Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 09.10.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 Lilja Ólafía Bergsteinsdóttir á 70 ára afmæli í dag. Hún er fæddog uppalin á Patreksfirði en flutti til Reykjavíkur um tvítugtog hefur búið þar síðan. Hún hefur búið í Þingholtunum í 40 ár og býr nánar tiltekið í Mið- stræti 3a, ásamt eiginmanni sínum, Guðna Kolbeinssyni, kennara og þýðanda, í húsi sem var byggt 1922, en þau tóku það rækilega í gegn þegar þau fluttu þar inn. Lilja er prentsmiður að mennt og vann lengi hjá Morgunblaðinu en hætti þar fyrir aldamót. Hún hefur verið síðan heimavinnandi að mestu og fór í skóla þegar börnin fluttu að heiman og tók hand- menntadeildina í Fjölbraut í Breiðholti og stúdentinn eftir það. Áhugamál hennar eru ýmiss konar. „Ég fer í leikfimi tvisvar í viku og svo hef ég gaman af því að ferðast og lesa og ég les alls konar bæk- ur, ævisögur og skáldsögur. Maðurinn minn hefur aðgang að húsi í Hlöðuvík á Hornströndum og við reynum að fara þangað að minnsta kosti annað hvert ár.“ Börn Lilju og Guðna eru Hilmir Snær leikari, Ásdís Mjöll, en hún lést fyrir tæpum tveimur árum, Bergdís Björt, viðskiptafræðingur og keramiker, og Kristín Berta félagsráðgjafi. Barnabörnin eru tíu allt í allt. „Mér finnst þetta ágætis tímamót að vera orðin sjötug og ég ætla að halda upp á daginn með fjölskyldu og vinum á laugardaginn. Börnin ætla líka að koma í heimsókn til mín í kvöld.“ Á Hornströndum Lilja með tengdasyni og barnabörnum á göngu í Kjaransvík á góðviðrisdegi nú í sumar. Ágætis tímamót að verða 70 ára Lilja Bergsteinsdóttir er sjötug í dag A uður Ögn Árnadóttir fæddist á Selfossi 9.10. 1968 og ólst þar upp: „Faðir minn lést í vinnu- slysi við Búrfellsvirkjun þegar ég var fimm mánaða, en ég eignaðist síðan stjúpföður sem einnig heitir Árni og gekk mér í föðurstað. Ég var svo öll sumur á Akureyri, hjá langömmu minni, Halldóru Sæmundsdóttur, enda er ég norð- lensk í báðar ættir.“ Auður var í Barnaskóla Selfoss og Gagnfræðaskóla Selfoss, lauk stúd- entsprófi frá Fjölbrautaskóla Suður- lands 1989, var au pair í Frakklandi 1987, fór aftur til Frakklands eftir stúdentspróf í frönskunám, stundaði nám í frönsku og stjórnmálafræði við HÍ og lauk síðar diplómaprófi í við- skiptafræði frá HÍ 1998. Auður starfaði á Hótel Selfossi á Auður Ögn Árnadóttir, framkvæmdastjóri 17 sorta – 50 ára Kokkurinn Auður í Salt eldhúsinu, vinsælu kennslueldhúsi sem hún starfrækti fyrir sælkera um nokkurra ára skeið. Huggulegri heimili, betri mat og nú kökur Ferming Frá vinstri: Lillý Karen, Auður, móðir Auðar og Guðbjörg amma. Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica Akureyri Freyja Rán Blatch fæddist 9. október 2017 kl. 3.43 og á því eins árs afmæli í dag. Hún vó 3.910 g og var 52 cm löng í fæðingu. Foreldrar hennar eru Vigdís Arna Magnúsdóttir og Ashley Blatch. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.