Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Skúli Halldórsson
Hjörtur J. Guðmundsson
„Það var ekkert annað í boði en að
bregðast við því upphlaupi sem
hafði skapast í kjölfar úrskurðarins.
Ókyrrðin hefur verið mikil og óör-
yggið sömuleiðis, og úr því þurfti að
bæta,“ sagði Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra. Hann stefnir að því að leggja
sem allra fyrst fram frumvarp til
laga um breytingar á lögum um
fiskeldi. Atvinnuveganefnd kemur
saman klukkan 8.00 í dag og er fisk-
eldi á dagskrá fundarins.
Samkvæmt frumvarpinu getur
ráðherra, í þeim tilvikum sem
rekstrarleyfi er fellt úr gildi, gefið
út rekstrarleyfi til bráðabirgða til
allt að tíu mánaða, að fenginni um-
sögn Matvælastofnunar enda mæli
ríkar ástæður með því. Einnig að
ráðherra geti sett rekstrarleyfi til
bráðabirgða þau skilyrði sem þörf
er á svo tilgangur leyfisins náist,
m.a. um samdrátt starfsemi sem
þegar er fyrir hendi, um tímafresti
vegna úrbóta eða ef um meðferð
máls fyrir dómstólum er að ræða.
„Það er þarna galli í löggjöfinni
hjá okkur sem þessi úrskurður
dregur fram í ljósið, ekki síst í ljósi
áhrifanna sem hann svo hefur. Þá
verðum við að hafa einhver úrræði
til taks, til þess að reyna að leggja
mat á það með hvaða hætti best
verði forðað frá tjóni,“ sagði Krist-
ján Þór.
Kristján Þór kynnti frumvarpið á
ríkisstjórnarfundi í gær. Sem kunn-
ugt er felldi úrskurðarnefnd um-
hverfis- og auðlindamála (ÚUA) úr
gildi starfsleyfi og rekstrarleyfi sem
Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax
hf. höfðu fengið vegna laxeldis í
Patreksfirði og Tálknafirði. Frum-
varpið var síðan rætt í þingflokkum
ríkisstjórnarflokkanna.
Gætu sótt um undanþágu
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra sagði ljóst að
umrædd fyrirtæki gætu sótt um
undanþágu frá starfsleyfunum sem
felld voru úr gildi af úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála.
Sá hluti málsins sneri að honum en
hefði ekki verið til umræðu á ríkis-
stjórnarfundinum. Að öðru leyti
heyrði málið undir sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Spurður hvort fyrirtækin,
Fjarðalax hf. og Arctic Sea Farm
hf. hefðu sótt um slíkar undanþágur
sagðist Guðmundur ekki vita til
þess. Til stóð að Umhverfisstofnun
og Skipulagsstofnun ræddu við
fyrirtækin í gær um næstu skref.
Guðmundur sagði að það væri í
raun stofnananna að leiðbeina lax-
eldisfyrirtækjunum um næstu
skref.
Spurður hvort málið væri þá ekki
á hans borði sagði Guðmundur að
þessi hluti málsins heyrði undir
hans ráðuneyti og ef sótt yrði um
undanþágu frá starfsleyfinu kæmi
það inn á hans borð.
Ráðherra gefi leyfi til bráðabirgða
Morgunblaðið/Hari
Fiskeldismál Kristján Þór Júlíusson ræddi við fjölmiðla að loknum fundi.
Sjávarútvegsráðherra bregst við sviptingu leyfa tveggja laxeldisfyrirtækja með frumvarpi Bæta
þarf úr óöryggi Bráðabirgðaleyfi til allt að tíu mánaða, að fenginni umsögn Matvælastofnunar
„Það er út af fyrir
sig athyglisvert að
þetta skuli vera
með þessum
hætti,“ segir Páll
Magnússon, for-
maður allsherjar-
og menntamála-
nefndar Alþingis,
um það mat
greiningardeildar
Ríkislögreglustjóra að erlend ríki
stundi njósnir hér á landi með svip-
uðum hætti og í öðrum löndum. Þá
segir hann nauðsynlegt að nefndin fái
ríkislögreglustjóra á fund sinn.
„Mér finnst þetta gefa tilefni til þess
að ríkislögreglustjóri komi fyrir
nefndina við tækifæri og geri grein
fyrir því hvernig þessum málum er
háttað. Hvað við vitum, hvað við vitum
ekki og hvað þarf til þess að við séum
með þessi mál í því horfi sem við vild-
um og hvort þar vanti eitthvað upp á,“
segir Páll. Spurður hvort skoða ætti
víkkun rannsóknarheimilda lögreglu
vegna njósna erlendra ríkja segir Páll
að sér þyki of snemmt að segja til um
það á þessu stigi. „Ég hefði fyrst viljað
heyra í ríkislögreglustjóra og hlusta á
röksemdir hans fyrir því sem þyrfti að
gera sem við erum ekki að gera í dag.
Síðan í framhaldinu endurmeta þetta
ef einhverjar nýjar upplýsingar koma
fram.“ gso@mbl.is
Vill funda
um njósnir
Páll Magnússon
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is
Mangó jógúrt
Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
hefur ekki enn fengið umbeðin gögn
frá Ríkisútvarpinu (RÚV) vegna
þjóðsöngsmálsins svonefnda.
„Við bíðum enn eftir að fá auglýs-
ingarnar eða kynningarnar frá Ríkis-
útvarpinu, myndefni og hljóðskrár, til
að geta sannreynt hvort notað var
bæði lag og ljóð þjóðsöngsins eða
bara ljóðið. Það getur skipt máli,“
sagði Svanhildur Hólm, aðstoðar-
maður Bjarna Benediktssonar, fjár-
mála- og efnahagsráðherra. Hún
taldi að það tæki skamman tíma að
gefa álit um málið, eða ljúka því, um
leið og gögnin bærust. Svanhildur
sagði að beiðni um að fá efnið hefði
verið ítrekuð í gær.
Sem kunnugt er birti RÚV á liðnu
sumri upplestur á
þjóðsöngnum í
tengslum við þátt-
töku íslenska
landsliðsins í
heimsmeistara-
keppninni í knatt-
spyrnu. Þjóð-
þekktir
Íslendingar léðu
raddir sínar til
upplestursins,
þeirra á meðal Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra.
Eftir að lestur þjóðsöngsins hófst í
dagskrárkynningu eða eftir atvikum
auglýsingum RÚV fékk forsætis-
ráðuneytið fyrirspurn um lögmæti
þess. Ráðuneytið fer með málefni
þjóðsöngsins, en bannað er að nota
hann í viðskipta- og auglýsingaskyni.
Brot getur varðað sektum eða fang-
elsi allt að tveimur árum.
Forsætisráðuneytið sendi útvarps-
stjóra fyrirspurn 3. júlí og vakti at-
hygli á því að ekki væri heimilt að
flytja eða birta þjóðsönginn í annarri
mynd en þeirri upprunalegu, né held-
ur að nota hann á nokkurn hátt í við-
skipta- og auglýsingaskyni. RÚV
svaraði fyrirspurninni og mótmælti
því að umrædd „dagskrárkynning“
teldist lögbrot með þeim hætti sem
vísað var til í erindi forsætisráðuneyt-
isins. Katrín Jakobsdóttir ákvað að
víkja sæti í málinu og tók Bjarni
Benediktsson við því sem staðgengill
hennar. gudni@mbl.is
Fjármálaráðuneytið bíður eftir
umbeðnum gögnum frá RÚV
RÚV Áhöld um
þjóðsönginn.
Ekki er enn kominn botn í þjóðsöngsmálið svonefnda
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kópavogsvöllur fær gervigras og flóðlýsingu
Jarðvegurinn undir Kópavogsvelli er nú kannaður. Til stendur að leggja
gervigras á völlinn og setja upp flóðlýsingu, að sögn Ómars Stefánssonar
forstöðumanns. Kanna þarf jarðvegsstöðuna og hvort skipta þarf um mik-
inn jarðveg í vellinum. Stefnt er að því að hann verði tilbúinn næsta sumar.