Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Úrval af rafdrifnum hvíldarstólum Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Í YFIRRÉTTI [E. HIGH COURT OF JUSTICE] DÓMSTÓLL ENGLANDS OGWALES Á SVIÐI VIÐSKIPTA- OG FJÁRMUNA [E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS] FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL [E. COMPANIES COURT] (Fjármáladeild) [e. (ChD)] VARÐANDI QBE INSURANCE (EUROPE) LIMITED - og - VARÐANDI QBE RE (EUROPE) LIMITED - og - VARÐANDI QBE EUROPE SA/NV - og - VARÐANDI LÖG UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OGMARKAÐI FRÁ ÁRINU 2000 [E. FINANCIAL SERVICES ANDMARKETS ACT 2000] Hér með tilkynnist að hinn 6. september 2018 var lögð fram beiðni á grundvelli 107. gr. breskra laga um ármálaþjónustu og markaði frá árinu 2000 (lögin) fyrir Yfirrétti, dómstól Englands og Wales á sviði viðskipta og ármuna, fyrirtækjadómstól (ármáladeild), í London af hálfu QBE Insurance (Europe) Limited (QIEL), QBE Re (Europe) Limited (QBERe) og QBE Europe SA/NV (QBE Europe) (í sameiningu nefnd QBE) um dómsúrskurð: (1) á grundvelli 111. gr. laganna, sem heimilar áætlun (áætlunina) um framsal til QBE Europe á: (a) allri vátryggingar- og endurtryggingarstarfsemi á vegum QIEL í útibúum þess í Belgíu, Búlgaríu, Danmörku, Eistlandi, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Noregi, Spáni og Svíþjóð og (b) allri vátryggingar- og langtíma endurtryggingarstarfsemi á vegum QBE Re og (2) um viðbótarráðstafanir í tengslum við áætlunina skv. gr. 112 og 112A laganna. Afrit skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem samin var af óháðum sérfræðingi í samræmi við 109. gr. laganna (skýrslan um áætlunina), yfirlýsingar sem greinir frá skilmálum áætlunarinnar og hefur að geyma samantekt skýrslunnar um áætlunina og áætlunarskjalið eru fáanleg endurgjaldslaust með því að hafa samband við QIEL, QBE Re eða QBE Europe símleiðis í eftirfarandi símanúmer eða skriflega á eftirfarandi póstföng. Skjöl þessi ásamt öðrum skjölum sem málinu tengjast, þ. á m. sýniseintök af tilkynningum til vátryggingartaka, eru aðgengileg á vefsíðu QBE (https://qbeeurope.com/).Vefsíðan verður uppfærð efmikilvægar breytingar verða gerðar á fyrirhuguðu framsali. Fyrirspurnum eða athugasemdumum fyrirhugaða áætlun skal beina til QBE í síma+44 20 7105 5566 (Bretland), + 32 2224 9889 (Belgía), + 359 2905 1063 (Búlgaría), + 45 3345 0303 (Danmörk), + 372 5 68 668 (Eistland), + 33 1 8004 3355 (Frakkland), + 49 21 1994 1991 (Þýskaland), + 353 1605 3666 (Írland), + 39 02 3626 3515 (Ítalía), + 47 2405 5231 (Noregur), + 34 9 1789 5000 (Spánn) og + 46 8 5875 1444 (Svíþjóð), eða skriflega til QBE: (1) Bretland – Plantation Place, 30 Fenchurch Street, London EC3M 3BD; (2) Belgía– Boulevard du Régent 37, BE 1000, Brussels; (3) Búlgaría – 132 Mimi Balkanska Str., Sofia, 1540; (4) Danmörk–Vester Farimagsgade 7, 6, DK 1606 Copenhagen V; (5) Eistland – Tornimae 5, Tallinn, 10145; (6) Frakkland – Cœur Défense, Tour A, 110, Esplanade du Général de Gaulle, 92931 La Défense Cedex; (7) Þýskaland – Breite Straße 31, 40213 Düsseldorf; (8) Írland – 6-10 Suffolk Street, Dublin 2, Dublin, Ireland; (9) Ítalía –Via Melchiorre Gioia 8, 20124 Milano; (10) Noregur – Postboks 447, 4664 Kristiansand; (11) Spánn – Paseo de la Castellana, 31 – 5ª Planta, 28046 Madrid; (12) Svíþjóð – Sveavägen 13, 111 57, Stockholm. Vátryggingartakar hjá QIEL eða QBE Re eru vinsamlega beðnir að gefa upp númer vátryggingarskírteinis í bréfum sínum, sem er að finna á vátryggingarskjölum eða í bréfaskiptum í tengslum við vátrygginguna. Umsóknin verður tekin fyrir í Yfirrétti Englands og Wales, 7 Rolls Buildings, Fetter Lane, London EC4A 1NL, Bretlandi, hinn 19. desember 2018. Hverjum þeim sem telur sig kunna að verða fyrir neikvæðum áhrifum vegna framkvæmdar áætlunarinnar eða er mótfallinn áætluninni er heimilt að vera viðstaddur fyrirtökuna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri, annað hvort í eigin persónu eða gegnum fulltrúa. Þeir sem hyggjast mæta eru beðnir að upplýsa QBE um það skriflega á ofangreind póstföng eins fljótt og auðið er og helst fyrir 12. desember 2018 og gera grein fyrir ástæðum andmæla sinna. Það gerir QBE kleift að tilkynna um breytingar á fyrirtökunni og, eftir því sem unnt er, bregðast við athugasemdum sem fram koma eru áður en fyrirtakan fer fram. Hver sá sem er mótfallinn áætluninni eða telur sig kunna að verða fyrir neikvæðum áhrifum vegna áætlunarinnar en hyggst ekki vera viðstaddur fyrirtökuna getur borið fram mótmæli í tengslum við áætlunina með skriflegri tilkynningu um slík mótmæli til QBE á ofangreind póstföng eða símleiðis í viðeigandi símanúmer sem tilgreind eru hér að ofan, eins fljótt og auðið er í hverju tilfelli og helst fyrir 12. desember 2018. QBEmun upplýsa bresku ármálaeftirlitin Financial Conduct Authority og Prudential Regulation Authority ummótmæli semborin eru fram áður en fyrirtakan fer fram, óháð því hvort sá sem ber mótmælin fram hyggst vera viðstaddur fyrirtökuna. 9. október 2018 Norton Rose Fulbright LLP, 3 More London Riverside, London, SE1 2AQ, Bretlandi Lögmenn á vegum QIEL, QBE Re og QBE Europe Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is S taða íslenskrar tungu er brothætt, segir Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kenn- arasambands Íslands og íslenskukennari. „Miklar og hraðar samfélags- og tæknibreytingar hafa víðtæk áhrif á flestum sviðum mannlífsins og áhrif enskunnar á ís- lenskt málumhverfi eru meiri og víðtækari en nokkru sinni. Við heyrum sífellt fleiri kennara greina frá námserfiðleikum nemenda vegna dalandi málskilnings og orða- forða og staðfesta rannsóknir þessa alvarlegu þróun.“ Skólakerfið sé leiðandi Kennarasamband Íslands hélt í síðustu viku sitt árlega Skóla- málaþing og þar var sjónum sér- staklega beint að íslensku máli og þætti skólanna til eflingar því. Á þinginu var undirritaður sáttmáli milli kennarafélaganna og ýmissa fleiri um vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls og er hann birtur hér til hliðar á síðunni. „Við teljum nauðsynlegt að skólakerfið sé leiðandi til að tyggja stöðu íslenskrar tungu í skólakerfi og samfélagi. En til þess að svo megi verða þarf margt að koma til. Nauðsynlegt er að auka framboð á vönduðu og fjölbreyttu náms- og kennsluefni á íslensku. Efnið þarf svo að haldast í hendur við markmið um menntun við hæfi, styðja við starf kennara og þróun náms og kennslu. Nefni ég þar sérstaklega námsefni í leik- og framhaldsskóla. Verulega þarf að bæta í náms- gagnaútgáfu á þessum tveimur skólastigum og nauðsynlegt er að náms- og kennsluefni verði nem- endum að kostnaðarlausu frá upp- hafi leikskóla til loka framhalds- skóla,“ segir Anna María, sem kenndi íslensku um langt árabil, lengst í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík. Auðvelt að vekja áhuga „Mín reynsla sem íslensku- kennari er sú að fremur auðvelt er að vekja áhuga nemenda á íslensku máli, notkun þess og framtíð ís- lenskunnar yfirleitt. Flestir hafa áhuga á að skrifa vandaðan texta, auka orðaforða sinn og finnst gam- an að velta fyrir sér málnotkun. Þar getum við kennarar beitt okkur af alefli,“ segir Anna María og heldur áfram: „Við þurfum ekki að hlaupa upp til handa og fóta þó að orða- forðinn breytist og endurspegli tíðarandann. Vissulega kemur á óvart þegar framhaldsskólanemar telja að það þurfi prentara til að merkja verkefnin sín með prent- stöfum og hafa ekki hugmynd um hvað sængurkona eða hreppsómagi er. En það mun ekki ráða úrslitum um framtíðarhorfur íslenskunnar.“ Þörf á samvinnu Fyrrgreindan sáttmála um efl- ingu íslenskunnar undirrituðu, auk Önnu Maríu, þau Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Há- skóla Íslands, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Heimilis og skóla. Inntak sáttmálans segir Anna María að haldist í hendur við þá skólamálastefnu sem Kennara- samband Íslands samþykkti síðasta vor undir slagorðinu Menntun er mannréttindi. Þar er undirstrikað að menntun sé mikilvægasta tæki samfélagsins til að jafna lífskjör og ein mikilvægasta grunnstoð vel- ferðarkerfisins. „Þjóðfélagið er gerbreytt frá því að flest orðtök og málshættir voru sótt í sjómennsku og land- búnað. Ísland er nú fjölmenningar- samfélag og samskipti allra eiga að einkennast af gagnkvæmri virðingu. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í því að hjálpa nemendum með ann- að móðurmál en íslensku að skapa sér líf og góða framtíð í samfélag- inu. Mín trú er líka sú að samvinna skipti hér öllu máli. Við þurfum að taka höndum saman og vanda okk- ur. Aðeins með náinni samvinnu milli nemenda og fjölskyldna þeirra, kennara, háskóla og stjórnvalda tryggjum við að íslensk tunga standi jafnfætis öðrum tungumálum og sé notuð á öllum sviðum sam- félagsins. Stundum er sagt að á ís- lensku megi alltaf finna svar og tungan nær yfir allar útgáfur mann- legrar tilveru. Því eigum við að efla hana í stað þess að glata henni smátt og smátt.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kennari Íslensk tunga nær yfir allar útgáfur tilverunnar, segir Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ. Íslenska á öllum sviðum Efla á ástkæra ylhýra málið samkvæmt yfirlýs- ingu kennara og stjórn- valda. Í fjölmenningar- samfélagi nútímans eru skólarnir þar í lykil- hlutverki. Morgunblaðið/Eggert Skólabörn Orðaforðinn breytist og endurspeglar jafnan tíðarandann. Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í 12. sinn með friðsælli athöfn á fæðingardegi John Lennon þriðju- daginn 9. október, það er í kvöld klukkan 20.00. Friðarsúlan, sem tekin var í gagnið árið 2007, mun varpa ljósi upp í himininn til 8. desember en þann dag 1980 var Lennon skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í New York. Boðið er upp á fríar ferjusigl- ingar og strætóferðir fyrir og eftir tendrun. Listasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og fleiri halda úti dagskrá sem hefst kl. 17.45 og stendur til 21.30. Tón- leikarnir fara fram í Naustinu við Friðarsúluna. Yoko Ono, ekkja Bítilsins fræga, býður upp á fríar siglingar yfir sundið. Siglt verður frá Skarfa- bakka frá kl. 17.30 til 19.30. Fyrsta ferja eftir tendrun Friðarsúlunnar siglir frá Viðey kl. 20.30. Dagskráin hefst kl. 17.45 með leiðsögn um verk Richards Serra í Viðey á vegum Listasafns Reykja- víkur. Klukkan 18.00. hefst sögu- ganga um byggð og sögu í eyjunni á vegum Borgarsögusafnsins. Leið- sögnin verður endurtekin kl. 18.45 og 19.00. Klukkan 19.40 hefst dag- skrá við Friðarsúluna með kórsöng Graduale Nobili undir stjórn Þor- valdar Davíðssonar, og á slaginu kl. 20 flytur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ávarp. Í framhaldi af því mun Yoko Ono ávarpa gesti og svo tendra ljós súlunnar sem setur svo sterkan svip á Sundin. Ljósmynd/Aðsend Ljós Friðarsúlunnar tendrað í kvöld Kennarasamband Íslands, forsætisráðuneyti, mennta- og menningar- málaráðuneyti, Háskóli Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli staðfesta vilja til að standa að vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls. Ofangreindir aðilar munu leggja sig fram við að finna víðtækan samstarfsgrundvöll til að vekja athygli og áhuga á móður- málinu, stuðla að virkri notkun þess og vinna sérstaklega að jákvæðari viðhorfum barna og unglinga til íslenskrar tungu. Íslenskan stendur á tímamótum og mikilvægt er að tryggja að íslensk tunga standi jafnfætis öðrum málum og sé notuð á öllum sviðum þjóð- lífsins. Á það bæði við um daglegt líf og sérhæfðari samskipti. Jafnfætis öðrum málum ÍSLENSKAN Á TÍMAMÓTUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.