Morgunblaðið - 08.10.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 08.10.2018, Síða 29
»Maxi fer á fjöll nefnist nýjasta ævintýrið um tónelsku músina Maxímús Músíkús, eftir flautuleikarann Hallfríði Ólafsdóttur. Tónlistarævintýrið er að vanda bæði flutt á sviði og gefið út á bók og geisladiski og að þessu sinni ferðast Maxi ekki einn því að með í för eru tvær gestamýs, Viva og Moto. Íslensk þjóðlög skipa stóran sess í ævintýrinu og fengu áheyrendur Eldborgar líka að syngja nokkur lög þegar verkið var flutt þar í fyrradag. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveit Los Angeles sem frum- flutti verkið á Reykjavíkurhátíð sinni í Walt Disney-tónlistarhöllinni í fyrravor. Nýjasta verkið um músina Maxímús, Maxi fer á fjöll, var flutt í Eldborg í fyrradag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðalstjarnan Erika Eldey og Helena Guðmundsdóttir heilsuðu upp á Maxa. Uppáklædd Una, Viktor og María skemmtu sér vel. Glæstur hópur Adríana Andrá, Elisabet, Elísabet Una, Gísli, Oddný, Berglind, Arnhildur og Bergur fjölmenntu á þennan skemmtilega menningarviðburð. Handmennt Hægt var að föndra útklippiverk af Maxímúsi Músíkúsi. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2018 Nýjasta kvikmynd leikstjórans Paul Greengrass, 22 July, verður sýnd í Bíó Paradís frá og með deginum í dag til 11. október og verða því að- eins örfáar sýningar á henni. Í kvik- myndinni er fjallað um hryðjuverk Anders Behring Breivik í Ósló og Útey 22. júlí árið 2011 og eftirmál þeirra en Breivik myrti 77 mann- eskjur og þar af 69 ungmenni í Út- ey. Í kvikmyndinni er sagan sögð frá sjónarhorni ungs manns sem lif- ir árás Breivik af og skrifaði Greengrass sjálfur handritið. Hann byggði það á alþjóðlegu metsölu- bókinni Einn af okkur eftir Åsne Seierstad, sem er margverðlaun- aður norskur blaðamaður, rithöf- undur og stríðsfréttaritari. Myndin var tekin upp að hluta á Íslandi þar sem fjöldi Íslendinga kom að framleiðslu myndarinnar. Margrét Einarsdóttir sá um bún- ingahönnun, Tinna Ingimarsdóttir um förðun, Finni Jóhannsson um framleiðslustjórn, Árni Gústafsson hljóðblandaði, Marta Luiza Macuga sá um leikmyndahönnun á Íslandi og Tómas Guðbjartsson fer einnig með lítið hlutverk í myndinni. Átakanleg Í 22 July er m.a. fjallað um réttarhöldin yfir Breivik. Kvikmynd Greengrass sýnd í Bíó Paradís  22 July tekin upp að hluta á Íslandi DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.