Morgunblaðið - 09.10.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Fleiri en hundrað einstaklingar hafa
haft samband við lögreglu vegna
svikapóstanna sem sendir voru út í
nafni lögreglu á laugardagskvöld, að
sögn Daða Gunnarssonar, lögreglu-
fulltrúa í tölvurannsókna- og raf-
eindadeild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Póstarnir komu frá netfanginu
logreglan@logregian.is og voru þess
eðlis að viðtakendur voru boðaðir í
skýrslutöku hjá lögreglu og beint
inn á vef sem var líkur vef lögregl-
unnar. Þar endaði ferlið á því að
fólki var sagt að sækja skrár með
upplýsingum um skýrslutökuna.
Ekki liggur fyrir í hversu mörg
pósthólf svikapóstarnir bárust í
heildina, en Daði segir ljóst á fjölda
þeirra sem hafi sett sig í samband
við lögreglu að þeir hafi farið víða.
Lögreglan rannsakar málið og
ætlar hið fyrsta að koma út leiðbein-
ingum um það hvernig skuli bregð-
ast við til þeirra sem féllu fyrir svik-
unum og sóttu skrá með óværu, sem
veitir tölvuþrjótnum bakdyr eða
fjarstýrðan aðgang að tölvu notand-
ans – svokölluðum trójuhesti (e. re-
mote access trojan).
„Það virðist vera líklegast að
þetta tengist því að komast í ein-
hverjar fjármálaupplýsingar,“ segir
Daði í viðtali við mbl.is. Hann segir
svindlið sjálft hafa verið „mjög vel
gert“ og að um sannfærandi svika-
tilraun hafi verið að ræða.
Stálu upplýsingum
Ekki er hægt að slá því föstu
hvort tölvuþrjóturinn sem þarna var
að verki sé íslenskur eða erlendur,
en lénið logregian.is, sem notað var
til að senda út svikapóstana, var
keypt með stolnum upplýsingum frá
Thelmu Dögg Guðmundsen, sem er
bloggari og svonefndur áhrifa-
valdur.
Óvíst hve víða póstarnir fóru
www.gilbert.is
GÆÐA ARMBANDSÚR
FYRIR DÖMUR OG HERRA
KLASSÍSK ÍSLENSK
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Blússa /
peysa
Kr. 6.900
Str. M-XXXL • fleiri litir
Karl Harðarson, for-
stjóri ThorShip, lést
síðastliðinn föstudag,
5. október, 59 ára að
aldri.
Karl fæddist 2.
ágúst 1959, sonur
hjónanna Harðar
Sófussonar vélstjóra
og Geirlaugar Karls-
dóttur skrif-
stofukonu.
Karl lauk
verslunarprófi frá
Verzlunarskóla Ís-
lands árið 1978.
Á árunum 1988 til
2006 starfaði Karl hjá Eimskipa-
félagi Íslands. Hann var m.a. for-
stöðumaður fyrir starfsemi fyrir-
tækisins í Noregi á árunum
2003-2006. Þar áður var hann yfir
frysti- og kæliskipaþjónustu Eim-
skips.
Árið 2006 söðlaði Karl um og
stofnaði fyrirtækið ThorShip, sem
er alhliða þjónustufyrirtæki í frakt-
flutningum og sinnir vikulegum
siglingum milli Íslands og megin-
lands Evrópu. Karl var
forstjóri félagsins til
hinsta dags.
Árið 2012 var Karl
annar tveggja stofn-
enda hollenska skipa-
félagsins Cargow B.V.
sem sinnir stórflutn-
ingum í Evrópu og
m.a. flutningum frá
verksmiðjum Alcoa á
Reyðarfirði og í Mosjø-
en í Noregi til Rotter-
dam. Gargow hefur nú
fimm flutningaskip í
förum, en fjögur þeirra
eru nýsmíði sem fyrir-
tækið hefur látið smíða í Kína.
Bera þau einkennisnöfnin Frigg W,
Sigyn W, Freyja W og Sif W.
Karl var alla tíð mikill KR-ingur
og var m.a. í forsvari fyrir Píluvina-
félag KR á árunum 2007-2013.
Eftirlifandi eiginkona Karls er
Ragnheiður Lára Jónsdóttir. Þau
eignuðust þrjú börn; Hörð, f. 1987,
Hauk, f. 1990, og Auði, f. 1994. Karl
átti eitt barnabarn, Emblu Harðar-
dóttur, f. 2018.
Andlát
Karl Harðarson
Icelandair flutti 427 þúsund farþega
í september síðastliðnum og fjölgaði
þeim um 1% miðað við sama mánuð
árinu áður. WOW air flutti hins veg-
ar 362 þúsund farþega til og frá
landinu í sama mánuði en það voru
um 27% fleiri farþegar en í septem-
ber 2017. Sætanýting WOW air var
88% nú í september en var 85% í
sama mánuði árinu áður. Sætanýt-
ingin jókst þrátt fyrir 26% aukningu
á framboðnum sætiskílómetrum
miðað við sama tímabil í fyrra. Það
sem af er ári hefur WOW air flutt
um 2,8 milljónir farþega.
Framboðnir sætiskílómetrar Ice-
landair jukust um 3% í september
nú miðað við september i fyrra.
Sætanýting Icelandair var 81,0%
samanborið við 81,1% í september
2017. Sala Icelandair á áfangastaði í
Norður-Ameríku hefur ekki fylgt
eftir auknu framboði á sætum en
sala til Evrópu hefur verið mjög góð,
skv. tilkynningu. Til samanburðar
var sætanýting á leiðum Icelandair í
Evrópu 84,9% og jókst um 5,4 pró-
sentustig á milli ára. Sætanýting á
leiðum félagsins til Norður-Ameríku
var 78,7% og lækkaði um 3,4 pró-
sentustig á milli ára.
Farþegar Air Iceland Connect
voru tæplega 29 þúsund í september
og fækkaði um 15% á milli ára. Um
miðjan maí hætti félagið flugi til Bel-
fast og Aberdeen og einnig á milli
Keflavíkur og Akureyrar.
Flugfarþegum
fjölgaði á milli ára
Morgunblaðið/Ómar
Flugstöð 789.000 flugu í september
með íslensku flugfélögunum.
Sveiflur í sæta-
nýtingu milli ára
Ríkissaksóknari ætlar að áfrýja
dómi Héraðsdóms Suðurlands yfir
Val Lýðssyni til Landsréttar. Þetta
staðfesti Helgi Magnús Gunnars-
son. Valur var dæmdur í sjö ára
fangelsi fyrir að verða bróður sín-
um, Ragnari Lýðssyni, að bana.
Ákæruvaldið fór fram á að Valur
yrði dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir
manndráp. Héraðsdómari taldi yfir
skynsamlegan vafa hafið að Valur
hefði veitt bróður sínum þá áverka
sem leiddu hann til dauða.
Valur var hins vegar dæmdur í
sjö ára fangelsi 24. september fyrir
að hafa orðið Ragnari að bana 31.
mars síðastliðinn með stórhættu-
legri og vísvitandi líkamsárás. Val-
ur bar við minnisleysi um atburðina
sem leiddu til dauða Ragnars.
Eftir að dómurinn var kveðinn
upp á Selfossi hófst nýtt dómþing
þar sem ákveðið var að Valur
skyldi sæta áframhaldandi gæslu-
varðhaldi. Honum var einnig gert
að greiða fjórum börnum Ragnars
þrjár milljónir hverju fyrir að hafa
banað föður þeirra. Eins skyldi Val-
ur greiða allan sakarkostnað í mál-
inu.
Dómnum yfir Val
verður áfrýjað