Morgunblaðið - 09.10.2018, Page 25
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hátröð 7, Hvalfjarðarsveit, fnr. 224-2073 , þingl. eig. Eignamark ehf.,
gerðarbeiðendur Hvalfjarðarsveit og Vörður tryggingar hf., mánudag-
inn 15. október nk. kl. 14:00.
Sóleyjargata 6, Akranes, fnr. 210-2341 , þingl. eig. Bjargþór Ingi
Aðalsteinsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Orkuveita
Reykjavíkur-vatns sf. og Greiðslumiðlun ehf. og Íslandsbanki hf.,
mánudaginn 15. október nk. kl. 13:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
8. október 2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stólajóga kl. 9.30.
Gönguhópur kl. 10.15. Postulín & tálgað í tré kl. 13. Línudans kl. 13.30.
Kaffi kl. 14.30-15:.0.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Leshringur með Heiðrúnu. Vist og brids
kl. 13-16. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna
með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS
fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids / kanasta / tafl
kl. 13.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og
Arnhildar organista. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð.
Félagsstarf eldri borgara hefst kl. 13. Kómedíuleikhúsið setur upp leik-
verkið Sigvalda Kaldalóns. Sýningin hefst kl. 14. Leikari og höfundur
Elvar Logi Hannesson. Aðgangseyrir 1500 kr. Boðið upp á kaffi og
kleinur eftir sýningu. Verið velkomin.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bónusrúta fer frá Jóns-
húsi kl. 14.45. Tréskurður / smíði kl. 9 /13 í Kirkjuhvoli. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30. Félagsvist í Jónshúsi kl. 20. Vídalínskirkja,
Spjaldtölvukennsla.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik-málun kl. 9-
12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Línudans kl. 13-14
(speglasal). Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 15 dans.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara og þá sem vilja.
Stundin hefst klukkan 12 með kyrrðarstund í kapellu Grafarvogs-
kirkju. Súpa og brauð fyrir vægt gjald er svo í boði þar á eftir.
Söngstund hefst klukkan 13, Hilmar Örn Agnarsson leiðir. Svo verður
farið í heimsókn í Fella- og Hólakirkju og horft á leikrit um ævi, störf
og söng Sigvalda Kaldalóns. Áætluð heimkoma er kl. 16.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11, 500 kr. skiptið eða 1305 kr.
mánuðurinn, allir velkomnir. Hjúkrunarfræðingur kl. 10-11. Hádegis-
matur kl. 11.30. Bónusbíllinn kl. 12.15. Spjallhópur kl. 13, allir velkom-
nir. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hraunsel Dansleikfimi kl. 9. Qi gong kl. 10. Föndur í vinnustofu kl. 9-
12. Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, gönguferð um
hverfið með Önnu kl. 13.15, helgistund kl. 14, síðdegiskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Thai chi kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasd.
kl. 9-12, leikfimi kl. 10-10.45, hádegismatur kl. 11.30, Spekingar og
spaugarar kl. 10.45-11.45. Listasmiðjan er öllum opin frá kl. 12.30,
Kríur myndlistarhópur kl. 13, brids kl. 13-16, tölvuleiðbeiningar kl.
13.10, enskunámskeið kl. 13-14.30, kaffi kl. 14.30, enska ll kl. 15. Allir
velkomnir, óháð aldri. Uppl. s. 411-2790.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum og botsía kl. 10 og 16 í Borgum.
Helgistund kl. 10.30 í Borgum og leikfimishópur Korpúlfa kl. 11 í
Egilshöll, Ársæll Guðjónsson leiðbeinir. Sundleikfimi kl. 13.30 í Graf-
arvogssundlaug og heimanámskennsla kl. 16.30 í Borgum. Velkomin.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Guðbjörn Sigurmundsson kennari
fjallar um ættjarðarlög Íslendinga. Kaffiveitingar og söngur.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 17. Uppl. í s. 4112760.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl.
13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30
–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4, Skák kl. 13, allir velkomnir.
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra verður
gestur á hádegisfundi SES á morgun,
miðvikudaginn 10. október kl. 12:00, í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Húsið opnar kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 1000 kr.
Allir velkomnir.
Með kveðju,
stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Smáauglýsingar 569
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Heima er bezt tímarit
Þjóðlegt og fróðlegt
Tryggðu þér áskrift
www.heimaerbezt.net
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Bómullarbolir
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Peysur
Sími 588 8050.
- vertu vinur
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
fasteignir
fékkst þú átta ára gömul þegar
þú misstir pabba þinn og það
fylgdi þér alla tíð. Þú komst alltaf
undir þig fótunum aftur þó að
sumt hefðir þú aldrei sætt þig
við.
Elsku mamma, ég þakka þér
allt sem þú varst mér og mínum,
þó að þú hafir oft verið pirrandi
hafðir þú það af að kenna mér
margt og mikið. Ég er þó ekki
búin að læra að þegja þó að þú
hafir lagt mikla áherslu á það.
Anna.
Elsku mamma, nú er komið að
kveðjustund.
Mamma var góður uppalandi,
kenndi okkur systkinunum að
vinna vel og vera dugleg og rétt-
sýn.
Man ég vel að alltaf beið
mamma við eldhúsborðið, að lesa
bók, eftir að við kæmum heim.
Sama hversu seint það var þá fór
hún ekki að sofa fyrr en allir voru
komnir heim.
Mamma var flink í höndunum
bæði að prjóna og sauma og gat
hún saumað hvaða flík sem var.
Mamma safnaði bókum og var
alltaf með bók í hendi, enda
þekktu símasölumennirnir hana
vel því alltaf keypti hún af þeim,
þangað til síðustu árin en þá var
sjónin farin að bila og gat hún
ekki lesið lengur. En þá fór hún
að hlusta á hljóðbækur.
Mamma hafði gaman af því að
ferðast, bæði utanlands og innan
og þekkti hún landið okkar vel.
Hún þekkti sérstaklega Vestfirð-
ina og alltaf þótti henni best að
fara á Innri-Múla á Barðaströnd,
þá var hún komin heim í sveitina
sína. Þar leið henni alltaf vel.
Ég er mjög glöð að við syst-
kinin fórum með þér á ættarmót
þangað í sumar. Alla leiðina vest-
ur nefndir þú alla staði, fjöll og
firði og sagðir okkur skemmtileg-
ar sögur á leiðinni. Ekki datt mér
í hug að þetta yrði þín hinsta ferð
í sveitina þína og finnst mér dýr-
mætt að hafa átt þann tíma með
þér.
Mamma, mig langar að þakka
þér fyrir hvað þú varst mér góð
og hjálpaðir mér mikið þegar ég
átti hann Hlyn og við fengum að
vera fyrstu árin hjá ykkur pabba.
Mamma var flink að setja sam-
an vísur og þessa bjó hún til um
mig.
Sólarbarnið mitt æ annist allífsmóðir
lát því auðnast lífs um slóðir
lán og hagsæld, vinir góðir.
Hvíl í friði, elsku mamma.
Þín dóttir,
Inga Hildur.
Drottinn gaf og Drottinn tók.
Lofað veri nafn Drottins!
Á haustdögum 1994 hófust
kynni okkar og samstarf þá er ég
var ráðinn til starfa við Reyk-
hólaskóla en Eygló hafði þá þeg-
ar tekið til starfa og unnið í tvö ár
við skólann eftir að hafa gegnt
stöðu skólastjóra í Súðavík
nokkru áður. Aldrei sló fölskva á
vináttu og samstarf þá tvo ára-
tugi og gott betur sem síðan eru
liðnir.
Það gustaði af Eygló, frjáls-
mannlegt fas, málafylgja sem
best mátti verða og sannfæring
og kraftur á því stigi að hún dró
arnsúg í flugnum.
Skarphéðinn Ólafsson var þá
skólastjóri Reykhólaskóla.
Hann stillti strengina og sagði
mönnum síðan að gjöra svo vel að
vinna sitt verk!
Eygló var gamansöm og orð-
heppin svo af bar og ósjaldan
virtist sem tíu örvum hefði verið
skotið samtímis eða þrjú sverð á
lofti þá hæst bar.
Eygló var góður kennari og
tókst óhikað á við þær áskoranir
sem kennslustarfinu fylgdi. Var
til þess tekið fyrr og síðar að hún
náði eftirtektarverðum og minn-
isstæðum árangri og uppskar
þannig laun erfiðisins en lof
þeirra sem efinn byrgði sýn.
Í Reykhólskóla var í gildi ein
regla sem átti jafnt við um starfs-
lið sem nemendur og reist var á
því standbergi fullvissunar sem
mannkærleikur og kristni jafnan
er: Allt sem þér viljið að aðrir
menn gjöri yður, það skulið þér
og þeim gjöra.
Það var þetta frelsi til orða og
athafna sem skuldbatt hvern og
einn til að gefa sem best af sjálf-
um sér og gilti jafnt um alla.
Þetta fyrirkomulag samverkaði
öllum til góðs; hátimbrað reglu-
verk er fásinna sem skilar alls
engu.
Á þessum árum voru yfirvöld í
Reykhólahreppi hjónin Jóna Val-
gerður Kristjánsdóttir og Guð-
mundur Ingólfsson. Var það
samdómaálit að velvild þeirra og
áhugi fyrir fræðslumálum í
byggðarlaginu hefði jafnframt
endurspeglast í viðhorfi þeirra
sem þar bjuggu.
Eygló naut sín vel er hún
kenndi kristin fræði. Þar fór
saman djúp virðing og þekking á
viðfangsefninu en ekki sízt hæfi-
leikinn til að gæða það lífi. Undir
brann eldur trúarinnar; vissan
um að orð Krists væru í fullu
gildi á öllum tímum alls staðar.
Óbærilegum léttleika tilver-
unnar; broslegri eftirsókn eftir
vindi, hlálegri ósamkvæmninni,
villuljósum og sjónhverfingum,
mætti hún með góðlátlegri kímni
þess sem sér glögglega á bak við
tjöldin.
Gilti þetta á öllum sviðum og
fáum hef ég kynnst um ævina
öllu gleggri á stað og stund,
menn og málefni.
Sá maður þekkir hvorki hlekk
né hefðarband við gengi valt,
sitt eigið líf að fjársjóð fékk,
Í fátækt sinni hlýtur allt.
(Úr kvæði Sir Henry Wotton, þýðing
Helgi Hálfdanarson)
Um leið og ég þakka Eygló
órofa vináttu og samfylgd þá rifja
ég hér upp síðasta ljóðið sem við
fórum yfir. Það eru lokalínur úr
sonnettu William Shakespeare:
Ég sé þig aldrei eldast:
Því grunar mig að fyrr en elli er fædd
sé fegurð sumarbjört í nálín klædd.
(Helgi Hálfdanarson þýddi)
Ég votta ættingjum, venzla-
fólki og vinum mína dýpstu sam-
úð.
Farnist þér nú vel, Eygló.
Guðni Björgólfsson, kennari.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 25