Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.10.2018, Blaðsíða 27
sumrin og með framhaldsskólanámi, starfaði við innkaup hjá IKEA 1993- 95, síðan við innkaup hjá Vífilfelli 1995-98 og var starfsmannastjóri hjá Vífilfelli 1998-2001. Auður stofnaði fyrirtækið Tilefni ehf. árið 2004: „Þetta var hönnunar- stúdíó og stílistaþjónusta. Ég skipu- lagði ýmiss konar uppákomur fyrir fólk, sá um skreytingar fyrir veislur, stílfærði myndatökur, sjónvarpsþætti og heimili. Þessi þjónusta gekk prýðilega og ég gat stjórnað vinnutímanum, sem kom sér vel á þessum tíma því ég eignaðist þrjú börn á sex árum frá 2000.“ Auður stofnaði síðan annað fyrir- tæki, Salt eldhús, sem einnig veitti vinsæla þjónustu: „Salt eldhús var í rauninni stofnað sem kennslueldhús fyrir sælkera. Þar var lögð áhersla á vandaða matargerð, rétt vinnubrögð og galdurinn við það að víkka sjón- deildarhringinn í matargerð og prófa sig áfram. Ég kenndi stundum sjálf við eldhúsið en fékk oft þekkta mat- reiðslumenn til að koma og halda námskeið.“ Þegar hér var komið sögu lagði Auður niður fyrirtækið Tilefni ehf: „Ég hafði engan tíma fyrir þetta allt saman og varð að velja á milli verk- efna og fyrirtækja.“ Árið 2015 stofnaði Auður síðan 17 sortir, sem er kökuhús á Granda og í Kringlunni: „Ég kalla þetta ekki bak- arí því þarna fæst ekkert brauðmeti. Hjá 17 sortum eru alltaf 17 sortir á boðstólum en aldrei sömu 17 sortirnar frá degi til dags. Reksturinn á 17 sortum hefur gengið vel en er svo annasamur að ég seldi Salt eldhús árið 2016. Ég hef forðast að vera að stússa í of mörgu í senn; ég vil heldur einbeita mér að einu verkefni og gera það vel. Þess vegna er ég einungis á fullu í kök- unum eins og stendur. Svo sjáum við bara til.“ Þegar Auður er spurð um áhuga- mál segist hún alltaf hafa verið að gera það sem hún hefur áhuga á: „Í rauninni hafa fyrirtæki mín snúist um mín áhugamál; að gera góða stund betri, góðan mat betri og heimili hlý- legri og huggulegri. Ég hef verið heppin að fá alltaf að vinna við það sem mér finnst mest gaman hverju sinni og hafa getað látið drauma mína rætast.“ Fjölskylda Eiginmaður Auðar er Páll Kristinn Guðjónsson, f. 21.3. 1964, rafvirki. Hann er sonur Guðjóns Pálssonar, f. 3.10. 1924, rafvirkjameistara í Hvera- gerði, og k.h., Sigríðar Bjarnadóttur, f. 13.6. 1929, d. 6.4. 2002, húsfreyju. Dætur Páls frá því áður og stjúp- dætur Auðar eru Líney, f. 23.6. 1989, nemi í viðskiptafræði við HR, búsett í Hveragerði en sambýlismaður hennar er Jón Ingi Þórarinsson kerfisfræð- ingur og eru börn þeirra Elín Thelma, f. 2011, og Benedikt Leví, f. 2015; og Sara Lind, f. 25.1. 1990, kaupmaður í Júník í Kringlunni, búsett í Kópavogi en sambýlismaður hennar er Kristján Þórðarson, sölu- og markaðsfulltrúi fyrirtækjasviðs Nova, og er dóttir þeirra Alfa Lind, f. 2016. Börn Auðar og Páls eru Lillý Karen, f. 18.6. 2000, nemi; Stella Maren, f. 9.2. 2004, og Tómas Leví, f. 18.4. 2006. Systur Auðar eru Þorbjörg, f. 17.1. 1963, deildarstjóri tölvudeildar Al- þingis, búsett í Reykjavík, og Guð- björg Anna, f. 25.9. 1971, fram- kvæmdastjóri á Selfossi. Hálfbróðir Auðar, sammæðra, er Leó Árnason, f. 25.9. 1971, fjárfestir og athafnamaður. Foreldrar Auðar: Árni Gunnar Tómasson, f. 12.8. 1942, d. 15.2. 1969, vélvirki á Selfossi, og Halldóra Kristín Gunnarsdóttir, f. 1.7. 1946, húsfreyja í Nýjabæ í Árborg. Stjúpfaðir Auðar er Árni Leósson, f. 7.4. 1945, bygginga- meistari í Nýjabæ. Úr frændgarði Auðar Agnar Árnadóttur Auður Ögn Árnadóttir Halldóra Kristín Gunnarsdóttir húsfreyja í Nýjabæ í Árborg Baldur Tómasson byggingafulltrúi í Borgarnesi Heimir Tómasson vélstjóri á Akureyri Halldóra Sæmundsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði og á Akureyri Árni Evertsson verkamaður á Ólafsfirði og á Akureyri Guðbjörg Anna Árnadóttir húsfreyja á Akureyri Margrét Sæ- munds- dóttir hús- freyja í Rvík Gunn- hildur Viktors- dóttir hús- freyja í Rvík Mar- teinn Geirs- son fv. knatt- spyrnu- kempa Pétur Marteins- son fv. knatt- spyrnu- kempa agnús Árnason lögfræðingur í RvíkMJúlíus Magnússon lögfræðingur á Ólafsfirði Jóhanna Magnúsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði Árni Bergsson kaupm., útgerðarm. og símstj. á Ólafsfirði Gunnar Bergur Árnason kaupmaður á Akureyri Erna Gunnarsdóttir söngkona á Akureyri Kristinn Árnason skipherra hjá Landhelgisgæslunni María Gunnarsdóttir húsfreyja í Flatey Baldvin Jóhannes Bjarnason hreppstjóri og kennari í Flatey Þorbjörg Jóhannesdóttir húsfreyja og vann við umönnun á Akureyri Tómas Kristjánsson vélstjóri á Akureyri Rósa Tómasdóttir húsfreyja í Öxnadal, Blönduhlíð og á Akureyri Kristján Gíslason b. í Öxnadal og Blönduhlíð, síðar verkamaður á Akureyri Árni Gunnar Tómasson vélvirki á Selfossi ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Stefán Gunnlaugssonfæddist á Hall-ormsstað í Valla- hreppi 9.10. 1802, sonur Gunnlaugs Þórðarsonar, prests á Hallormsstað, og Ólafar Högnadóttur hús- freyju. Bróðir Stefáns var Þórður Gunnlaugsson, prestur í Ási í Fellum. Fyrri kona Stefáns var Ragnhildur Benedikts- dóttir, systir Helgu, móð- ur Benedikts Gröndal Sveinbjarnarsonar skálds. Stefán og Ragnhildur eignuðust fimm börn. Seinni kona hans var Jórunn Guðmundsdóttir og eignuðust þau tvö börn. Flest börn Stefáns sem náðu full- orðinsaldri ílengdust erlendis. Stefán útskrifaðist frá Bessastaðaskóla 1825, lauk exam.juris-prófi 1826, stundaði framhaldsnám í lögfræði og lauk ex.philol-prófi 1828. Stefán var sýslumaður Borgarfjarðarsýslu frá 1828, varð sýslumaður í Gull- bringusýslu 1834, flutti til Reykjavíkur 1835 og byggði þar húsið á Bernhöfts- torfunni sem í seinni tíð er nefnt Torfan. Hann varð bæjarfógeti í Reykjavík 1836-48 og auk þess landfógeti og um skeið dómari við yfirréttinn. Hann flutti til Kaupmannahafnar 1853. Árni Óla skrifaði skemmtilega grein í Lesbók Morgunblaðsins árið 1948 um þennan merka bæjarfógeta. Þar kemur fram að Stefán hafi verið með röggsam- asta yfirvaldi í Reykjavík. Hann varð fyrstur til að hamla gegn umferðarslysum með því að gefa út bann við því að menn riðu hratt um götur bæjarins, vann að forvörnum gegn húsbruna, hengdi upp auglýsingu um að Reykvíkingar töluðu íslensku en ekki afbakaða dönsku, var mjög hlynntur því að Bessastaðaskóli yrði fluttur til Reykjavíkur og var í raun stofnandi bæjarstjórnar Reykjavíkur. Hann stefndi ótrauður að því að gera Reykjavík að íslenskum menningarbæ en ekki lastabæli erlendra kaupmanna og tómthúsmanna. Stefán þótti sérkennilegur um margt, en skemmtilegur og vel menntaður. Stefán lést 13.4. 1883. Merkir Íslendingar Stefán Gunnlaugsson Hús Stefáns Kallað Landfógetahús, síðar Land- læknishús og loks Torfan á seinni árum. 101 ára Guðrún Sveinsdóttir 95 ára Guðrún G. Jónsdóttir Hilmar Snorrason 85 ára Ása Guðbjörg Gísladóttir 80 ára Anna Hulda Norðfjörð Björg S.S. Friðriksdóttir Dóra María Aradóttir Haraldur Kristinsson Leifur Magnússon Sigurður Jón Einarsson 75 ára Atli Smári Ingvarsson Díana J. Ragnarsdóttir Eiríkur Viggósson Eyjólfur Engilbertsson Guðlaug Ólafsdóttir Guðrún E. Guðmundsdóttir Helgi Guðmundsson Kristín E. Guðmundsdóttir Kristjana Karlsdóttir Margrét Friðþóra Sigurð- ardóttir Sigríður H. Gissurardóttir Sigrún Klara Hannesdóttir Þóra Hallgrímsson 70 ára Anna Birna Snæþórsdóttir Ása Jónsdóttir Ingibjörg Norðdahl Karl Jóhann Guðmundsson Kristinn Bjarnason Kristján Þ. Jónsson Lissý Halldórsdóttir Tinna Stefánsson Þórdís Pálsdóttir 60 ára Ásta Melitta Urbancic Boguslawa Bozyk Eyrún Anna Felixdóttir Jón Ben Ástþórsson Lína Björk Sigmundsdóttir Þorsteinn Einarsson Þóra Steingrímsdóttir 50 ára Anna María Valgeirsdóttir Fatima Haidari Guðmunda Gunnlaugsdóttir Guðríður M. Eyvindardóttir Gunnar Hrafn Gunnarsson Hilmar Garðar Hjaltason Hjalti Vésteinsson Kristján Rafn Hjartarson Marina Shulmina Sónia D.DaC.Leite Felizardo Stoycho Vasilev Stoychev 40 ára Anna B. Gunnarsdóttir Ágúst Þór Tómasson Ásta Ýr Ásgeirsdóttir Daníel Gunnarsson Davíð Þór Rúnarsson Elvar Jónsteinsson Hrafnhildur Faulk Kolbrún J. Ragnarsdóttir Lowenda Depamaylo Apas Tómas Þór Tómasson Valgerður Guðmundsdóttir 30 ára Agnieszka Katsarou Ana Esteve Ayllon Arnar Guðni Kárason Artur Jaglowski Dagur Helgason Eyrún Ósk Óðinsdóttir Grettir Jónasson Guðjón Örn Lárusson Marcin Kazimierz Bylica Tinna Rut Sigurbjörnsdóttir Yanfang Li Til hamingju með daginn 30 ára Unnar ólst upp Kópavogi, býr í Hafnar- firði, lauk ML-prófi í lög- fræði frá HR og er inn- kaupastjóri hjá VHE ehf. Maki: Guðrún Lilja Sig- urðardóttir, f. 1989, lög- maður hjá LEX lögmanns- stofu. Foreldrar: Jón Ólafur Halldórsson, f. 1962, for- stjóri Olís, og Guðrún Atladóttir, f. 1963, innan- hússarkitekt og kvik- myndagerðarkona.. Unnar Freyr Jónsson 30 ára Sigurjón ólst upp á Selfossi, býr þar, lauk stúdentsprófi í Dan- mörku, prófi í sjúkraflutn- ingum og er sjúkraflutn- ingamaður. Maki: Aldís Þóra Harðar- dóttir, f. 1988, kírópraktor. Dætur: Ingibjörg Anna, f. 2011, og Salka Rún, f. 2015. Foreldrar: Bergur Tómas Sigurjónsson, f. 1965, og Anna Björg Stefánsdóttir, f. 1966. Sigurjón Bergsson 30 ára Kristján ólst upp í Stórholti í Saurbæ, býr í Búðardal, lauk BSc-prófi í byggingartæknifræði og er umsjónarmaður fram- kvæmda hjá Dalabyggð. Maki: Svanhvít Lilja Við- arsdóttir, f. 1991, starfs- maður hjá Póstinum. Börn: Viðar Örn, f. 2015, og Katla Dís, f. 2018. Foreldrar: Arnar Ey- steinsson, f. 1968, og Ingveldur Guðmunds- dóttir, f. 1968. Kristján Ingi Arnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.