Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Gengið var frá tilboðstryggingu í
byggingarrétt á öllum lóðum í
Úlfarsárdal nema fjórum þegar til-
boð voru opnuð og lesin upp í heyr-
anda hljóði í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Bjóðendur voru viðstaddir enda
þurftu þeir að staðfesta boð sitt með
greiðslu tilboðstryggingar svo það
teldist gilt.
Boðnar voru upp 28 lóðir, þar af
19 einbýlishúsalóðir. Gengið var frá
tilboðstryggingu í 15 þeirra, en
óseldar eru fjórar lóðir. Lóðir undir
tvíbýli voru fimm, undir raðhús
þrjár og fjölbýli ein. Allar þessar
lóðir gengu út. Heildarupphæð stað-
festra tilboða í byggingarrétt nam
323 milljónum króna, en að við-
bættum gatnagerðargjöldum nam
lóðasalan í heild 633 milljónum
króna. Mest munar um sölu bygg-
ingarréttar fyrir 46 íbúða fjölbýlis-
hús, en boðnar voru 240 milljónir í
byggingarréttinn sem með gatna-
gerðargjöldum gerir 319 milljónir.
Sala fjölbýlishúsalóðarinnar er því
ríflega helmingur sölunnar, að því er
fram kemur í frétt á heimasíðu
Reykjavíkurborgar.
Borgarráð úthlutar lóðum og eru
niðurstöður útboðsins háðar sam-
þykki þess. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Flestar lóðir í Úlf-
arsárdal seldust
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er flókið mál og mér finnst
kerfið hafa klikkað. Kerfið gerir ekki
ráð fyrir því að það er fólk fyrir vest-
an sem hefur lífsviðurværi sitt af
þessari starfsemi. Um 25% fjöl-
skyldna á sunnanverðum Vest-
fjörðum hafa beina afkomu af fisk-
eldi,“ segir Sigurður Pétursson,
framkvæmdastjóri hjá fiskeldis-
fyrirtækinu Arctic Fish. Starfs- og
rekstrarleyfi fyrirtækisins vegna
áformaðs laxeldis í Patreks- og
Tálknafirði voru felld úr gildi með úr-
skurðum úrskurðarnefndar umhverf-
is- og auðlindamála í síðustu viku.
Sigurður nefnir
sem dæmi um
óvissuna sem uppi
er vegna úrskurð-
anna að kennari
úr grunnskól-
anum á Tálkna-
firði hafi haft
samband við sig í
gær til að fá út-
skýringar á stöð-
unni. Ástæðan sé
sú að nemend-
urnir viti ekki fyrir víst hvort þeir
verða áfram í skólanum.
„Mér finnst þetta lýsa stöðunni vel.
Það skilur enginn hvernig hægt er að
kippa í burtu leyfi fyrir starfsemi sem
hefur verið stunduð í næstum því
heilt ár. Fæstir trúa því að slíkt geti
gerst í réttarríki. Þetta mál hefur
vonandi vakið fleiri en mig til vit-
undar um það hvort við búum í sam-
félagi þar sem kerfið er haft ofar fólk-
inu og samfélögum þess,“ segir
Sigurður.
Landeldi aldrei á Vestfjörðum
Hann bendir á að fyrirtækin hafi
látið meta áhrif af kynslóðaskiptu lax-
eldi í sjókvíum. Það sé þeirra starf-
semi og því hafi aðrir kostir ekki ver-
ið metnir.
Kærendur bentu á ýmsa aðra val-
kosti. Hann segir að notkun lokaðra
sjókvía henti ekki í fjörðum þar sem
ölduhæð fer yfir einn og hálfan
metra. Það útiloki þann kost á því
svæði sem til umfjöllunar er en Sig-
urður tekur fram að áfram verði
fylgst með þróun tækninnar og ekki
útilokað að hægt verði að nýta hana í
framtíðinni.
Varðandi eldi á ófrjóum fiski bend-
ir Sigurður á að hún grundvallist á
þrýstimeðhöndlun hrogna þannig að
fiskurinn verði þrílitna. Eftir inngrip
af því tagi flokkist afurðin undir
erfðabreytt matvæli. Arctic Fish hafi
fengið gæðavottun frá ASC sem ekki
leyfi erfðabreytt matvæli. Sigurður
segir að fyrirtækið muni fylgjast með
þróun aðferða við ófrjóan lax og von-
andi verði hægt að nota þær í fram-
tíðinni.
Sigurður Pétursson segir ótrúlegt
að það skuli nefnt sem valmöguleiki
fyrir laxeldi á Vestfjörðum að flytja
starfsemina upp á land. Það sé allt
önnur framkvæmd en sótti hafi verið
um leyfi fyrir. Hann segir að nú sé
um 0,01% laxeldisafurða í heiminum
úr landeldi. Eitt stærsta fyrirtækið í
heiminum sem hafi náð tökum á slíku
eldi sé íslenskt, Silfurstjarnan, með
um 1.000 tonna framleiðslu á ári.
„Vissulega kann þetta að vera val-
möguleiki í framtíðinni en slík fram-
leiðsla yrði aldrei sett upp á Vest-
fjörðum þar sem hvorki er nægt
landrými né raforka. Það þyrfti þre-
falt meira rafmagn en nú er notað á
Vestfjörðum, eða sem svarar til
þriggja Mjólkárvirkjana. Slík starf-
semi yrði væntanlega helst nálægt
stórum mörkuðum þar sem nægilegt
rafmagn er í boði,“ segir Sigurður.
Úrskurðarnefndin benti á það í
niðurstöðu sinni að það hlytu að vera
fleiri kostir sem hægt væri að meta
og bera saman, til dæmis annað um-
fang og aðrar staðsetningar. Sig-
urður segir það vissulega hægt og
það verði gert.
Borið undir dómstóla
Arctic Fish er aðallega með laxeldi
í Dýrafirði. Það ætlar að setja út stór
seiði í kvíar í Patreks- og Tálknafirði
á næsta ári og hefur fjárfest fyrir tugi
milljóna í framleiðslu seiða og öðrum
undirbúningi. Arnarlax setti út seiði í
kvíar á nýju staðsetningunum í vor.
Fyrirtækin munu síðan slátra á sama
tíma og hvíla firðina.
„Það mun umbreyta öllu okkar
rekstrarumhverfi ef ógildingin stend-
ur. Við erum að framleiða fisk sam-
kvæmt ströngum umhverfisstöðlum, í
árgangaskiptu laxeldi með hvíldar-
tíma. Það eyðileggur rekstrar-
uppbyggingu fyrirtækisins ef okkur
verður ýtt út úr því,“ segir Sigurður.
Hann segir að fyrirtækin muni
bera ógildingu rekstrar- og starfs-
leyfanna undir dómstóla. Hann er
þrátt fyrir allt bjartsýnn á að lausn
finnist í kerfinu. „Það erfiða í þessu er
að við erum undir sama hatti og
starfsmenn okkar og samfélagið allt á
Vestfjörðum. Við þurfum að halda
niðri í okkur andanum og bíða eftir
næstu fréttum. Þannig er staðan ein-
mitt núna,“ segir Sigurður Péturs-
son.
Krakkarnir vita ekki hvort
þau verða áfram í skólanum
Framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish segir kerfið ekki taka tillit til fólks og samfélags
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Framleiðsla Arctic Fish er að byggja upp mikla seiðastöð í Tálknafirði. Þar er verið að ala stórseiði sem ætlunin
er að setja í sjókvíar í Patreksfirði og Tálknafirði á næsta ári. Stöðin er tæknilega mjög vel útbúin.
Sigurður
Pétursson
Kristján Þór Júl-
íusson, sjávar-
útvegs- og land-
búnaðarráðherra,
hefur á morgun
tveggja vikna
fundaferð sína
um landið til að
ræða nýtt frum-
varp til laga um
veiðigjald og
stöðu sjávar-
útvegsins almennt. Fundirnir eru
öllum opnir.
Kristján verður á Ísafirði á mið-
vikudag, í Vesturbyggð og á Hellis-
sandi á fimmtudag. Næsta þriðjudag
fundar Kristján í Reykjavík, mið-
vikudaginn 17. október í Vest-
mannaeyjum, á Akureyri 21. októ-
ber, Þórshöfn og Eskifirði daginn
eftir og að síðustu á Höfn og í
Grindavík þriðjudaginn 23. október.
Nánari upplýsingar má finna á vef
ráðuneytisins.
Kristján í
fundaferð
Kristján Þór
Júlíusson
Allmargir ökumenn voru kærðir
fyrir of hraðan akstur um helgina í
umdæmi lögreglunnar á Suður-
nesjum. Sá sem hraðast ók mældist á
167 km hraða á Reykjanesbraut þar
sem hámarkshraði er 90 km á
klukkustund. Hann var sviptur öku-
réttindum til bráðabirgða og þarf að
greiða 240 þúsund krónur í sekt, auk
þess sem hann fær þrjá punkta í
ökuferilsskrá. Hann kvaðst hafa ver-
ið að flýta sér til að ná flugi.
Annar ökumaður, erlendur ferða-
maður, sem einnig ók of hratt reynd-
ist jafnframt vera undir áhrifum
áfengis við aksturinn. Hann greiddi
sekt að upphæð ríflega 220 þúsund
vegna hrað- og ölvunaraksturs áður
en hann yfirgaf landið.
Loks hafði lögregla afskipti af
ökumanni sem kvaðst ekki geta
framvísað ökuskírteini sínu þar sem
það væri týnt og yrði hann að fara til
heimalandsins til að sækja nýtt skír-
teini. Í ljós kom að maðurinn hefur
leikið þennan leik nokkrum sinnum
áður og verið kærður fyrir að aka
réttindalaus. Svo var einnig gert í
þetta skipti.
Á 167 kílómetra
hraða á leið í flug
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Nýtt frá Scandi
Verð
7.995
Stærðir 36-41
Verð
8.995
Stærðir 36-41