íslands og á t.d. heiðurinn af merkjum RÚV, Hjálparstarfs kirkjunnar og Nor- ræna félagsins svo aðeins séu nefnd örfá dæmi sem landsmenn hafa fyrir augunum alla daga. Hann átti líka þátt í að mennta fjölda grafískra hönnuða sem hafa látið að sér kveða í vörumerkjahönnun og kenndi í um það bil hálfa öld við Listaháskóla Ís- lands. Gísli er núna sestur í helgan stein og segist hafa nýtt tækifærið til að fást við alls konar grúsk og fikta við myndlist. Ný bók, Merki og form, er afraksturinn af þessu grúski en þar safnar Gísli saman alls kyns fróðleik um vörumerkjahönnun sem hann hefur sankað að sér á löngum ferli: „Upphafið að verkinu var að ég hafði aldrei gengið almennilega frá þeim textum sem ég hafði samið og notað í fyrirlestrum mínum og kennslu, og höfðu kennarar leitað til mín eftir meira efni til að styðjast við. Ég hófst handa við að tína saman þessa texta, minnisblöð og snepla og búa til úr þeim eina samfellu sem fjallar um grundvallaratriðin í hönnun vöru- merkja.“ Háskólaútgáfan og LHÍ gefa bók- ina út og var verkefnið styrkt af Hönnunarsjóði Íslands, Hönnunar- safninu, Myndstefi og Miðstöð ís- lenskra bókmennta. Bryndís Björg- vinsdóttir ritstýrði og umbrot var í höndum Ármanns Agnarssonar. Gísli lýsir bókinni þannig að hún byrji á yfirgripsmikilli fræðilegri út- tekt á vörumerkjahönnun í alþjóð- legu og íslensku tilliti. „Ég legg þvínæst stóran hluta bókarinnar undir merki sem hafa fylgt mér í störfum mínum án þess að hafa endilega verið nýtt sem tillögur. Þetta efni fæ ég úr gömlum skissum og hugmyndablöðum, sem ég flokka og snyrti og útskýri með texta hvers konar tákn-mál ég væri að glíma við. Oft eru þetta bakgrunnsverk sem leiddu af sér annað merki sem var síðan valið og notað,“ segir hann. „Þriðji hluti bókarinnar fjallar svo um þau verk sem urðu að vörumerkj- um og sýndar skissur sem smám saman tóku á sig rétta mynd.“ „Vil hafa allt í röð og reglu“ Gísla reiknast til að hann hafi hannað meira en 400 vörumerki sem voru í notkun í lengri eða skemmri tíma. „Ég hef verið 17 eða 18 ára þeg- ar ég hef nám við Myndlista- og handíðaskólann en þá var ekkert til við þann skóla sem hét hönnun af nokkru tagi. Verður úr að Lúðvík Guðmundsson sem þá var skólastjóri setur á fót sérstaka hönnunardeild og liggur við að það hafi verið gert sérstaklega fyrir mig. Fyrsta kastið vorum við ekki nema tveir-þrír nem- endur við þessa deild. Sverrir Har- aldsson og þýski hönnuðurinn Wolf- gang Schmidt önnuðust kennsluna og þar sem nemendurnir voru svona fáir upplifði ég það nánast að ég væri einkanemandi þeirra.“ Að námi við Myndlista- og hand- íðaskólann loknu heldur Gísli til Þýskalands og hefur nám við Lista- akademíuna í Stuttgart 1959. Hann sneri aftur til Íslands að námi loknu og stofnar auglýsingastofuna GBB árið 1961 sem hann seldi síðar en er enn starfrækt á sömu kennitölu „Skissurnar hjálpa til að kortleggja h Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samstarf „Verst er þegar verkkaupinn veit ekki alveg hvað hann vill og fer að hræra í ferlinu á miðri leið, sem kallar á meiri vinnu,“ segir Gísli.  Á hálfrar aldar ferli hannaði Gísli B. Björnsson meira en 400 vörumerki  Hann hefur skrifað bók sem safnar saman hafsjó fróðleiks um það krefjandi verkefni að hanna vel heppnað merki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.