Morgunblaðið - 09.10.2018, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. OKTÓBER 2018
Karl XVI. Gústaf Svíakonungur sam-
þykkti síðasta föstudag tillögu
Sænsku akademíunnar (SA) að
tveimur nýjum meðlimum. Lögmað-
urinn Eric M. Runesson tekur við
stól nr. 1 af Lottu Lotass og rithöf-
undurinn Jila Mossaed við stól nr. 15
af Kerstin Ekman. Mossaed fæddist í
Íran 1948 en flúði til Svíþjóðar 1986
þar sem hún hefur búið síðan. Hún
þykir ljómandi skáld sem birt hefur
verk sín bæði á sænsku og pers-
nesku. Löng hefð er fyrir því að lög-
lærður einstaklingur skipi stól nr. 1.
Runesson, sem fæddur er 1960, hefur
starfað sem lögmaður frá 1993 og var
í seinasta mánuði skipaður dómari
við Hæstarétt Svíþjóðar. Í umfjöllun
SVT um málið kemur fram að Runes-
son hafi fyrr á árinu miðlað málum
milli SA og Nóbelsstofnunarinnar, en
eins og kunnugt er hefur Lars
Heikensten, stjórnandi hennar, látið
hafa eftir sér að ekki sé útilokað að
SA verði svipt réttinum til að veita
Nóbelsverðlaun.
Mál Frostenson hluti af lausn
Alls greiddu 13 af 18 meðlimum SA
atkvæði á vikulegum fundi hennar
síðasta fimmtudag, en alls þarf at-
kvæði 12 meðlima til að taka allar
meiriháttar ákvarðanir. Í samtali við
SVT staðfestir Anders Olsson, starf-
andi ritari SA, að Sara Danius, Peter
Englund og Kjell Espmark hafi ekki
sótt fundinn í eigin persónu, heldur
greitt atkvæði skriflega, en opnað
var fyrir þann möguleika í nútíma-
túlkun á sáttmála SA frá 1786 sem
samþykkt var í seinasta mánuði.
Þremenningarnir krefjast þess að
Katarinu Frostenson verði vikið úr
SA til frambúðar. Ekki liggur ljóst
fyrir hvort Frostenson hafi verið boð-
ið til fundarins eða hún haft mögu-
leika á að kjósa, en Frostenson dró
sig út úr starfi SA um óákveðinn tíma
í apríl sl. eftir harðvítugar deilur inn-
an SA um það hvernig taka skyldi á
alvarlegum ásökunum á hendur
eiginmanni hennar, Jean-Claude
Arnault. Hann var í byrjun mánaðar-
ins dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir að nauðga konu í árslok 2011, en
fjöldi annarra kvenna hefur frá 1997
sakað hann um kynferðisofbeldi og
áreitni. Í gær varð ljóst að bæði
Björn Hurtig, verjandi Arnault, og
Christina Voigt ríkissaksóknari
hefðu áfrýjað dómnum. Hann krefst
sýknu, hún refsiþyngingar. Arnault
verður í gæsluvarðhaldi þar til málið
er útkljáð.
Samkvæmt heimildum SVT mun
vera meirihluti fyrir því innan SA að
víkja Frostenson endanlega úr SA,
en Olsson hefur ekki viljað tjá sig um
það. „Við höfum komist að sam-
komulagi um hvernig við leysum mál-
ið, en ég vil ekki segja meira á þess-
ari stundu,“ sagði hann að loknum
síðasta fundi SA. „Samstaðan sem
náðist um mál Frostenson var for-
senda þess að hægt væri að velja inn
nýju meðlimina,“ segir Olsson og tek-
ur fram að að enn standi til að af-
henda tvenn Nóbelsverðlaun í bók-
menntum á næsta ári, þ.e. fyrir 2018
og 2019, eins og fordæmi eru fyrir í
sögu SA.
Mun ekki leysa krísuna
Í samtali við SVT að síðasta fundi
SA loknum staðfesti Göran Malm-
qvist að ekki aðeins Danius, Englund
og Espmark krefðust þess að
Frostenson hætti alfarið í SA heldur
kæmi sama krafa frá bæði sænsku
hirðinni og Nóbelsstofnuninni.
Hvorki Heikensten né Margareta
Thorgren, upplýsingafulltrúi hirðar-
innar, vildu tjá sig um málið við SVT
þegar eftir því var leitað.
Þó að valinu á Runesson og Mossa-
ed sé almennt fagnað efast álitsgjafar
um að tilkoma þeirra inn í SA breyti
miklu. „Hvorugt þeirra mun leysa
krísu akademíunnar. Þau eru valin
inn í akademíuna af meðlimunum
sem valdið hafa krísunni og neitað
hafa að horfast í augu við að þeir eru
sjálfir hluti af vandamálinu,“ skrifar
Ingrid Elam, bókmenntagagnrýn-
andi, á vef SVT, en t.d. Horace Eng-
dahl hefur í gegnum tíðina verið ötull
bandamaður Arnault. Rifjar Elam
upp að meðlimir SA hafa á síðustu 10
mánuðum margoft tjáð sig þess efnis
að SA ráði yfir eigin málum og geti
gert eins og henni þóknist án sam-
ráðs við aðra. Segir hún það ábyrgð-
arhluti þegar meðlimir SA hugsi
fremur um eigin hag en heill aka-
demíunnar. „Það mun taka mörg ár
og krefjast mun róttækari breytinga
áður en akademíunni tekst að endur-
heimta fyrra traust sitt.“ Undir þetta
tekur Anna Hellgren, ritstjóri bók-
menntaumfjöllunar á menningar-
síðum Expressen. Hún segir ljóst að
meirihluti meðlima SA hafi ekki sinnt
kalli tímans og nútímavætt stofn-
unina. silja@mbl.is
Dómari og rithöfundur
taka sæti í akademíunni
AFP
Rithöfundur Jila Mossaed.
AFP
Lögmaður Eric M. Runesson.
Spænska óperusöngkonan Montser-
rat Caballé lést á spítala í Barcelona
um helgina, 85 ára að aldri. Sam-
kvæmt spænskum miðlum fékk
söngkonan hjartaáfall árið 2012. Hún
var lögð inn á spítalann í síðasta mán-
uði vegna vandræða með gallblöðr-
una.
Caballé fæddist 12. apríl 1933 inn í
verkamannafjölskyldu í Barcelona.
Sönghæfileikar hennar komu
snemma í ljós, en aðeins sjö ára göm-
ul var hún farin að syngja kantötur
eftir J.S. Bach. Auðugur velunnari
fjölskyldunnar borgaði fyrir söng-
nám Caballé í Liceo og þar vann hún
gullverðlaun fyrir söng sinn 1954.
Hún gekk til liðs við óperuna í Basel
1956 og söng næstu árin hin ýmsu
hlutverk hjá óperuhúsum í Bremen,
Vín, Barcelona og Liceo. Hún öðl-
aðist heimsfrægð á einni nóttu þegar
hún 1965 tók við titilhlutverkinu í óp-
erunni Lucrezia Borgia eftir Doni-
zetti af Marilyn Horne í konsert-
uppfærslu á vegum Ameríska
óperufélagsins í New York. Raddfeg-
urð hennar, óaðfinnanleg söngtækni,
fallegar fraseringar og geta til að
syngja ofurveikt á hæstu nótunum
kom Caballé á söngkortið. Árið 2004
lenti hún að mati óperugagnrýnenda
í sjötta sæti á lista BBC Music Ma-
gazine yfir 20 bestu sópransöng-
konur upptökualdarinnar næst á eft-
ir Mariu Callas, Joan Sutherland,
Victoriu de los Angeles, Leontyne
Price og Birgit Nilsson.
Söngferill Caballé spannaði hálfa
öld og á þeim tíma söng hún um 90
óperuhlutverk á alls 4.000 sýningum.
Blaðamaðurinn og dálkahöfundurinn
Martin Kettle hjá The Guardian
skrifaði eitt sinn um Caballé að hún
væri „besta bel canto sópran-
söngkonan síðan Callas. Fyrir þá
sem kunna að meta einstaka radd-
fegurð og ósvikinn legato-söng á hún
engan sinn líka síðan Rosa Ponselle á
þriðja áratug síðustu aldar.“
Árið 1987 bauð borgarstjóri Barce-
lona Caballé að flytja einkennislag
Sumarólympíuleikanna í Barcelona
árið 1992. Caballé hafði samband við
Freddie Mercury, sem hún vissi að
væri mikill óperuunnandi og lýst
hefði rödd hennar sem „þeirri bestu í
heimi“. Samstarf þeirra skilaði sér í
plötunni Barcelona, en samnefnt lag
rataði í 8. sæti á breska smáskífulist-
anum síðla árs 1987 og endurútgáfa
þess 1992 rataði í annað sæti sama
lista. Í árslok 2015 hlaut Caballé sex
mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir
skattsvik og greiddi ríflega 250 þús-
und evra sekt. Caballé þótti ávallt
jarðbundin þrátt fyrir að tónar henn-
ar væru himneskir. Eftirlifandi eigin-
maður Caballé er Bernabé Martí ten-
ór og eignuðust þau soninn Bernabé
Martí Jr. og dótturina Montserrat
Martí sem er sópransöngkona.
AFP
Stjarna Montserrat Caballé á söngsviði í Cannes í upphafi ársins 2005.
Montserrat Caballé látin 85 ára
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Mið 24/10 kl. 19:30 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 11:00
Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 Lau 24/11 kl. 14:30 Lau 1/12 kl. 12:30
Lau 17/11 kl. 12:30 Sun 25/11 kl. 11:00 Sun 2/12 kl. 11:00
Lau 24/11 kl. 11:00 Sun 25/11 kl. 12:30 Sun 2/12 kl. 12:30
Lau 24/11 kl. 13:00 Lau 1/12 kl. 11:00
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s
Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 28/10 kl. 20:00 162.
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Athugið, sýningum lýkur í byrjun nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s
Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Besta partýið hættir aldrei!