Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.alno.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
póstur sem tengist frístundaiðkun
barna viðkomandi, og menn þykjast
þá vera þjálfarar að senda leikjaplan
eða annað slíkt. „Þessi viðhengi eru
svo beintengd við tölvuský. Þar held-
ur hið grandalausa fórnarlamb áfram
og reynir að skrá sig inn á sinn að-
gang í skýinu, eins og fjölmargir eru
farnir að gera dags daglega í dag.
Eftir þetta er viðkomandi sendur á
vefsíðu sem lítur nákvæmlega eins út
og raunveruleg vefsíða gerir, en þar
nær hann ekki að skrá sig inn hvað
sem hann reynir. Með öllu þessu fylg-
ist netglæpamaðurinn og er núna
kominn með bæði netfang viðkom-
andi og lykilorð, og þá er eftir-
leikurinn auðveldur. Hann getur nú
valsað um pósthólf fórnarlambsins að
vild hvenær sem hann vill, og grand-
skoðað öll samskipti.“
Best að hringja líka
Guðbjarni segir að glæpamaðurinn
hafi þarna sérstakan áhuga á tengi-
liðum sem eru í samskiptum við fórn-
arlambið vegna fjármálatengdra
hluta. Þá er algengt að sögn Guð-
bjarna að menn búi sér til sérstaka
„reglu“ í pósthólfi viðkomandi, sem
sendir alla pósta sem tengjast
ákveðnum tengiliðum, áfram til
þriðja aðila, þ.e. svikarans sjálfs.
„Menn þurfa mikla árvekni til að
uppgötva svona. Best er að treysta
engu fullkomlega í blindni, og hringja
alltaf líka til að spyrja aðila hvort
hann hafi raunverulega verið að
senda fjármálatengd gögn.“
Guðbjarni segir að ótrúlega mikið
sé um svona svindl hér á landi. Auð-
vitað útheimti þetta mikla þolinmæði,
vinnu og yfirlegu hjá svindlaranum,
en uppskeran geti verið ríkuleg.
„Einu sinni töldum við okkur vera vel
sett útaf íslenskunni, en nú er það
ekki lengur nein vörn, því Google
Translate er orðið svo fullkomin þýð-
ingarvél. Og hver veit nema Íslend-
ingar standi að baki, eins og líklegt er
með nýlega pósta sem virðast koma
frá lögreglunni.“
Sprenging eftir haftalosun
Þá segir Guðbjarni að eftir að öll-
um höftum hafi verið aflétt í við-
skiptum milli landa hafi orðið
sprenging í netárásum og svindli.
Ennfremur hefur aukin notkun
skýjalausna aukið enn á möguleika
svindlara til að ná árangri.
En hve mikið er um þetta?
„Við sjáum bara toppinn á ísjak-
anum. Fæstar af svona netárásum
eru tilkynntar opinberlega. Fólk
skammast sín fyrir að verða fyrir
barðinu á þessu.“
En hversu auðvelt ætli sé að finna
þessa glæpamenn? Guðbjarni segir
að það sé því miður hálfpartinn von-
laust. Spurður um upphæðir í þessu
samhengi, segir Guðbjarni að um-
talsverðar fjárhæðir hafi tapast hér
á landi undanfarið í svona innrásum,
milljónir á milljónir ofan.
Guðbjarni segir að nýjasta nýtt í
netglæpageiranum sé að brjótast
inn í tölvur, og láta þær vinna fyrir
sig í skjóli nætur. „Menn láta tölvur
fólks úti í bæ grafa fyrir sig eftir raf-
myntum, án þess að það átti sig á því
hvað er í gangi. Það eina sem gerist
er að tölvan verður hægvirkari en
venjulega. Þetta skilar þrjótunum
stöðugum tekjum, í stað þess að fá
tekjur bara einu sinni úr hverju inn-
broti.“
Netglæpir ábatasamir
Getty Images/iStockphoto
Innbrot Netþrjótar geta valsað óáreittir um pósthólf fórnarlamba sinna eftir að hafa komist yfir lykilorð þeirra, og
sæta þá lagi til að komast yfir fjármuni. Guðbjarni segir að best sé er að treysta engu fullkomlega í blindni.
Leikur kattarins að músinni Nýta sér mannlega þáttinn Tölvur óafvitandi í
námagreftri Skýjalausnir auka áhættuna Íslenskan engin hindrun lengur
Netþrjótar
» Gíslataka var vinsæl hjá net-
glæpamönnum en nú er fólk
meira á varðbergi fyrir slíku.
» Illmögulegt er að ná þrjót-
unum, sem fela slóð sína vel.
» Google Translate, skýja-
lausnir og haftalosun hafa
gagnast netþrjótunum vel.
» Aðeins sést toppurinn á ís-
jakanum af glæpum sem
þessum.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Guðbjarni Guðmundsson, forstöðu-
maður kjarnalausna hjá upplýsinga-
tæknifyrirtækinu Opnum kerfum,
segir að aðfarir tölvuglæpamanna
sem sérhæfa sig í netárásum á ís-
lenska aðila, sé leikur kattarins að
músinni, eins og hann kemst að orði í
samtali við Morgunblaðið. Netárásir
séu almennt ekki
að minnka, og
glæpamennirnir
finni sífellt nýjar
og nýjar leiðir til
að komast inn í
tölvur granda-
lausra einstak-
linga og starfs-
manna fyrirtækja
hér á landi. „Við
erum að sjá tölu-
vert mikið af því
að menn hafa farið í mjög djúpar
rannsóknir og sýnt mikinn metnað, í
viðleitni sinni til að komast inn í tölv-
ur til dæmis yfirstjórnenda í fyrir-
tækjum,“ segir Guðbjarni.
Hann segir að þær lausnir sem í
boði séu til að hindra glæpina séu
m.a. notkun miðlægra öryggisvarna,
sem er samspil eldveggja, vírusvarna
og annarra aðferða til að greina óeðli-
lega hegðun tölvunar. Það dugi þó
skammt ef fólkið sjálft gái ekki nógu
vel að sér. „Menn nýta sér þá helst
mannlega þáttinn til að komast að
upplýsingum sem hægt er að nýta sér
í tölvuinnbrotin. Nú eru allir inni á
samfélagsmiðlum eins og LinkedIn
og Facebook til dæmis. Svo skoða
menn heimasíður fyrirtækja og sjá
þar mjög skýrt hvaða stjórnunar-
stöðu hver gegnir. Menn reyna að
fiska upplýsingar upp úr þessu fólki
sérstaklega, og reyna þá fyrst og
fremst að villa á sér heimildir, til að
komast yfir þau gögn sem nauðsyn-
leg eru, til að gera sér þau að féþúfu.“
Þykjast vera þjálfarar
Spurður nánar að því hvaða að-
ferðum menn beiti, segir Guðbjarni
að til dæmis búi glæpamaðurinn til
falskan tölvupóst í nafni einhvers
sem viðkomandi treysti. Í póstinum
sé síðan viðhengi, til dæmis með fjár-
málaupplýsingum. Þá sé oft sendur
Guðbjarni
Guðmundsson
9. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 113.38 113.92 113.65
Sterlingspund 147.82 148.54 148.18
Kanadadalur 87.67 88.19 87.93
Dönsk króna 17.472 17.574 17.523
Norsk króna 13.693 13.773 13.733
Sænsk króna 12.479 12.553 12.516
Svissn. franki 114.02 114.66 114.34
Japanskt jen 0.9947 1.0005 0.9976
SDR 157.72 158.66 158.19
Evra 130.34 131.06 130.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 158.4508
Hrávöruverð
Gull 1201.1 ($/únsa)
Ál 2139.5 ($/tonn) LME
Hráolía 84.89 ($/fatið) Brent
Lífeyrissjóðurinn Gildi vill að fyrir-
tækjaráðgjöf Kviku banka verði feng-
in til að meta fyrirhuguð kaup HB
Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur, og
skilmála þeirra. Hefur lífeyrissjóður-
inn gert tillögu um að bókun þessa
efnis verði tekin til meðferðar á hlut-
hafafundi HB Granda sem fram fer
16. október.
Fyrir fundinum liggur þegar tillaga
um að staðfesta ákvörðun stjórnar-
innar um kaup félagsins á öllu hlutafé
Ögurvíkur ehf. af Útgerðarfélagi
Reykjavíkur, sem áður bar nafnið
Brim.
Segir í greinargerð með tillögu
Gildis að þar með liggi fyrir hluthöfum
að leggja mat á og taka afstöðu til þess
hvort viðskiptin séu hagfelld fyrir HB
Granda. Tillagan sé þá meðal annars
lögð fram í ljósi þess að aðaleigandi
seljanda, Guðmundur Kristjánsson, sé
á sama tíma forstjóri HB Granda og
stærsti hluthafi fyrirtækisins. Mark-
mið tillögunnar sé því að tryggja að
ákvörðunartakan sé hafin yfir allan
vafa. Þá liggi fyrir sérfræðiskýrsla
sem sé meðal annars þeim annmarka
háð að einungis sé byggt á einni tiltek-
inni matsaðferð, án þess að horft sé til
annarra þátta sem kunni að skipta
máli þegar viðskiptin séu metin á
heildstæðum grunni.
Kanni kaup
á Ögurvík
Staldra við vegna
viðskipta við Brim
Ottó Sigurðsson
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
innflutningssviðs
Samskipa.
Í tilkynningu
frá félaginu seg-
ir að með ráðn-
ingunni snúi Ottó
aftur til Sam-
skipa, en hann
var forstöðumaður innflutnings-
deildar félagsins frá 2013 til loka
árs 2016.
Ottó kemur til Samskipa frá VÍS
þar sem hann hefur frá 2017 gegnt
stöðu forstöðumanns fyrirtækja-
þjónustu. Áður starfaði hann hjá
Vodafone, meðal annars sem for-
stöðumaður fyrirtækjasölu.
„Ég er mjög spenntur yfir því að
koma aftur til Samskipa enda átti
ég góðar stundir þar með góðu
fólki,“ segir Ottó meðal annars í
fréttatilkynningunni. tobj@mbl.is
Ottó ráðinn
til Samskipa
Ottó
Sigurðsson