Morgunblaðið - 08.10.2018, Page 32

Morgunblaðið - 08.10.2018, Page 32
Kveikt verður á Friðarsúlunni í Við- ey í tólfta sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi Johns Lennons á morgun kl. 20 og mun ljóssúlan að vanda beinast til himins til 8. des- ember, dánardags Lennons. Boðið verður upp á fríar ferjusiglingar og strætóferðir fyrir og eftir tendrun og mun tónlistarmaðurinn Högni Egilsson flytja tónlist fyrir gesti kl. 19 og tónlistarkonan GDRN kl. 20.30, í Naustinu við Friðarsúluna. Kveikt á Friðarsúlunni í Viðey á morgun MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad-áskrift 6.173 kr. Íslands- og bikarmeistarar ÍBV unnu sætan eins marks sigur gegn franska liðinu PAUC Aix í 2. umferð EHF-keppn- innar í Eyjum í gær. Selfyssingar töpuðu hins vegar leik sínum á móti slóvenska liðinu Riko Ribnica með þriggja marka mun en eiga góða möguleika á að vinna upp þann mun á heimavelli. »2 Sigur og tap í EHF-keppninni ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason voru á skotskónum með liðum sínum um helgina. Gylfi skoraði frábært sigurmark Everton á móti Leicester og var útnefndur maður leiksins og Alfreð skoraði gegn Dortmund í tapi Augsburg í ótrúlegum leik. Ég held að þetta sé einn af eftirminnilegustu leikjum sem ég hef spilað og þá á frekar neikvæðan hátt, þar sem við töpuðum,“ sagði Alfreð í samtali við Morgunblaðið. »1 Gylfi og Alfreð voru aftur á skotskónum 25% afsláttur af völdum vörum. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þetta var hressandi sprettur,“ segir sr. Guðrún Karls-Helgudóttir, sóknarprestur við Grafarvogskirkju í Reykjavík. Þær Guðrún og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur við kirkj- una, hafa að undanförnu æft stíft fyr- ir þátttöku sína í Amsterdam- maraþoninu. Síðastliðinn föstudag hlupu þær stöllur saman frá Gljúfra- steini í Mosfellsdal og alla leið að sundlauginni á Seltjarnarnesi, alls 32 kílómetra. Eru því komnar í formið fyrir hlaupið í Hollandi, sem verður sunnudaginn 21. október næstkom- andi. Hugurinn hreinsast Rúmt ár er síðan þær Guðrún og Arna Ýrr tóku stefnuna á Amster- dam og strax í fyrrasumar, 2017, byrjuðu þær að æfa og taka þátt í ýmsum keppnum. Nú í sumar hlupu þær meðal annars heilt Reykjavíkur- maraþon, auk þess að æfa með hóp- um og á eigin vegum, og oftar en ekki eru þær saman á ferð. Jafnhliða annasömu starfi prests- ins segir Guðrún að hreyfing sé nauðsynleg. „Ég fer reglulega í ræktina til að lyfta og hef síðan æft með hlaupahópi Fjölnis hér í Grafar- vogi. Dagarnir í prestsstarfinu eru oft snúnir; eftir til dæmis jarðarfarir sem stundum taka á finnst mér frá- bært að fara út að hlaupa. Hugurinn hreinsast og nýjar hugmyndir fæð- ast, ég hef oft samið heilu ræðurnar og predikanirnar á hlaupum. Og núna á föstudaginn þegar við Arna Ýrr hlupum ofan úr Mosfellsdal rök- ræddum við guðfræði og lögðum lín- urnar fyrir predikun.“ Til útlanda með hlaupaskóna Fimm ár eru síðan Guðrún byrjaði að æfa hlaup og segir hún að þau séu löngu orðin hluti af daglegu lífs- mynstri sínu. Og fari hún til útlanda séu hlaupaskór og íþróttaföt alltaf með í ferðatöskunni. „Á hlaupum sérðu mannlífið í kringum þig frá sérstökum vinkli. Í sumar náði ég að hlaupa í Boston, Berlín og London og núna fyrir nokkrum dögum úti í Stokkhólmi. Þetta er virkilega skemmtilegt,“ segir Guðrún, sem setur stefnuna á að ná maraþoninu í Amsterdam á fjórum og hálfri klukkustund. Allt undir því verði per- sónulegur sigur. Skilar sér margfalt Ár og dagur er síðan sr. Arna Ýrr byrjaði fyrst að æfa hlaup, þá norður á Akureyri þar sem hún er fædd og uppalin. Æfði þá með Kjarnakonum, hópi kvenna sem hlupu meðal annars um Kjarnaskóg, rétt sunnan við bæ- inn. Síðan tók hún sér langt hlé en byrjaði svo aftur að hlaupa fyrir rúm- um áratug, þá sóknarprestur á Raufarhöfn. „Á Melrakkasléttunni voru engar skipulagðar æfingar svo ég byrjaði að hlaupa,“ segir Arna Ýrr og kveðst nú vera komin í gott form fyrir mara- þonið í Amsterdam. Þjálfun sé lokið og fram undan aðeins léttar æfingar. „Hlaupin skila orku og andlegri hvíld. Það er ágætt að hafa tónlist í eyrunum á hlaupum og ýta sér þann- ig áfram. Og ekki veitir af hvatningu stundum. Í roki og rigningu er afrek út af fyrir sig að fara út að hlaupa, sem þó skilar sér margfalt í betri líðan,“ segir Arna Ýrr Sigurðardóttir að síðustu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hlaup Prestarnir Arna Ýrr, til vinstri, og Guðrún fóru úr Mosfellsdal og vestur á Seltjarnarnes á harðaspretti. Prestarnir á hlaupum  Guðrún og Arna Ýrr æfa fyrir maraþon  Ætla til Amsterdam  Rökrætt og predikanir samdar á hlaupum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.