Morgunblaðið - 09.10.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Við látum framtíðina rætast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
www.volkswagen.is
Touareg Offroad.
3.0 TDI V6.
Verð 9.290.000 kr.
Tiguan Offroad.
Fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur.
Verð 5.790.000 kr.
Tilboðsverð 4.990.000 kr.
Fjórhjóladrifna
Bíll ársins 2019
í flokki stærri jeppa.
Bækurnar „Tilbrigði í setningagerð
I-III“ hafa nú allar verið gefnar út í
kjölfar rannsóknarverkefnis sem
ætlað var að kortleggja útbreiðslu
tilbrigða eða málfarslegra „sjúk-
dóma“. Verkefnisstjóri verkefnisins
var Höskuldur Þráinsson prófessor
og hlaut verkefnið styrk frá Rann-
sóknarsjóði.
Höskuldur segir niðurstöður
rannsóknarinnar sýna að útbreiðsla
þágufallssýki sé meiri hjá körlum en
konum. Ekki var marktækur munur
á útbreiðslu annarra málfarslegra
sjúkdóma milli karla og kvenna,
bætir hann við.
Höskuldur segir Ólafsfjarðar-
eignarfallið það eina sem rannsak-
endur vissu að væri eitthvert lands-
hlutabundið tilbrigði, en í því felst að
segja til að mynda „tölvan mömmu“
eða „hesturinn stráksins“. Þetta til-
brigði er kennt við Ólafsfjörð en er
einnig þekkt á Siglufirði og að ein-
hverju leyti í Skagafirði, að sögn
Höskuldar. Hins vegar er þetta til-
brigði einnig að finna á Patreksfirði
og er algengast á Kirkjubæjar-
klaustri. „Ég veit ekki hvernig
stendur á því. Það eru ekki sérstök
tengsl á milli Patreksfjarðar og
Siglufjarðar,“ segir hann.
Eignarmerking „hjá“
Einnig var skoðað notkun orðsins
„hjá“ í eignarmerkingu eins og „bíll-
inn hjá mér er bilaður“. Þá segir
Höskuldur að orðið „hjá“ í eignar-
merkingu sé sérstaklega fyrir-
ferðarmikið í færeysku en hafi verið
notað með takmörkuðum hætti á Ís-
landi. Hann segir þessa notkun ekki
vera að færast í aukana en notkunin
sé örlítið algengari í yngri aldurs-
hópum.
Viðtengingarhátturinn er ekki í
mikilli hættu, að sögn Höskuldar, en
verður undir í ákveðnum afmörk-
uðum tilvikum „eins og þó að eða
þótt,“ segir hann og vísar til þess að
tilbrigði af þessu tagi sé einkum að
finna meðal ungs fólks.
Prófessorinn segir að þrátt fyrir
einhvern mun í framburði milli
landshluta sé ekki mikið um tilbrigði
í setningagerð milli landshluta borið
saman við önnur svæði Norðurlanda
og að oftar séu frávik eftir aldurs-
hópum. Spurður hvort þessir mál-
farslegu sjúkdómar séu banvænir
svarar Höskuldur: „Nei, ég held
ekki,“ og hlær. gso@mbl.is
Málfarssjúkdóm-
ar ekki banvænir
Frávik algengari milli aldurshópa
Málfræðingar Ásgrímur Angan-
týsson, Höskuldur Þráinsson og
Einar F. Sigurðsson.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er mjög alvarleg þróun og við
erum vel meðvituð um hana,“ segir
Þórey S. Þórðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka líf-
eyrissjóða, og vísar í máli sínu til
þess sem fram
kom í Morgun-
blaðinu síðastlið-
inn mánudag. Var
þá greint frá því
að nýgengi ör-
yrkja á Íslandi er
1.200 til 1.800 á
ári og að árið
2016 hefði ný-
gengi örorku í
fyrsta skipti verið
meira en nátt-
úruleg fjölgun á vinnumarkaði. Kom
þar enn fremur fram að um 30% ör-
yrkja á Íslandi með 75% örorkumat
eða meira er fólk innan fertugs og að
hlutfallsleg fjölgun öryrkja er mest
meðal ungra karla, á aldrinum 20 til
30 ára, vegna geðraskana.
Þórey segir VIRK starfsendur-
hæfingarsjóð bjóða upp á ýmis úr-
ræði fyrir unga einstaklinga þegar
kemur að starfsendurhæfingu en
nauðsynlegt sé að móta stefnu til
framtíðar sem snúið geti þessari þró-
un við. „Það þarf að finna úrræði til
að koma fólki aftur inn á vinnumark-
að en einnig þarf að koma í veg fyrir
að fólk detti út af vinnumarkaði. Það
hversu margir ungir einstaklingar
eru að fara á örorku er verulegt
áhyggjuefni,“ segir hún og bætir við
að aðilar vinnumarkaðar og stjórn-
völd verði að takast á við vandann og
bregðast við þessari þróun.
Finna þarf hvað veldur
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, tekur í svipaðan
streng og bendir á að mikill kostn-
aður fylgi fjölgun ungra öryrkja hér
á landi. „Þetta felur í sér mikinn
kostnað fyrir landið. Og þá er mesti
kostnaður ekki endilega sá að greiða
út bætur heldur er það dýrt þegar
stór hópur ungs
fólks kemst ekki
inn á vinnumark-
aðinn til að vinna
og ná sér í starfs-
frama,“ segir Ás-
geir og bætir við
að hið opinbera
sýni ákveðið úr-
ræðaleysi í þess-
um málum. „Það
er mjög mikið
áhyggjuefni að lýðheilsu skuli hraka
svona á Íslandi og menn þurfa að
velta því fyrir sér hvað veldur.“
Fjölgun ungra öryrkja
„mjög alvarleg þróun“
Þörf á að finna rót vandans, segir dósent í hagfræði við HÍ
Morgunblaðið/Júlíus
Höfuðborgin Hlutfallsleg fjölgun öryrkja er mest meðal ungra karlmanna,
á aldrinum 20 til 30 ára. Þróunin er sögð alvarleg og dýr fyrir samfélagið.
Þórey S.
Þórðardóttir
Ásgeir
Jónsson